Fréttablaðið - 03.01.2018, Síða 6

Fréttablaðið - 03.01.2018, Síða 6
H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Umsóknarfrestur til 31. janúar Þróunarsjóður námsgagna Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna. Forgangsatriði sjóðsins fyrir árið 2018 eru þrjú: námsefni fyrir framhaldsskóla, námsgögn fyrir innflytjendur vegna tungumálakennslu og forritun fyrir byrjendur. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2018, kl. 16:00. Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á. Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna hefur ákveðið að hækka styrkupphæðir sjóðsins og er nú hægt að sækja um styrk að hámarki 2,0 milljónir króna. Umsóknargögn er að finna á www.rannis.is. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Jón Svanur Jóhannsson, sími 515 5820, jon.svanur.johannsson@rannis.is Stjórnmál Frestur til að skila fram­ boði til leiðtogakjörs Sjálfstæðis­ manna í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar rennur út 10. janúar. Þeir Sjálfstæðismenn sem Frétta­ blaðið ræddi við og hafa áhuga á framboði eru sammála um að eins konar störukeppni standi yfir og menn bíði eftir framboðsyfirlýsing­ um hver frá öðrum. Áslaug María Friðriksdóttir, sitjandi borgarfulltrúi, hefur þegar lýst því yfir að hún gefi kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Kjartan Magnússon er sagður hringja mikið í flokksfélaga sína þessa dagana en Halldór Hall­ dórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér. Margir þeirra sem orðaðir eru við framboð eru búsettir utan borgarinnar eða hafa reynslu af sveitarstjórnarpólitík utan Reykjavíkur. Meðal þeirra eru Eyþór Arnalds, fyrrverandi oddviti flokksins í Árborg, sem er nú sterklega orðaður við framboð; Halla Tó m a s d ó t t i r , f y r r v e r a n d i forsetafram­ bjóðandi, sem búsett er í Kópavogi og Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður læknamiðstöðvar­ innar Klíníkurinnar og fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ. Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi alþingis­ maður Suðurkjördæmis, hefur einnig legið undir feldi frá því fyrir jól. „Ég hef mjög mikinn áhuga á borg­ armálum, það er ekkert leyndarmál,“ segir Eyþór aðspurður um framboð en vill þó ekki upplýsa um áform sín. Halla Tómasdóttir játar því aðspurð að hafa fengið fjölda áskor­ ana um framboð en segist lítið leiða hugann að framboðsmálum. Ásdís Halla þykir hafa sýnt á sér nýja og ferska hlið með útgáfu bókarinnar Tvísaga og Unnur Brá þótti standa sig afar vel sem forseti Alþingis þrátt fyrir að það hafi ekki skilað henni nægilega ofarlega á lista til að ná kjöri í nýafstöðnum þingkosn­ ingum. Margir nefna einnig nafn Jóns Karls Ólafs­ sonar, framkvæmda­ stjóra hjá Isavia og formanns Ungmenna­ félagsins Fjölnis. „Ég held að það sé verið að hringja í voða marga og það hefur verið hringt í mig,“ segir Jón Karl aðspurður um framboð. „Þetta eru stórar ákvarðanir sem hefðu miklar breytingar í för með sér,“ segir Jón Karl en útilokar ekki framboð. Svanhildur Hólm, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, og Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, hafa bæði verið nefnd sem oddvitaefni fyrir borgina. Svanhildur hefur þegar lýst því yfir að hún ætli sér ekki fram. Borgar Þór Ein­ arsson vildi ekki tjá sig um