Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Qupperneq 4
SKátastarlið
f Eyfum á upplelð
Skátastarfið hefur gengið mjög vel undanfarin ár og er
fjöldi skáta farinn að aukast á ný og áhugi á skátastarfi
hefur vaxið. Skátamir eru stoltir af því að starfa í
skátunum og hafa ákaflega gaman að.
Skátastarfið byggir á góðum grunni skátahreyfingarinnar
undanfarin hundrað ár og enn læra skátamir hnúta, fara í
göngur, fara í útilegur, kveikja elda og syngja. En nú til
dags læra þeir líka um nýjustu tölvutækni og læra hönnun
og notkun á stafrænum framleiðslutækjum og þess háttar
hluti.
Skátamir taka þátt í ýmsum verkefnum og gengur starfið
m.a. út á að virkja einstaklingana á ijölbreyttum sviðunt
mannlífsins og vera óhrædd að takast á við íjölbreyttar
áskoranir. Askoranimar sem skátamir takast á við, rniða
út frá því að undirbúa einstaklinga til þess að vera virkir
þátlakendur í samfélaginu. í Skátafélaginu Faxa hefur
undanfarin ár verið sérstök áhersla hefur verið lögð á
skapandi skátastarf og að virkja skátana til sköpunar hvort
sem er með hefðbundnum eða óhefðbundnum aðferðum.
Þá hafa skátamir fengið að nýta sér aðstöðu i Fab Lab
smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Islands og æft sig í hæfni
sem miðar af þörfum 21 .aldarinnar.
Skáti er traustur félagi og vinur
I skátastarfi myndast vinátta milli skáta sem endist oft
ævilangt. Vináttan getur verið milli einstakra skáta,
skátaflokka eða jafnvel skátafélaga. Undanfarin ár hefur
vinátta milli Skátafélagsins Faxa í Eyjum og Mosverja í
Mosfellsbæ styrkst. Mosverjar hafa boðið okkur í Faxa
að taka þátt í sameiginlegri tjaldbúð á drekaskátamótum
og landsmótum undanfarin ár auk þess að bjóða okkur að
taka þátt í félagsútilegu þeirra í Vindáshlíð. En Mosverjar
komu einnig í fjölskylduútilegu til Eyja og áttum við góðar
stundir í Skátastykkinu. Við erum þakklát Mosverjum
og ánægð með að sterk vináttubönd hafa myndast milli
skátanna í þessum félögum.
Stjórn SKátaíéiaásíns Faxa
Laugardaginn lO.desember var haldinn Aðalfundur
Skátafélagins Faxa.
A dagskrá voru hefðbundin Aðalfundarstörf og m.a.
félagsforingi og stjóm kosin.
I stjóm félagsins eru nú:
Frosti Gíslason félagsforingi
Friðrik Þór Steindórssson aðstoðarfélagsforingi
Aníta Arsælsdóttir gjaldkeri
Flóvent Máni Theódórsson ritari
Salome Yr Rúnarsdóttir meðstjómandi
o