Skátablaðið Faxi - 01.12.2008, Síða 11
fróðlegt og skemmtilegt.
Takk fyrir okkur.
Fálkaskátar á fímmtudögum
Við í fimmtudagshópnum erum 9-11
ára og höfum einnig verið að innrétta
herbergi og mála í allan vetur, en það
sem við ætlum að gera eftir áramót er að
fara í skátaútilegu þar sem við höfum
því miður ekki farið í fyrr. En það er
búið að vera mjög gaman hjá okkur og
ætlum við að hafa en skemmtilegra eftir
áramót. í þessari sveit eru þrír
skátaflokkar og þeir eru:
Skrúfurnar
Við heitum skrúfurnar og við erum 9
sætar stelpur við erum 9-10 ára gamlar,
við eigum fallegasta og kosýasta her-
bergið sem er Qólublátt á litinn. Við
völdum litin á það sjálfar. Við deildum
herbergi með Flækjunum og okkur
finnst mjög gaman í skátunum útaf því
þar kynnist maður nýjum og hressum og
skemmtilegum krökkum.
Við lærum leiki og lærum margt nýtt.
En við ætlum að fara í útilegu og gera
eitthvað skemmtilegt og það ættu allir
að vera í skátunum.
Skátakveðja, Skrúfurnar
Jóhanna, Sigþóra, Margrét Júlía, Rúna
Dís, Eva, Bella, Sirrý, Aldís og Kristín
Örninn
Við höfum verið að mála, og undirbúa
herbergið okkar fyrir málningu, svo
höfum við þurft að hlaupa út í
Húsasmiðju og kaupa meiri málningu
og vera á undan hinum flokkunum að
hlaupa þangað.
En það sem okkur langar að gera eftir
áramót er að fara í sund, tálga, fara í úti-
legu, klettaklifur, síga, spranga, báts-
ferð, hjólaferð og göngu. Við vonum að
við getum gert alla þessa hluti eftir
áramót.
Skátakveðja, Örninn
Haukur og Friðrik Agúst
Súperskátar
Við erum búin að gera heilan helling á
árinu. Við fórum á Landsmót skáta á
Akureyri og þurftum við að keyra í 6
klukkutíma sem var ekki gaman. í
sumum tjöldum sem Faxi átti voru
kóngulær.
Við súrruðum upp í Skátastykki þar
sem við súrruðum rólu en við byrjuðum
á að æfa okkur að súrra inni með
grillpinnum.
En við fengum að mála herbergið
okkar og við máluðum það Lime grænt.
Skátakveðja, Súperskátar
Jóna María, Didda og Asa
Súparskátar
Gleymerey
SOS