Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Side 9
ja bývaka til að sofa undir síðustu nótt-
ina því við vorum búin að skila tjöld-
unum. Þetta var alveg svaka stórt svæði
enda voru allir sem voru á mótinu að
sofa undir svona. Um kvöldið voru
síðan slitin á mótinu sem voru þau
leiðinlegustu í heimi. Það voru einhverj-
ir strákar að dansa með kústa sem var
reyndar flott í byrjun en eftir meira en
klukkutíma af því atriði var það orðið
frekar leiðinlegt. Alma fór með mömmu
sinni og pabba því þau ætluðu að vera
lengur úti þannig að við kvöddum hana
áður en við fórum að sofa. Það var mjög
erfitt enda búin að vera saman í 11 daga.
Við vöknuðum klukkan 5 til að pakka
niður og labba þangað sem rútan átti að
sækja okkur. Rútan kom á réttum tíma
klukkan 7 og var þá lagt af stað í næsta
bæ. Þar sem við tókum lestina til
Kaupmannahafnar. Við þurftum að bíða
í einn og hálfan tíma eftir lestinni þann-
ig að allir fóru að skipta um föt svo við
lyktuðum nú ekki illa í lestinni og á
Strikinu í Kaupmannahöfn. Þegar allir
voru orðnir vel lyktandi var bara byrjað
að spila, á brautarpallinum, eins og við
vorum búin að gera alla ferðina. Loksins
kom lestin og var bara spilað í rólegheit-
um og sumir lásu því það voru allir
mjög þreyttir. Seglarnir voru samferða
okkur hálfa leiðina og var mjög erfitt að
kveðja þau enda ekki mikil tími sem
gafst í það. Við héldum áfram til
Kaupmannahafnar þar sem við kíktum á
Strikið þar sem síðustu peningum var
eytt. Síðan var farið á lestarstöðina og
tekin lest á Kastrup. Við vorum ekkert
voðalega klár á þetta lestarkerfi en við
fundum loksins lestina okkar. En þegar
við vorum búin að koma okkur fyrir
kom lestarstjórinn og sagði að það væri
Hér er verið að elda svínin á langeldi og er þetta bara hluti af honum.
tíma að fá matinn og svo einn og hálfan
að elda þannig að það þurfti að byrja
snemma svo maður gæti borðað á
meðan bjart var. Daginn eftir, þann 23.
júlí, voru jólin. Við dönsuðum í kringum
jólatré og sungum dönsk jólalög og svo
voru pakkaskipti og var ýmislegt
sniðugt í pökkunum. Daginn eftir var
þetta hefðbundna fáni og morgunleik-
fimi. Þennan dag var 12 tíma
póstaleikur. Við foringjamir lögðum af
stað um hálf 10 því við áttum að hjálpa
til á póstunum. Krakkarnir lögðu af stað
um 10 og var þeim skipt í 5 manna hópa.
Það var svaka stuð og fengu þau að
prófa ýmislegt nýtt. Síðan áttu allir að
hittast á einum stað og elda kvöldmat.
Við fórum bara til baka í tjaldbúðina
okkar eftir að hafa verið í klukkutí-
maröð eftir matnum okkar. Um kvöldið
hurfu svo Faxa strákarnir en það var allt
í lagi því þeir voru bara með krökkum
sem þeir höfðu kynnst á mótinu. Á
sunnudeginum var fjölskyldudagur
þannig að útlendingunum á mótinu var
boðið að fara í allskonar ferðir. Faxa
krakkamir fóru í Legoland sem var
svaka stuð en það var reyndar rigning en
við létum það ekki skemma fyrir okkur.
Daginn eftir sem var mánudagur fórum
við í 24 klukkustunda póstaleik sem
dönsku félögin sáu um, þar var ýmislegt
í boði. Danir em mjög hugmyndaríkir
og sniðugir að búa til leiktæki og all-
skonar þrautir úr spímm. Það var líka
elduð svín sem voru í kvöldmatinn og
höfum við aldrei séð svona langan lang-
eld áður, enda var verið að elda fyrir
25.000 manns. Um kvöldið var svo bara
haldið áfram að skoða svæðið og allar
byggingarnar. Þar var ýmislegt í boði
t.d. elda pizzu á opnum eldi, fara í heita
Matarborðið okkar, svaka hreint.
sturtu síga, torfæru kappakstur með
fjarstýrða bíla og í allskonar þrautir.
Seinna um kvöldið var svo næturbíó á
stórum skjá hjá stóra sviðinu. Þetta var
skemmtileg upplifun því allir klæddu
sig vel og sumir voru með svefnpokann
sinn og svo var bara lagst í grasið og
horft á risastóran skjá. Þegar allir
íslendingarnir voru að sofna var
ákveðið að fara á svæðið okkar og inn í
tjald að sofa. Ekki voru allir sammála
því að fara að sofa þegar þeir voru
komnir að á svæðið okkar þannig að
Erna, Leifa og Alma fóru að baka pizzu
sem var mjög skemmtilegt. Hún heppn-
aðist ágætlega, var smá bmnnin en samt
góð. Á þriðjudeginum var síða öllu
pakkað saman og nokkrir fóm að bygg-
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
9