Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Blaðsíða 8
Félagsútilega Mosverja og Faxa í
Vfndásttlíð í nóvember 2016
Helgina 11 .-13.nóvember 2016 fórum við
félagar í Skátafélaginu Faxa í Vindáshlíð
og tókum þátt í félagsútilegu Mosverja.
Utilegan var stórskemmtileg og
skipulögð og stjómað af rekkaskátum
í Mosverjum sem stóðu sig með stakri
prýði. Við viljum þakka vinum okkar
í Mosverjum fyrir frábæra helgi,
skemmtilega samveru og góðan mat. í
útilegunni tókum við þátl í skemmtilegri
dagskrá með Harry Potter þerna þar sem
við fengurn m.a. að tálga töfrasprota, fara
í leiki, fara skemmtilega íþróttaleiki eins
og Quidditch, skrifa fréttir, mála, móta
og búa til leir og að sjálfsögðu að fara í
íjallgöngu í fallegu umhverfi og einnig í
næturleik og fleira og fleira.
Dagana 11.-13 nóvember til fórurn við
í Vindáshlíð með Mosverjum. Þernað
var Harry Potter. Við byrjuðum á þvi að
fara í Herjólf sem sigldi í Þorlákshöfn
í þrjá klukkutíma. Svo fórum við í rútu
og keyrðum til Mosfellsbæjar og hittum
þar Mosverja. Svo keyrðum við upp í
Vindárshlíð. Þegar við vorum komin
þangað komum við okkur fyrir og fórum
að sofa. Næsta dag byrjuðum við á því
að borða morgunmal. Svo gátum við
valið um nokkra hluti til að gera t.d.
Horfa á mynd, Baka, Rakspírasandur og
Töfrasprotagerð. Eftir það borðuðum við
hádegismat, eftir það fóum við aftur í val.
Eftir það var kvöldmatur. Svo fórum við í
rosalega skemmtilega Harry Potter leiki.
Þorgerður Katrín,
Eva og Ragnheiður Rós
o