Skátablaðið Faxi - 01.12.2008, Page 5
_________@________
Slcíðaferóalag
helgina 17.-20. janúar 2008
Fimmtudagur:
Þessi ferð byrjaði með því að við
fórum með seinni ferð í Herjólf, Svo
þegar við komum til Þorlákshafnar tók
Mummi á móti okkur, hann fór með
okkur í skátaheimilið á Selfossi sem var
mjög gaman.
Föstudagur:
Við byrjuðum daginn snemma,
Mummi kom og náði í okkur og fór með
okkur til Hveragerðis þar sem hann átti
eftir að pakka niður! Svo fórum við að
hitta strákana hans Mumma þá Bjarka,
Brynjar, Danna og Atla.
Þeir voru mjög hressir og skemmti-
legir. Svo var lagt af stað í þessa rosa-
legu ferð. Við vorum með svolítið mikið
af farangri þannig að það var svolítið
þröng í bílum. Sólveig og Guðrún María
sátu í skottinu, og það var svo þröngt
um þær að þegar allt var tilbúið þá sáu
þær ekki hvor aðra fyrir farangri þó þær
sætu hlið við hlið, svo ekki sé minnst á
það að ekki var búið að þrífa bílinn hans
Mumma nýlega þannig að sætin aftur í
skotti voru öll útí sandi og það var líka
mjög mikil fiskifyla þar.
Strákarnir og Bryndís Yr voru á öðr-
um bíl og var líka mjög gaman hjá þeiin,
þar sem strákarnir þurftu að stoppa á
hverri einustu sjoppu til að pissa eða
gera eitthvað annað.
Þegar komið var til Akureyrar eða
EIKEY eins og Mumini orðaði það, þá
fórum við í sundlaugina, Erna, Rósa,
Bryndís, Atli, Bjarki, Brynjar, Mummi
og Guðrún Rós dóttir hans fóru í sund,
en Sólveig, Leifa og Guðrún María
kíktu í bæinn að skoða.
Þegar allir voru búnir í sundi og
bæjarferð fórum við út að borða á
Greifanum, þegar allir voru orðnir sadd-
ir og sælir var ferðinni heitið að finna
skálann sem við fengum lánaðan hjá
skátafélaginu Klakki. Það var svolítil
rússíbani að reyna finna hann en eftir
rúman einn og hálfann tíma fundum við
hann.
Skálinn sem gist var í heitir Valhöll
sem er risastór skáli með mjög flott
útsýni yfir alla Akureyri og svæðin í
kring. Það var eitt herbergi niðri sem
Erna, Leifa og Rósa sváfu í, en risa stórt
svefnloft fyrir ofann þar sem Danni,
Bjarki og Brynjar sváfu öðru megin á og
hinum megin sváfu Guðrún María,
Sólveig, Bryndís ýr, Atli, Guðrún Rós
og Mummi.
Um kvöldið þegar allir voru búnir að
koma sér fyrir var bara svona kósý
kvöld þar sein allir spiluðu saman og
Alma, Steinunn og Þóra komu i heim-
sókn til okkar.
Laugardagur:
Vaknað var snemma til að gera sig
tilbúin til að fara á skíði, en það tók sinn
tíma. Þegar allir voru klárir var ferðinni
heitið uppí Hlíðarfjall, Rósa og Leifa
fóru á skíði, en Sólveig, Guðrún og
Erna fóru á snjóbretti. Strákarnir hans
Mumma voru nú það elskulegir að
hjálpa Sólveigu og Guðrúnu í byrjun, en
þar sem þær voru meira og minna á
hausnum alla ferðina!!
Eftir skíðin fórum við aftur í sund, og
þegar við vorum öll orðin hrein og fín
fórum við á Hamborgarabúlluna og
fengum okkur að borða.
Þegar við vorum orðin södd og sæl
fórum við aftur upp í skála þar sem var
alveg svakalega gaman þar var spilað og
Herdís kom í heimsókn og rændi Rósu.
Sunnudagur
Lagt var á stað í hádeginu þegar
skálinn var orðinn hreinn, en stelpurnar
voru svakalega lengi að græja sig svo
við misstum næstum því af Herjólfi.
Ferðin suður gekk ágætlega nema allir
voru að farast úr Harðsperrum!!!
En náðum Herjólfi í tæka tíð.
Þessi ferð var alveg frábær og okkur
hlakkar til að fara aftur svona ferð á
næsta ári! Takk kærlega fyrir okkur!
Óskum öllum bæjarbúum
GLEÐILEGRA JÓLA
Þökkum samskiptin á árinu sem er aö líða
£ ^ Jaslcignasafa | sMpasafa | Iryggingar
cHcimacv
___> pjónustuver /,
UQAtuhvaqi 10 | AJmi t+81 11H \ www.hsdmasiq.nid