framboð. Sirrý Hallgrímsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður menntamálaráðherra í tíð Illuga Gunnarssonar, er einnig sögð hafa áhuga á borgarmálunum en fylgja Áslaugu Friðriksdóttur að málum. Þá hefur Þorbjörg Helga Vigfús­ dóttir mjög verið orðuð við endur­ komu í borgarmálin ýmist fyrir Sjálfstæðisflokkinn eða Viðreisn. Kunnugir segja hana þó njóta sín mjög í atvinnurekstri sínum og telja hana ólíklega í framboð. Ákvörðun Varðar um leiðtogakjör og valnefnd fyrir önnur sæti listans var umdeild. Þeir sem mótmæltu henni töldu leiðina ólýðræðislega. Forysta Varðar taldi hana hins vegar nauðsynlega til að auka breidd og komast hjá einsleitni sem hafi ein­ kennt lista flokksins í borginni und­ anfarin kjörtímabil. adalheidur@frettabladid.is Störukeppni Sjálfstæðismanna Eyþór Arnalds, Ásdís Halla Bragadóttir og Jón Karl Ólafsson orðuð við framboð í leiðtogakjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Framboðsfrestur rennur út eftir viku. Enginn hefur enn skilað inn framboði til Varðar. Ég held að það sé verið að hringja í voða marga og það hefur verið hringt í mig. Þetta eru stórar ákvarðanir sem hefðu miklar breytingar í för með sér. Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Isavia og formaður Fjölnis ÍSrAEl Afrískum hælisleitendum í Ísrael hefur verið gert að yfirgefa landið áður en aprílmánuður geng­ ur í garð. Hælisleitendur sem ekki verða við því eiga á hættu að enda í fangelsi. Þetta felst í tilskipun ísraelskra stjórnvalda sem tók gildi um ára­ mótin. Í tilskipuninni felst einnig að hælisleitendurnir geta fengið allt að 3.500 dollara, andvirði tæplega 365 þúsund íslenskra króna, fyrir að yfirgefa landið. Tilskipunin nær ekki til barna og aldraðra eða þeirra sem lent hafa í þrælahaldi eða mansali. Fólkið mun hafa val um hvort það flyst aftur til heimaríkis síns eða þriðja ríkis sem vill taka við því. Talið er að um 38 þúsund ólög­ legir innflytjendur séu nú í Ísrael. Aðgerðin hefur verið gagnrýnd af alþjóðastofnunum og mannrétt­ indasamtökum. – jóe Ísraelar borga flóttamönnum fyrir að fara Matartími á leikskóla fyrir eritresk flóttabörn í Tel-Avív. Tilskipunin nær ekki til barna. NORDICPHOTOS/AFP ÍrAn Æðsti klerkur Írans, Ali Kham­ enei, segir að mótmæli í landinu undanfarna daga eigi rætur að rekja til óvina landsins. Óeirðirnar hafa kostað minnst 22 mannslíf. „Undanfarna daga hafa óvinir Írans notað peninga, vopn, pólitík og leyniþjónustur til að skapa óeiningu og vandræði fyrir Íslamska lýðveldið Íran,“ segir í yfirlýsingu á heimasíðu klerksins. Í yfirlýsingunni er ekki vikið sérstaklega að því hverjir óvin­ irnir eru en úr henni má lesa að rætt sé um Ísrael, Sádi­Arabíu og Banda­ ríkin. Mótmælin hófust 28. desember síðastliðinn í næststærstu borg landsins, Mashhad. Í upphafi beind­ ust þau að efnahagsástandi landsins en breyttust síðar í almenn mótmæli gegn stefnu stjórnvalda. Enn sem komið er hefur enginn fallið í höfuðborginni Teheran en hátt í 500 manns hafa verið hand­ teknir þar í borg. Stjórnvöld segja að ástandið í borginni sé öruggt en Varðsveit byltingarinnar, sérsveit æðsta klerks landsins, fer fremst í flokki í baráttunni gegn mótmæl­ endum. Auk mótmælafunda víðsvegar um landið hafa stuðningsmenn Kha­ meinei og forseta landsins, Hassan Rouhani, komið saman þeim til stuðnings. Dæmi