Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Page 12

Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Page 12
Styrkur frá Ísíélagi Vestmannaeyja Guðbjörg Matthíasdóttir f.h. ísfélags Vestmannaeyja afhenti Skátafélaginu Faxa veglegan styrk þann lO.desember 2016. Skátafélagið Faxi færir ísfélagi Vestmannaeyja kærar þakkir fyrir og mun styrkurinn nýtast skátafélaginu vel til uppbyggingar á starfssemi sinni. A myndinni eru Kristinn Sigurðsson, Guðbjörg Matthíasdóttir, Frosti Gíslason, Armann Höskuldsson og Stefán Friðriksson. Hraunprýði og ttlagar Skálamir okkar í Skátastykkinu hafa fengið nöfn og hér eftir verður burstabærinn okkar sem Páll Zóphóníasson þáverandi félagsforingi hannaði kallaður Hraunprýði eftir gamla skála Skátafélagins sem stóð vestur í Styrkur irá Vestmanna- eyjabæ Elliði Vignisson bæjarstjóri f.h. Vestmannaeyjabæjar og Frosti Gíslason félagsforingi Skátafélagins Faxa undiirituðu nýverið undir samning þess efnis að Vestmannaeyjabær veitir félaginu styrk að upphæð einni milljón króna á ári næstu þrjú árin vegna viðhaldsframkvæmda á Skátaheimilinu við Faxastíg. Skátafélagið Faxi þakkar Vestmannaeyjabæ fyrir stuðninginn og aðstoð á liðnurn árum. © hrauni í þáverandi skátastykki. Skálamir sem Eimskip gáfu okkur eru nú kallaðir Útlagar til heiðurs elsta starfandi skátaflokki á íslandi. En hann samanstendur af skátum frá Vestmannaeyjum sem hafa hist í yfir 74 ár. Við höfum unnið að markvissum endurbótum á Hraunprýði með hjálp sjálfboðaliða í Faxa og víðar að. A næstunni munum við vinna að endurbótum á Útlagaskálunum til þess að gera þá tilbúna fyrir World Scout Moot 2017 sem haldið verður í júlí á næsta ári. Útgefið í desember 2016 Útgefandi: Skátafélagið Faxi Abyrgóarmaóur: Marinó Sigursteinsson Ritstjóri: Frosti Gíslason Ljósmyndir: Frosti Gíslason, Aimann Höskuldsson og Olafur Lárusson Prentun: Prentsmiðjan Eyrún

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.