Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2018, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 03.01.2018, Qupperneq 2
Veður Austan- og norðaustanátt í dag, allhvöss við suðausturströndina, annars hægari vindur. Skýjað og él suðaustan- og austanlands, en bjart veður vestan til á landinu. sjá síðu 18 Hátíðirnar kvaddar Fjölmargir einnota hlutir skapaðir til jóla- og áramótahalds enduðu í ruslatunnum að hátíðarhöldum loknum. Björn H. Haraldsson, forstjóri Sorpu, segir að almennt sé fólk duglegt við að flokka rusl sem til fellur en hins vegar hafi verið talsvert um það að skrautbönd hafi endað í pappa- tunnum ásamt gjafapappírnum. Slíkt hafi skapað lítils háttar vesen en gjafaböndin eiga heima með almennu sorpi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR BRIDS SKÓLINN Námskeið á vorönn ... BYRJENDUR 22. janúar 8 mánudagar frá 20-23 VÖRNIN 24. janúar 5 miðvikudagar frá 20-23 • Byrjendanámskeið: Byrjað er alveg frá grunni og farið vel yfir undir­ stöður hins vinsæla Standard­sagnkerfis. Það er fólk á öllum aldri sem sækir skólann og ekkert mál að mæta stakur/stök. • Varnarnámskeið: Fimm kvölda pakki þar sem farið er vel yfir sam­ skipta reglurnar í vörn: útspilin, kall/frávísun, hliðarkall og talningu. Hvernig eru reglurnar og hvenær gilda þær? • Bæði námskeiðin fara fram í Síðumúla 37, Reykjavík. Upplýsingar og innritun í síma 898-5427 og á netinu bridge.is/fræðsla ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Dómstólar Karlmaður á fimmtugs- aldri var í Héraðsdómi Norðurlands eystra rétt fyrir áramót dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi og til að greiða samtals um 518 þúsund krónur í máls- og lög- mannskostnað. Var maðurinn dæmdur fyrir þjófn- að, með því að hafa í lok mars í fyrra brotist inn í húsakynni Hjálpræðis- hersins á Akureyri og stolið þaðan velferðarsjóði trúarsamtakanna auk kaffisjóðs þeirra en áætlað er að hann hafi haft upp úr innbrotinu um sex þúsund krónur. Maðurinn neitaði sök í málinu fyrir dómi og því þurfti að ákveða aðalmeðferð í málinu. Við aðalmeð- ferð breytti maðurinn afstöðu sinni til ákærunnar og játaði skýlaust brot sitt. Sakaferill mannsins samkvæmt dómi Héraðsdóms hafði verið nær óslitinn frá árinu 1990 til ársins 2005. Einnig hafði hann verið dæmdur ítrekað á árunum 2013 til 2017. Hæstiréttur dæmdi manninn í apríl 2017, fyrir fjögur þjófnaðarbrot, til- raun til þjófnaðar, fjársvika og nytj- astuldar auk ólögmætrar meðferðar á fundnu fé, í fjögurra mánaða fangelsi. Þegar brotaferill mannsins var skoðaður var ákveðið að hann sæti í fangelsi í tvo mánuði. Auk þess þarf hann að greiða skipuðum verjanda sínum 358 þúsund krónur, 139.000 krónur í ferðakostnað auk 21.368 króna í útlagðan kostnað. – sa Fangelsisvist fyrir að stela klinki frá Hjálpræðishernum viðskipti Tvær stærstu líkams- ræktarkeðjur landsins áforma að opna nýjar stöðvar fyrir haustið. For- svarsmönnum þeirra ber saman um að mikill uppgangur sé í geiranum og að korthöfum fjölgi ár frá ári. Björn Leifsson, eigandi World Class, segir að undanfarin tvö ár hafi fjölgun korthafa numið 20 prósentum, hvort ár. World Class tók um áramótin við rekstri Átaks-stöðvanna á Akureyri. Í haust stendur til að taka í notkun nýja stöð sem verið er að byggja á Völlunum í Hafnarfirði. Um verður