Skátablaðið Faxi - 01.12.2008, Síða 9
lltilega
sem var farin þann
10.-12. október
Við mættum kl. 6 upp í Skátastykki
hress og kát og tilbúin fyrir útileguna.
Þá voru okkur kynntar reglur útilegunn-
ar. Utilegan gekk út á það að við fengum
pening í upphafi og áttum aðeins að
kaupa það sem við nauðsynlega þyrfitum
á að halda og var verið að kenna okkur
að hætta taka allan óþarfa með okkur í
útilegur. Við þurftum að borga fyrir
allan matinn sem við fengum og
mataráhöldin og allt svo leiðis. Fyrsta
verkefnið okkar var að koma okkur fyrir
og borða kvöldmatinn. Svo var haldin
skemmtileg kvöldvaka þar sem við
sungum hátt og mikið. En þegar fór að
líða á kvöldvökuna kom Erna og sagði
að Rósa hefði horfið á leiðinni upp í
stykki og fórum við þá öll út í einum
grænum. Þegar við komum út beið eftir
okkur umslag sem á stóð að Rósu hefði
verið rænt og þyrftum við að borga 50
kr. fyrir hverjar 10 mínútur sem við
vorum að leita og 500 kr. til þess að
leysa hana úr haldi. Það tók okkur smá
tíma að finna hana og voru sumir orðnir
frekar hræddir en sem betur fer fundum
við Rósu hjá ræningjanum heila að húfi.
Þá var flestum orðið frekar kalt og við
fórum inn og svo fljótlega að sofa eftir
það.
Við vöknuðum kl. 8 laugar-
dagsmorguninn og fórum fljótlega út í
ratleik. I leiknum löbbuðum við niðrí
klauf og leistum ýmis verkefni á leið-
inni þangað, og svo aðeins til þess að
njóta útsýnisins fyrst við vorum komin
svona langt þá löbbuðum við upp á
Stórhöfða. Þegar við komum til baka
kveiktum við eld og grilluðum pylsur,
hike brauð og sykurpúða í efltirrétt. Eftir
þennan skemmtilega hádegismat fórum
við í sund og skemmtum okkur konung-
lega þar.
Þegar við komum niðrí skátaheimili
fengum við bakarísmat frá Arnóri
Bakara. Við fengum svo að tálga og
sumir fóru í að undirbúa pizzuna sem
við bökuðum í kvöldmat sem var rosa-
lega skemmtilegt.
Efltir matinn var haldin svakalega
skemmtileg kvöldvaka og var hver
hópur með leikrit og sungum við mikið.
Þegar það var búið var búin kosý að-
staða með dýnum á gólfinu fyrir framan
sjónvarpið og horfum við á mynd og
fengum nammi og gos með, það var það
rosalega skemmtilegt. Eftir myndina
fengum við aðeins að flflast í skáta-
heimilinu og fórum við svo að sofa glöð
og sæl með kvöldið.
Um morguninn var allsherjar tiltekt
og frágangur í skátaheimilinu og fóru
við svo heim þreytt og glöð um hádegið
eftir skemmtilega útilegu.
Skátakveðjur
Flækjurnar, S.O.S,
Stelpurnar og Gleimereyarnar.
Hörður, Rikki
og Hjálmar
Valbjörg og
Inga Lára