Fréttablaðið - 03.01.2018, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 3 . j a n ú a r 2 0 1 8
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
sKoðun Friðrik Már Guðmunds-
son vill réttar upplýsingar á
borðið. 11
sport Handboltalandsliðið
mætir Japönum í kvöld í sínum
síðasta leik fyrir EM í hand-
knattleit. 18
Ókeypis kynningartími fyrir ungt fólk
Ókeypis kynningartími • 9. janúar
skráning á dale.is
Copyright © 2018 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. GEN_Ad_121817_iceland
HM 2018 „Miðað við þær umsóknir
sem eru komnar er líklegt að kvót-
inn bara dugi okkur,“ segir Klara
Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ,
um eftirspurn hjá Íslendingum eftir
miðum á leiki Íslands á HM í knatt-
spyrnu.
Stuðningsmenn Íslands fá
átta prósent af miðum sem fara í
almenna sölu úthlutuð. Skotið hefur
verið á að það geti þýtt að miðar
eyrnamerktir Íslendingum verði um
3.200 talsins á hvern leik Íslands.
Klara hefur greint frá því að
Knattspyrnusambandið hafi farið
þess á leit við FIFA að fá fleiri miða
fyrir Íslendinga. Hún viðurkennir að
vera hóflega bjartsýn. „Þeir lofuðu
að skoða málið,“ segir hún um fund
sem hún átti með fulltrúum FIFA
um annað málefni í desember.
Ósk KSÍ um fleiri miða á EM
í Frakklandi skilaði á endanum
árangri en Klara segir málið hafa
tekið margar u-beygjur áður en fleiri
miðar fengust.
Klara segir aðspurð að ekki
sé útlit fyrir að miðafjöldi verði
vandamál í öðrum og þriðja leik
Íslands á mótinu. „Miðað við þær
upplýsingar sem koma frá FIFA þá
er þetta vandamál í fyrsta leiknum.
Hinir tveir leikirnir í riðlinum eru
ekki vandamál,“ segir hún en Ísland
leikur fyrst við Argentínu, þá Níger-
íu og loks Króatíu. Flestir hafi sótt
um miða á fyrsta leikinn, svo annan
en fæstir á þriðja leikinn.
Þetta bendir til þess að eftir-
spurnin sé minni en sem nemur
þeim 3.200 miðum sem áætlað
hefur verið að Íslendingum séu
eyrnamerktir. Klara bendir í því
samhengi á að nokkuð virðist um
að Íslendingar hafi fengið miða á
fyrri stigum miðasölunnar. Hægt er
að sækja um miða til 31. janúar. – bg
Nóg af miðum á leikina
við Nígeríu og Króatíu
FIFA gerir ekki ráð fyrir að Íslendingar klári þá miða sem ætlaðir eru stuðnings-
mönnum liðsins á HM. Eftirspurnin er langmest á fyrsta leikinn í Moskvu.
Eftirspurnin virðist vera
minni en sem nemur þeim
3.200 miðum sem ætlaðir
eru Íslendingum.
KjaraMál Hjúkrunarfræðingar á
Akureyri eru verr launaðir en hjúkr-
unarfræðingar við Landspítalann í
Reykjavík. Munurinn nemur um sex
til átta prósentum.
Hildigunnur Svavarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkra-
húsinu á Akureyri (SAK), segir
stofnunina ekki vera samkeppnis-
hæfa um laun eins og staðan er
núna.
„Við höfum brugðist við kalli um
að bæta við auka höndum vegna
álags og því farið þá leið að ráða
fleiri og ekki fylgja launaþróun-
inni,“ segir Hildigunnur. Hún segir
SAk þurfa á annað hundrað millj-
ónir króna til að laga launabilið
milli stofnananna.
„Þetta er algjörlega ótækt,“ segir
Njáll Trausti Friðbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins. „Ríkis-
stofnanir hér á landi eiga að búa við
jafnræði óháð staðsetningu.“
– sa / sjá síðu 8
Á verri launum
en kollegarnir í
höfuðborginni
lÍFið Rögnvaldur
Skúli Árnason
fékk nokkra
daga til að
fullkomna mál-
verkið sem var á
allra vörum um
áramótin. 24
plús sérblað l FólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Landsmenn hafa verið gladdir af óvenju stórum mána í upphafi árs. Fullt tungl var aðfaranótt gærdagsins en þar var á ferðinni svokallaður ofurmáni. Slíkt fyrirbæri orsakast af sporöskju-
laga braut tunglsins um jörðina og myndast þegar tunglið er eins nálægt plánetunni og það verður. Næsta jarðnánd tunglsins er í næsta jólamánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
0
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
1
-8
C
E
8
1
E
A
1
-8
B
A
C
1
E
A
1
-8
A
7
0
1
E
A
1
-8
9
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K