Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Blaðsíða 6

Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Blaðsíða 6
Drekaskatamot í Iúní 2016 Skátafélagið Faxi tók þátt í Drekaskátamóti 2016 á Úlfljótsvatni. Skátarnir tóku þátt í fjölmörgum ævintýrum frá upphafi ferðar til loka. Markmið skátastarfs er að þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Ein leiðin til þess að ná þessum markmiðum er að fara á skátamót og taka þátt i fjölmörgum dagskrárliðum sem þar eru í boði fyrir skátana. Ferðin okkar var stórskemmtileg og fengum við að upplifa margar eftirminnilegar stundir. í byrjun ferðar fórum við í í stýrihús Herjólfs og fengum þar fræðslu hjá Skipstjóranum um hverning væri að stýra svona stóru skipi. Á mótinu fórum við í bogfimi, sigldum út á kayökum, hjólabátum, poppuðum yfir opnum eldi og bökuðum brauð. Þá var farið í klifurturninn en þar er bæði hægt að síga niður og klifra upp. Skátarnir fóru einnig í þrautabrautir, risahoppikastala, vatnasafarí, vatnsbyssuleik og ýmsa útileiki. Að lokum var svo sungið hreyfisöngva á kvöldvöku við varðeld og drukkuð kakó á eftir. Við Drekaskátar viljum þakka mótstjórn kærlega fyrir mótið. Einnig viljum við þakka fararstjórum og vinafélagi okkar í Mosverjum fyrir ánægjulegar stundir. Skipstjórnendur Herjólfs, þeim sem hjálpuðu okkur á svæðinu og við frágang í Eyjum fá einnig þakkir og sérstaklega viljum við þakka Björgunarfélagi Vestmannaeyja fyrir alla þá velvild sem þeir hafa sýnt okkur.

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.