Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Side 11
sundlauginni í Borg í Grímsnesi.
I skátaveröld gerðum við m.a.
Rómverskanvagn en þá útbjó
skátaflokkurinn “karlsvagn” sem er
dreginn áfram af mannafli og með
örlitlum breytingum má gera vagninn
að sjúkravagni. Súrringar og spýrur
léku stórt hlutverk í þessurn pósti og því
var nauðsynlegt að læra að súrra til að
bera hvert annað. Þar fórum við líka í
ijölbreytta leiki og skemmtum okkur vel.
I Undraveröld var margt skemmtilegt að
sjá og prófa.
Þar kepptum við m.a. í risa FuBball,
spiluðum bubblubolta þar sem allir
leikmennimir vom klæddir sem
uppblásnar plastkúlur og leikmenn vom
hvattir til að vera með hamagang og
lenda í samstuði við mótherjana. Við
lærðum að skjóta með boga og örvum og
það vakti mikla lukku. Við fórum í risa
Yatzy, risa Lúdó, ofur kúluspil og risa
twister.
I Vatnaveröld prófuðum við
vatnsbyssustrið, vatnsrennibraut, báta,
vatnasafarí og brutum ís utan af fötum.
I Víkingaveröld prófuðum við að
elda að hætti víkinga yfir opnum eldi
í matarsmiðju, fómm í ullarsmiðju,
þæfðurn ull og lituðum. Þá fórum við
einnig í málmsmiðjuna og útbjuggum
víkingaskartgripi með því að hella
bræddum málmi í mót.
A kvöldin vom stórskemmtilegar
kvöldvökur ýmist með vinum okkar
í Mosverjum eða öðmm skátum frá
fjölmörgum löndum. Þá skemmtum
við okkur einnig vel þegar þekktir
tónlistarmenn kornu og spiluðu fyrir
okkur. Þáverandi forseti Islands
Olafur Ragnar Grímsson heimsótti
tjaldbúðimar okkar og leit m.a. við í
þjóðhátíðartjaldinu sem við höfðum
meðferðis. Þar buðum við upp á harðfisk
og Vestmannaeyjatónlist.
Landsmótið tókst vel til í alla staði og
viljum við þakka mótsnefnd fyrir frábært
skátamót og Björgunarfélaginu fyrir
liðlegheitin.
I skátunum eru engir
varamannabekkir til, þar eru allir
virkir þátttakendur
Skátarnir skrifa sjálfír
um Landsmót Skáta
María Fönn og Unnur Birna.
Það er ótrúlega gaman á Landsmótum í
skátunum . Við vorum með Mosverjum í
tjaldbúðum. Forsetinn kom líka til okkar
á heimsóknadaginn. A heimsóknadaginn
má fara í allar tjaldbúðimar, líka
til útlensku skátanna. Þá em flestir
með góðgæti handa gestunum t.d. Is,
kandíflos, nammi, súpu og fleira. Við
vöknum alltaf klukkan átta en síðasta
daginn fáum við að sofa hálftíma lengur.
A hverjum morgni var frjáls dagskrá,
þegar það var frjáls dagskrá mátti fara
út um allt (nema til annara tjaldbúða án
leyfis) á dagskránni var t.d. hægt að fara á
kanó, klifra á klifurvegginum, fara á söfn
og fleiri skemmtilegir hlutir . A hverju
landsmóti er nýtt þema, í fyrra var það
Heimsálfumar. Það var æðislega gaman.
A hvetju kvöldi var kvöldkaffi, þegar
það var kvöldkaffi fengum við kakó og
kex. Við eignuðumst flest nýja vini þar.
Sendiherra Bandarikjanna kom til okkar,
hann gaf öllum frábæru krökkunum í
Faxa nælur. Bertha, María Fönn og
Þuríður sömdu lag um RC kóla sem er
drykkur sem var til í sjoppunni.