Fréttablaðið - 03.01.2018, Page 11
Stjórn Loðnuvinnslunnar í Fáskrúðsfirði sendi frá sér yfirlýsingu þann 5. desember
síðastliðinn þar sem mótmælt var
harðlega áformum sem uppi eru
um stórfellt laxeldi í firðinum án
þess að fram hafi farið heildar
mat á áhrifum þess á lífríki og
burðarþol fjarðarins. Bæjarstjórn
Fjarðabyggðar tekur undir þessar
áhyggjur í bókun sem gerð var á
fundi bæjarstjórnar þann 14. des
ember en þar segir meðal annars:
„Bæjarstjórn Fjarðabyggðar tekur
undir mikið af þeim áhyggjum
sem komið hafa fram vegna stað
setningar fiskeldis í Fáskrúðsfirði
og telur brýnt að tekið sé tillit til
þeirrar fjölbreyttu uppbyggingar
atvinnustarfsemi sem komin er í
Fjarðabyggð við úthlutun leyfa til
fiskeldis í fjörðum sveitarfélags
ins.“
Samkvæmt þeim laxeldi s
áformum sem nú eru í umsagnar
ferli er stefnt að 15.000 tonna lax
eldi í Fáskrúðsfirði sem er meira en
allt laxeldi í landinu í dag. Í yfirlýs
ingu Loðnuvinnslunnar var vísað
til upplýsinga á heimasíðu Lands
samtaka fiskeldisstöðva þar sem
sagði: „Úrgangsefni við framleiðslu
á 1 tonni af laxi samsvarar klóak
rennsli frá 8 manns.“ Samkvæmt
þessum upplýsingum jafngildir
fyrirhugað fiskeldi í Fáskrúðs
firði því að skólpi frá 120 þúsund
manna byggð verði veitt í fjörðinn
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum
fyrir annað lífríki í firðinum og þá
hrognavinnslu sem þar fer fram og
reiðir sig á mikið magn af hreinum
sjó. Áréttað skal að Loðnuvinnslan
hf. er stærsti atvinnurekandinn á
Fáskrúðsfirði og þar starfa að jafn
aði 150 manns. Á síðasta ári nam
hrognavinnsla um 20% af fram
leiðsluverðmæti fyrirtækisins.
Upplýsingum á heimasíðu breytt
Í tilkynningu frá Fiskeldi Austfjarða
sem gefin var út 7. desember eru
áhyggjur Loðnuvinnslunnar sagð
ar byggðar á misskilningi og sagt
þekkt að heildarmagn úrgangs
efna á föstu formi frá 15.000 tonna
eldi sé um 1.650 tonn á ári og að
aðeins lítill hluti næringarefna
leysist upp í sjónum og dreifist
með straumnum. Um svipað leyti
var texta á heimasíðu Landssam
taka fiskeldisstöðva breytt og þar
segir nú að 1.000 tonna laxeldi
„skilar því árlega í sjó köfnunarefni
sem nemur um 4.000 íbúa byggð,
vel að merkja án hættulegra bakt
ería og efnamengunar mannsins“.
Með öðrum orðum 15 þúsund
Réttar upplýsingar á borðið
tonna laxeldi í Fáskrúðsfirði sem
samkvæmt heimasíðu laxeldis
manna samsvaraði klóakrennsli
frá 120 þúsund manna byggð fyrir
nokkrum vikum hefur nú minnkað
um helming og samsvarar í dag
„aðeins“ afrennsli frá 60 þúsund
manna byggð, sem sumum þætti
ærið. Ekki kemur fram hvenær
þessar upplýsingar voru uppfærð
ar á síðunni né heldur hvaða nýju
rannsóknir hafa kollvarpað fyrri
upplýsingagjöf landssamtakanna.
Upplýsingar
frá norskum yfirvöldum
Nú vill svo til að eigendur fyrir
hugaðs laxeldis í Fáskrúðsfirði eru
að stærstum hluta Norðmenn sem
hafa áratuga reynslu af sjókvíaeldi
laxfiska og hafa rannsakað mengun
frá fiskeldi árum saman. Á heima
síðu Umhverfisstofnunar Noregs
má meðal annars finna upplýsingar
sem hafðar voru til hliðsjónar þegar
lagðar voru til strangari reglur um
fiskeldi þar í landi í nóvember 2009.
(http://www.miljodirektoratet.
n o/n o/ Nyh e t e r / Nyh e t e r /O l d
klif/2009/November_2009/For
eslar_strengere_regelverk_for_fisk
eoppdrett/)
Í þessum upplýsingum er því
meðal annars slegið föstu að losun
frá meðalstórri fiskeldisstöð sem
framleiðir 3.120 tonn af laxi sam
svari frárennsli úrgangsefna frá
borg með um 50 þúsund íbúa. Með
öðrum orðum þýðir þetta að frá
rennsli frá 15 þúsund tonna lax
eldi samsvari skólpmagni frá 240
þúsund manna borg.
Í ljósi þess mikla fráviks sem er
í upplýsingum um umfang meng
unar frá laxeldi hljótum við að
gera kröfu til þess að réttar upplýs
ingar frá hlutlausum aðilum verði
lagðar á borðið og umsagna leitað
hjá þeim aðilum sem hagsmuna
hafa að gæta áður en jafn örlaga
rík ákvörðun verður tekin um að
heimila stórfellt laxeldi í Fáskrúðs
firði.
Friðrik Már
Guðmundsson
framkvæmda-
stjóri Loðnu-
vinnslunnar hf.
á Fáskrúðsfirði
Í þessum upplýsingum er því
meðal annars slegið föstu
að losun frá meðalstórri
fiskeldisstöð sem framleiðir
3.120 tonn af laxi samsvari
frárennsli úrgangsefna frá
borg með um 50 þúsund
íbúa. Með öðrum orðum
þýðir þetta að frárennsli frá
15 þúsund tonna laxeldi
samsvari skólpmagni frá 240
þúsund manna borg.
afsláttur
60%
Allt að
ÚTSALA
RISA
Í fullu fjöri
VEFVERSLUN
www.husgagnahollin.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 3 . j A n ú A R 2 0 1 8
0
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
1
-A
A
8
8
1
E
A
1
-A
9
4
C
1
E
A
1
-A
8
1
0
1
E
A
1
-A
6
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K