Fréttablaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Kristínar Ólafsdóttur BAKÞANKAR Það er fátt jafn dapurlegt og uppstrílað jólatré inni í stofu fyrstu dagana í janúar. Einu sinni stofustáss en umbreyt- ist í aðskotahlut á nýju ári. Týnir tilgangi sínum á einni nóttu. Ég sé sjálfa mig í þessu tré. Maður er til dæmis svolítið jólatré í janúar fyrstu dagana í ræktinni eftir langt, langt … langt … frí. Harkaleg iðnaðarlýsing og þungur daunn af svita verka letjandi. Markmiðin eru óyfirstíganleg og harðsperrurnar aftur orðnar framandi. Svo finnur maður fyrir erki- tilfelli af jólatré í janúar-heil- kenninu þegar sólarhringurinn er þvingaður í samt lag og vinna eða skóli hakka sig inn í rútínuna á ný. Maður er ryðgaður. Man ekki hvað maður á nákvæmlega að vera að gera. Lyppast niður í stólnum og byrjar aftur að naga neglurnar. Fingrasetning á lyklaborð lærð upp á nýtt. Greinarnar drjúpa niður í gólf. Fimmtán hnébeygjur, ekki þrjátíu eins og í nóvem- ber, og lærin brenna í vítiseldi. Stjarnan á toppnum búin að tapa ljómanum og orðin óþolandi hallærisleg. En svo kemur þrettándinn og trénu er þrusað út, fuðrar upp í bálkesti undir fölskum söng barna með KR-húfur og bleik blys. „Líf og tími líður og liðið er nú ár,“ og nýtt hefst og það er gott að muna að það er í lagi að taka það ekki strax með trompi. Það er í lagi að staulast ekki nema 500 metra á brettinu og þurfa sjö kaffibolla til að gefa hreinlega ekki upp öndina fyrsta vinnu- daginn. Það er í lagi að leyfa sér að vera örlítið jólatré í janúar, jafnvel fram í febrúar. Jólatré í janúar HVAR? Samskipahöllin, 203 Kópavogur. HVENÆR? 6. JANÚAR / Húsið opnar kl. 14, keppni hefst kl. 15. Keppni fyrir almenning. Sigurliðið kemst áfram í keppni á sunnudeginum. 7. JANÚAR / Húsið opnar kl. 14, keppni hefst kl. 15. Keppni þeirra bestu. Miðasala á tix.is MIÐASALA ER HAFIN Á STERKASTA VIÐBURÐ ÁRSINS. ÞÚ VILT EKKI MISSA AF ÞESSU! KEPPENDUR 2018 Albert Dominique-Laroushe Alec Smith Alex Vigneault Annie Mist Thorisdóttir Bjorgvin Karl Guðmundsson Bjork Odinsdottir Blaine McConnell Cody Mooney Frederik Aegidius Jay Adams Katrin Tanja Davidsdottir Laura Horvath Liz Adams Nick Bloch Nick Urankar Thruster Ólason Thuridur Helgadottir Tim Paulson Nánari upplýsingar á WOWSTRONGER.IS Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum 0 3 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A 1 -8 C E 8 1 E A 1 -8 B A C 1 E A 1 -8 A 7 0 1 E A 1 -8 9 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.