að ræða fimmtándu World Class- stöðina en hún verður um 2.200 fermetrar. Þá segir Björn á teikni- borðinu að byggja við stöðina í Mos- fellsbæ. „Það er allt að gerast,“ segir hann. Björn rekur þessa aukningu til nokkurra þátta. Hann bendir á að fólki fjölgi hratt á höfuðborgarsvæð- inu. Önnur ástæða sé sú að á hverju ári bætist við kúnnahópinn heill árgangur af ungu fólki sem hreyfi sig. Þá gengur fólk síður úr skaftinu fyrir aldurs sakir. „Þegar ég var að byrja, fyrir 33 árum, voru þeir ekki eldri en þrítugir sem stunduðu þetta. Nú er svo komið að hjá mér er töluvert af fólki sem er komið yfir áttrætt.“ Hann segir aðsóknina í heita sali sífellt að aukast og að salir hitaðir með innrauðum geislum hafi notið sérstakra vinsælda. Tveir slíkir salir séu með þannig búnaði í Faxafeni, þar sem Reebok opnaði stöð í nóv- ember og að slíkur salur verði einnig í Lambhaga. „Þetta er ekki eins og að labba inn í sjóðandi gufubað, heldur gengur þú inn í þægilegan hita. Þú finnur fyrir hitanum eins og þú sætir í sólbaði,“ útskýrir hann. Líkamsræktarkort í World Class kostar 6.840 krónur á mánuði en viðskiptavinurinn er þá bundinn í tvo mánuði. Það gera ríflega 82 þúsund krónur á ári. Innifalinn er aðgangur að öllum stöðvum World Class og sex sundlaugum. Náms- menn fá betri kjör, gegn framvísun skólakorts. Tólf mánaða áskrift að lík- amsræktarstöðvum Reebok, og þremur sundlaugum, kostar 5.840 krónur á mán- uði, eða um 70 þúsund krónur á ári. Hægt er að kaupa áskrift án bindingar fyrir 6.540 krónur á mánuði, eða um 78 þúsund krónur. Báðar stöðvar bjóða upp á fjölbreytt úrval opinna tíma fyrir korthafa. baldurg@fretta bladid.is Opna nýjar stöðvar í líkamsræktaræði Bæði World Class og Reebok fitness undirbúa fjölgun stöðva en næsta haust munu þessar stærstu líkamsræktarkeðjur landsins halda úti 22 stöðvum. Stjórn- endur rekja uppganginn til fólksfjölgunar og vitundarvakningar um hreyfingu. Að sögn Björns í World Class hefur korthöfum fjölgað um 20 prósent tvö ár í röð. Hann stefnir á opnun 15. stöðvarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANdRI MARINó Þegar ég var að byrja, fyrir 33 árum, voru þeir ekki eldri en þrítugir sem stunduðu þetta. Björn Leifsson, eigandi World Class 6.000 krónur er það sem þjófurinn hafði upp úr krafsinu. stjórnmál „Þetta verða alþingis- menn, ég geri ráð fyrir að þarna verði ráðherra, grasrótin, ungliðar. Þarna verður fókusað á ábyrgð stjórnmála- flokkanna í framhaldinu,“ segir Kol- brún Halldórsdóttir, fyrrverandi ráðherra. Hún verður fundarstjóri á fundi sem allir stjórnmálaflokkarnir standa að um #metoo sem fram fer 31. janúar á Grand Hóteli. Tilgang- urinn er að leggja drög að aðgerða- áætlun sem flokkarnir geta notað í sínu starfi. Það er ekki algengt að þeir standi saman að slíkum atburði. „Ég held að þetta sé svolítið sérstakt, það er alveg rétt,“ segir Kolbrún. – jhh Ræða næstu skref í #metoo Kolbrún Halldórsdóttir 3 . j a n ú a r 2 0 1 8 m i ð v i k u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 3 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 3 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 1 -9 1 D 8 1 E A 1 -9 0 9 C 1 E A 1 -8 F 6 0 1 E A 1 -8 E 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 3 2 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.