Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Side 14

Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Side 14
world scout MOOt 2017 í Eyjum Stærsta skátamót íslandssögunnar verður haldið 25. júli til 2. ágúst á næsta ári, þegar yfir 5.000 skátar frá 80 löndum taka þá í hinu alþjóðlega skátamóti World Scout Moot. Mótið er fyrir þátttakendur á aldrinum 18- 25 ára. Mótssetning verður í Reykjavík þann 25. júlí en svo verður þátttakendum skipt upp í 11 tjaldbúðir sem dreifðar verða víðs vegar um landið. Mótið er opið fyrir allt ungt fólk á aldrinum 18-25 ára og ef þú lesandi góður hefur áhuga á þvi að taka þátt í mótinu þá getur þú það. Um 520 þáttakendur ásamt 50 manna starfsliði munu koma til Vestmannaeyja og dvelja í skátabúðum sem reistar verða í Skátastykkinu. Skátamir koma strax eftir mótssetningu og verða í Eyjum frá 25. júlí til 28. júlí. Hér munu þeir taka þátt í ijölbreyttri dagskrá sem skipulögð hefur verið af mótsstjóm mótsins. Skátafélagið Faxi undirbýr komu skátanna til Eyja í samsstarfi við mótsnefnd World Scout Moot og sér um að gera skátastykkið tilbúið til þess að taka á móti þessu ljölda skáta hingað til Eyja. Það er áhugavert og spennandi verkefni fyrir samfélagið i Eyjum að taka á móti ungu fólki frá öllum heimshomum og kynna fyrir þeim það sem eyjamar hafa uppá að bjóða. Þetta verður mikil kynning á Eyjunum og gott tækifæri fyrir okkur Eyjamenn að sýna okkur og kynna. Fyrir okkur í Skátafélaginu Faxa er mikilvægl að taka þátt í svona móti og um leið öðlast dýrmæta reynslu og kynna skátastarf enn betur í bæjarfélaginu okkar. Nánari upplýsingar rná finna á heimasiðu mótsins http:// worldscoutmoot.is og á facebook síðu Skátafélagins Faxa. Viltu hjálpa til í Skátastaríinu? Öflugt skátastarf er ekki mögulegt nema með aðkomu fúllorðinna sjálfboðaliða. Við sem vinnum sem fullorðnir sjálfboðaliðar vitum hversu gefandi þetta starf er, bæði fyrir bömin og okkur. Við sjáum einnig hversu nauðsynlegt það er að halda uppi ábyr- gu og flottu skátastarfi. Sjálfboðastarf í skátunum felst i afmörkuðum verkefnum, skilgreindum störfum eða annars konar vinnuframlagi sem einstaklingur tekur að sér af fúsum og frjálsum vilja í þágu skátanna. Sem betur fer er ijöldi sjálfboðaliða sem tekur að sér hin ýmsu verk. Ef þú ert fullorðinn og langar til þess að taka þátt í skemmtilegu og gefandi starfi, í fallegu um- hverfi og með góðu fólki þá emm við að leita að þér. Það væri vel þegið ef þú myndir hafa samband við okkur og fjölbreytt verkefni bíða spennt eftir úrlausnum. Mögulegt er að aðstoða á fjölbreyttan hátt. Flokks- eða sveitarstarfið • Aðstoða við viðburði (hvaða viðburði, hvaða verkefni) • Útilegur, hellaferðir, gönguferðir, hjólaferðir... • Aðstoða við dagskrá á flokksfundum • Akstur, flutningur, matur, dagskrá, fjáröflun, búnaður, kennsla, ráðgjöf.... Félagseignir, uppbygging og viðhald • Verkefni tengd skátaheimili • Verkefni tengd skátaskálum • Verkefni tengd útivistarsvæði • Verkefni tengd útbúnaði skátafélags Félagsstarfið • Aðstoða við félagsviðburði t.d.skátamót, útilegur, skrúðgöngur o.fl. ofl. • akstur, flutningur, matur, dagskrá, uppsetning, frágangur, fjáröflun, búnaður... • Fjáraflanir • Samskipti við sveitarstjóm • Eignastjóm (skátaheimili, skáli, birgðir...) • Seta í félagsstjóm • Sveitarforingi • Ihlaupaforingi

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.