Fréttablaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 8
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
STÓRÚTSALA HAFIN
30%-50% AFSLÁTTUR
GERRY WEBER –TAIFUN-BETTY BARCLAY –FRANK LYMAN JUNGE OG FLEIRI GÆÐAMERKI
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
3 . j a n ú a r 2 0 1 8 M I Ð V I K U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a Ð I Ð
KjaraMáL Laun hjúkrunarfræðinga
við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk)
eru lægri en laun kollega þeirra við
Landspítala í Reykjavík. Hildigunn-
ur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar hjá SAk, segir stofnunina
ekki vera samkeppnishæfa um laun
eins og staðan er núna.
„Laun okkar hjúkrunarfræðinga
eru um sex til átta prósentum lægri
en á þeim stofnunum sem við erum
í samkeppni við. Skýringin er sú að
við höfum brugðist við kalli um að
bæta við aukahöndum vegna álags og
því farið þá leið að ráða fleiri og ekki
náð að fylgja launaþróuninni,“ segir
Hildigunnur. „Því lögðum við ríka
áherslu á það í samræðum við fjár-
laganefndina að ef við eigum að eiga
í samkeppni um hjúkrunarfræðinga
þurfum við að laga þetta bil.“
Hildigunnur segir SAk þurfa á
annað hundrað milljónir króna til
að laga launabilið milli stofnan-
anna. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
þingmaður VG í kjördæminu sem
situr í fjárlaganefnd, er sammála því
að úrbóta sé þörf.
„Ég tek undir þetta, miðað við
þau gögn sem við fengum fyrir jól,
þá vantar um 165 milljónir króna.
Það er augljóst að við þurfum að
taka á þessu, við getum ekki haft
þetta svona. Ég tel að sjúkrahúsið
hafi setið eftir,“ segir Bjarkey.
Njáll Trausti Friðbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
einnig mikilvægt að ríkisstofnanir
landsins njóti sömu stöðu hvar sem
þær eru á landinu. „Þetta er algjör-
lega ótækt að mínu mati. Ríkis-
stofnanir hér á landi eiga að búa
við jafnræði óháð staðsetningu. Því
legg ég ríka áherslu á að þetta verði
lagfært.“
Um átta hundruð til þúsund
menntaðir hjúkrunarfræðingar
starfa utan greinarinnar. „Það
er mín skoðun að við þurfum að
hækka laun til að draga þessa
hjúkrunarfræðinga að,“ segir Hildi-
gunnur. „Með því að fá meira fjár-
magn inn getum við lokkað inn til
okkar unga hjúkrunarfræðinga því
launin eru það fyrsta sem þarf að
laga.“
sveinn@frettabladid.is
Hjúkrunarfræðingar á Akureyri
verr launaðir en kollegar í suðri
Laun hjúkrunarfræðinga á Akureyri eru um sex til átta prósentum lægri en á Landspítala. FréttAbLAðið/KK
Sjúkrahúsið á Akureyri
þarf 165 milljónir króna
aukalega á fjárlögum
næsta árs til að laun
hjúkrunarfræðinga verði
sambærileg því sem
gerist á LSH. Nefndar-
menn í fjárlaganefnd
segja stöðuna ótæka og
vilja taka á vandanum.
fraKKLanD Yfir 50 þúsund farsímum
verður dreift til fanga í 178 fangelsum
í Frakklandi. Þess er vænst að bætt
samskipti milli fanga og umheims-
ins styrki þá í aðlögun að samfélag-
inu þegar þeir hafa afplánað fang-
elsisdóm sinn, að því er stórblaðið
Le Monde greinir frá.
Frá 2016 hefur nær 300 föngum í
fangelsi í Meuse í norðausturhluta
Frakklands verið leyft að hringja í
fjölskyldu sína á öllum tímum sólar-
hringsins í tilraunaskyni. Símtölin
hafa kostað minna en símtöl úr síma-
klefum fyrir utan fangaklefana.
Föngunum verður heimilt að
hringja í fjögur símanúmer sem vitað
er hverjir eru skráðir fyrir. Baráttan
gegn ólöglegum símum í fangels-
unum mun halda áfram til að koma
í veg fyrir samskipti við glæpagengi
utan fangelsanna. Árið 2016 var lagt
hald á 33 þúsund farsíma í frönskum
fangelsum. – ibs
Franskir fangar
fá síma í klefana
50 þúsundum farsíma verður dreift
til franskra fanga.
Fimmtíu þúsund far-
símum verður dreift til fanga
í Frakklandi.
0
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
1
-8
C
E
8
1
E
A
1
-8
B
A
C
1
E
A
1
-8
A
7
0
1
E
A
1
-8
9
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K