eru um að ein­ staklingum úr ólíkum fylkingum hafi lent saman. Utan landsteinanna hafa Íranir og íranskir flóttamenn komið saman til að sýna mótmælendum heima fyrir samstöðu. Ali Shamkhani, ritari öryggisráðs landsins, varaði Sádi­Arabíu við því að skipta sér af málum landsins. Íran gæti svarað fyrir sig. – jóe Æðsti klerkur bendir á óvini landsins UmHVErFISmál Eftirliti með fisk­ eldisfyrirtækjum er ábótavant að mati Christians Gallo, vistfræðings hjá Náttúrustofu Vestfjarða. Hann segir að mengun vegna uppsafnaðs úrgangs frá fiskeldi sé fylgifiskur slíkrar starfsemi, en þó ekki mesta áhyggjuefnið. „Það sem veldur mestum áhyggj­ um er laxalúsin, sjúkdómar í eldislaxi og það að eldislax sleppur úr kvíum. Og eftirlit með fiskeldi virkar ekki vel þegar fyrirtækin ákveða að fylgja ekki ákveðnum alþjóðlegum stöðlum. Þá eru ekki fyrir hendi nein ákveðin við­ mið um hvað sé ásættanlegt ástand og hvað ekki. Einnig virðast ekki vera til reglur um hvað skuli gera þegar svæði koma illa út úr svokallaðri umhverfisvöktun. Það er til dæmis ekkert sem skyldar fyrirtæki til að hvíla svæði varðandi áframhaldandi fiskeldi komi það illa út úr athugun.“ Christian segir að Náttúrustofa Vestfjarða sinni umhverfisvöktun fyrir ýmis fiskeldisfyrirtæki en ekki fyrir Arnarlax. „Við sinntum umhverfisvöktun fyrir Arnarlax en gerum það ekki lengur. Þeir hjá Arnarlaxi óskuðu eftir að slíta því samstarfi.“ Náttúrustofa Vestfjarða birti skýrslu sem sýndi að botndýralíf í Patreksfirði hafði tekið miklum breytingum vegna uppsafnaðs líf­ ræns úrgangs frá laxeldi Arnarlax við Hlaðseyri. Samkvæmt frétt Frétta­ blaðsins í septembermánuði síðast­ liðnum hafði Arnarlax reynt að fá svokallaða ASC­staðlaða umhverfis­ vottun en tókst það ekki. Sigurður Pétursson, framkvæmda­ stjóri Arctic Sea Farm, segir eftirlit gott hjá fyrirtækinu. „Við hjá Arctic Sea Farm erum með svokallaða ASC­ umhverfisvottun fyrir eldisafurðir. Þetta er strangasti umhverfisstaðall sem er í gangi í dag í fiskeldi og við erum eina íslenska fyrirtækið sem er með þennan staðal.“ Sigurður segir að þrír utanaðkomandi aðilar sinni eftirliti hjá Arctic Sea Farm. „Umhverfisstofnun kemur bæði í skipulagt og óvænt eftirlit og svo líka Matvælastofnun. Svo kemur líka erlendur aðili einu sinni á ári í úttekt varðandi ASC­staðalinn,“ segir Sigurður. Ekki náðist í forsvarsmenn Arnarlax við vinnslu fréttarinnar.- aig Segir eftirliti með fiskeldi ábótavant Ráðamenn í Íran, þar á meðal Ali Khameinei, vöruðu óvini ríkisins við því að vasast í málum landsins. Refsingar geta beðið mótmælenda. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Vistfræðingur kallar eftir auknu eftirliti með fiskeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/PjETuR Við sinntum um- hverfisvöktun fyrir Arnarlax en gerum það ekki lengur. Þeir óskuðu eftir að slíta því samstarfi. Christian Gallo, vistfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða 3 . j A n ú A r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r6 F r é t t I r ∙ F r é t t A B l A Ð I Ð 0 3 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 3 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 1 -A 0 A 8 1 E A 1 -9 F 6 C 1 E A 1 -9 E 3 0 1 E A 1 -9 C F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 3 2 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.