Skátablaðið Faxi - 01.12.2008, Blaðsíða 6
Landsmót2008
Hér verður sögð sagan af landsmóts-
förum. Landsmót skáta er haldið ijórða
hvert ár og í ár voru því tjögur ár síðan
landsmót var haldið síðast. I ár var
mótið haldið á útivistasvæði við
Akureyri nánara tiltekið á Hömrum. Frá
Eyjum fór góður hópur skáta á mótið
sem haldið var 22.-29. júlí. Þá hefst
ferðasagan
Þriðjudaginn hófst langþráð ferðalag
þar sem mæting var í Herjólf eld-
snemma morguns, var mikill tilhlökkun
í faraldsfólkinu og allir búnir að pakka
niður kvöldinu áður svo að ekkert
gleymdist. Þegar í Þorlákshöfn var
komið beið rútan eftir okkur og í henni
voru hressir skátar frá Selfossi, eða
Fossbúar eins og þeir kalla sig.
Skátarnir héðan áttu eftir að deila tjald-
búð með þeim um viku tíma. Rútuferðin
gekk án allra áfalla og skiluðu skátarnir
sér á leiðarenda síðar um daginn og
hófst þá vinnan við að koma upp tjöld-
um. Það gekk upp og ofan þar sem
miklu meiri áhugi var hjá skátunum að
fara að sulla í vatninu rétt hjá búðunum
en við foringjarnir leyfðum það ekki
þann daginn. Mótsetning var haldin
hátíðleg þar sem sungnir voru söngvar
og kveiktur varðeldur á skemmtilegan
hátt, þ.e.a.s. það var búið að hlaða
varðeld og eldurinn sem kveikti upp í
varðeldinum kom fljúgandi frá fjallinu.
Það var alveg svakalega flott að sögn
viðstaddra. Farið var snemma að sofa
þetta kvöld.
Miövikudagurinn þá voru allir vaktir
með látum eftir að hafa sofið fyrstu nótt-
ina sína. Allir voru vel úthvíldir nema
Páll ásamt skátum
foringjarnir þeir sváfu víst eitthvað tak-
markað vegna kulda. Þessi dagur var
frekar langur og erfiður þar sem
dagskráin á hálfu mótshaldara var ekki
mikill þennan dag og gert er ráð fyrir að
skátarnir ynnu í tjaldbúðinni. Vinnan
sem fór fram í tjaldbúðinni var sú að
búið var til flott hlið, sem allir þeir sem
komu inn á svæðið, til að fá sér
kakóbolla, urðu að ganga í gegnum
síðan var auðvitað var búin til flagg-
stöng, þetta árið vorum við ekkert í
neinu kappi við önnur félög um að hafa
stærstu flagstöngina. Það sem bjargaði
deginum hjá skátunum var að þau fengu
leyfi til þess að fara út í vatnið sem var
við hliðina á tjaldstæðinu og eflaust fóru
einhverjir í opnu dagskrána.
Um kvöldið var svo svakaleg
stemmning þar sem enginn annar en Páll
Oskar tryllti lýðinn með söng sínum
„Allt fyrir ástina“ á svaka stórdansleik.
Farið var inn í tjaldbúð um miðnætti og
allir skátar sofnuðu eftir viðburðaríkan
dag.
Fimmtudagurinn þá lá leið allra skát-
anna í bæinn þar sem vatnsíþróttirnar
fóru fram þar kepptu flokkarnir í hinum
ýmsu leikjum þar á meðal vatnasafaríi,
knörr, flekkagerð og vatnsbardaga.
Öllum hópunum fannst mjög gaman að
fá að sulla í vatni enda alveg svakalega
fallegt og gott veður. Við fáum líka
sögur hjá flokkunum um hvað þeim
fannst skemmtilegt.
Föstudagurinn þá heldu skátarnir í
Víkingaþorpið þar sem unnin voru ýmis
verkefni í jurtasetri, tré- og leður-
smiðju, eldsmiðju, járnsmiðju og menn-
ingartorgi. Fáum eina sögu frá einhverj-
um sem var að vinna að þessu.
Torgadagskráin var kvöldvaka þar sem
sungnir voru hástöfum skátasöngvar.
Laugadagurinn það var dagurinn sem
kynning á heimabyggð fór fram, þar
kynntum við eldíjöllin, lundapysju-
veiðar, eftirsóttan tíma hér fyrir börn,
síðan buðum við upp á fiskibollur frá
Grími og líka var boðið upp á lunda-
veiði þar sem við vorum með lundaháfa.
Fólk gat fangað lundabangsana okkar í
háf, mikið var hlegið af því, en lundinn
er ekki á hverju strái fyrir norðan.
Önnur félög buðu upp á allskonar
viðburði þar sem kynning var á þeirra
heimabæjum, en með því flottasta
fannst okkur var það sem við sáum hjá
Hvergerðingum eða Strók eins og
skátafélagið þar kallar sig, þau voru
með jarðskjálftahermi til þess að sýna
Páll Óskar skemmti á Landsmótinu