Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
Ólafur H. Torfason, rit-
höfundur og fjölmiðla-
maður, lést sl. mánudag,
á sjötugasta aldursári.
Árið 2009 greindist Ólaf-
ur með Parkinsons-
sjúkdóm og síðar með
krabbamein og Lewy
body-heilabilunar-
sjúkdóm. Hann dvaldi á
Droplaugarstöðum síð-
ustu ár ævinnar.
Ólafur H. Torfason
fæddist í Reykjavík 27.
júlí 1947. Foreldrar
hans voru Jóhanna
Gunnars húsmóðir og Torfi Ólafsson,
deildarstjóri í Seðlabanka Íslands,
sem er látinn.
Ólafur varð stúdent frá MR 1969
og stundaði nám í kvikmynda- og fjöl-
miðlafræði við Kaupmannahafnar-
háskóla 1970-73. Hann starfaði meðal
annars sem kennari, fjölmiðlamaður,
kvikmyndafræðingur og kvikmynda-
gagnrýnandi. Auk þess lagði hann
stund á myndlist og fékkst við fræði-
störf og ritstörf af ýmsu tagi.
Ólafur var kennari í Stykkishólmi
1975-82 og fréttaritari DV og Þjóð-
viljans þar. Hann var blaða- og frétta-
maður á Akureyri 1982-86, sá um út-
gáfu á tímaritinu Heima er bezt og
Árbók Akureyrar, var dagskrárgerð-
armaður fyrir RÚVAK og fréttamað-
ur Ríkissjónvarpsins á Akureyri.
Hann var forstöðumaður Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins 1986-
89. Ólafur var ritstjóri
Þjóðviljans 1989-91,
dagskrárgerðarmaður
hjá RÚV 1991-92 og
kvikmyndagagnrýn-
andi Rásar 2 frá 1987.
Hann starfaði einnig að
kynningarmálum fyrir
Listasafn Íslands.
Ólafur gerði stutt-
ræmur, sjónvarpsþætti
og fjölda útvarpsþátta,
hélt átta myndlistar-
sýningar og tók þátt í
samsýningum. Hann
kynnti íslenska kvik-
myndagerð í ræðu og riti, jafnt hér-
lendis sem erlendis.
Eftir Ólaf komu út bækurnar Kaþ-
ólskur annáll Íslands, Heimildarskrá
um Rómarkirkju á Íslandi, Ekkert
mál, ævisaga Jóns Páls Sigmars-
sonar, Heilagur Marteinn frá Tours,
St. Jósefssystur á Íslandi 1896-1996
og Nokkrir Íslandskrossar.
Ólafur var kvæntur Signýju Páls-
dóttur, skrifstofustjóra skrifstofu
menningarmála hjá Reykjavíkur-
borg, frá 1969 til 1991. Börn þeirra
sem lifa eru Melkorka Tekla leiklist-
arráðunautur, Torfi Frans, viðskipta-
þróunarstjóri CCP, og Guðrún Jó-
hanna söngkona.
Sambýliskona Ólafs 1995-2003 var
Þorgerður Sigurðardóttir myndlist-
armaður og sambýliskona hans frá
2005 Sigríður Dóra Jóhannsdóttir
myndlistarmaður.
Andlát
Ólafur H. Torfason
SVIÐSLJÓS
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Sölufélag garðyrkjumanna fagnaði í
gær nýrri uppskeru af íslenskum
kartöflum í tilefni þess að verið er að
dreifa henni í verslanir á höfuðborg-
arsvæðinu þessa daganna.
Uppskeruhátíðin fór fram í kartöflu-
geymslunum við Ártúnsholt.
Gunnlaugur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Sölufélags garðyrkju-
manna, segir staðsetninguna hafa ver-
ið valda með tilliti til sögu hússins. Frá
1946 til 2003, eða í 57 ár, var húsið í
hlutverki kartöflugeymslu. Kristinn
Brynjólfsson arkitekt er eigandi húss-
ins. Hann segir að unnið hafi verið að
endurbótum á húsinu og áformað sé að
opna þar veitingastað og hönnunar- og
listasmiðjur á næstu mánuðum.
Hægvaxandi kartöflur betri
Í Sölufélagi garðyrkjumanna eru
60 til 70 ræktendur, að sögn Gunn-
laugs framkvæmdastjóra. Hann segir
að eftir að farið var að merkja á síð-
asta ári hvaðan kartöflurnar koma þá
leggi bændur sig meira fram.
„Bestu kartöflurnar eru hjá sam-
heldnum hjónum, með eðlilegum
undantekningum. Það er ekki síður
konan sem hefur auga fyrir gæða-
málunum,“ segir Gunnlaugur. Hann
reiknar með að uppskeruhátíðin
verði haldin árlega þegar kartöflur
berast í verslanir á Reykjavík-
ursvæðinu. „Hver veit nema almenn-
ingur taki næst þátt í gleðinni,“ segir
Gunnlaugur og bætir við að þó sum-
arið hafi verið kalt komi það ekki að
sök fyrir kartöfluuppskeruna.
„Venjulega eru fyrstu kartöflurnar
teknar upp 10. til 15. júlí. Þegar kalt
er vaxa þær hægt og þá eru gæðin
meiri.“
Kristín Lind Sveinsdóttir, mark-
aðsstjóri Sölufélags garðyrkju-
manna, segir íslenskar kartöflur
ræktaðar í hreinum og ferskum
jarðvegi þar sem ekki sé notað skor-
dýraeitur. „Kartöflurnar eru fersk-
ar þar sem ekki þarf að flytja þær
um langan veg,“ segir Kristín Lind.
Undir þetta tekur Knútur Rafn Ár-
mann, stjórnarformaður Sölufélags-
ins og garðyrkjubóndi í Friðheimum.
„Mér finnst mikilvægt að sem ábyrg-
ir jarðarbúar getum við ræktað garð-
inn hjá okkur í stað þess að flytja
matvæli langar vegalengdir með til-
heyrandi djúpu kolefnisspori og
mengun. Kartöflur eru gott dæmi.“
Ylfa Helgadóttir og Georg Arnar
Halldórsson frá íslenska kokkalands-
liðinu reiddu fram girnilega kartöflu-
rétti á uppskeruhátíðinni. Þau eru
sammála um að það sé eitthvað eld-
gamalt og rómantískt við kartöflur.
„Nýuppteknar með salti og smjöri
eru þær í sinni bestu mynd.“
Kartöflur samhentra hjóna bestar
Kartöfluuppskeran komin til Reykjavíkur Gamaldags og rómantískt Veitingastaður í kart-
öflugeymslunum Kolefnissparnaður Nýuppteknar í sinni bestu mynd Hreinn jarðvegur
Morgunblaðið/Golli
Kartöflur Gestir gæða sér á girnilegum kartöfluréttum. Landsliðskokkarnir Ylfa Helgadóttir og Georg Arnar Hall-
dórsson sáu um matreiðslu á uppskeruhátíð kartöflubænda í gömlu kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekku.
Gunnlaugur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Sölufélags garð-
yrkjumanna, segir nauðsynlegt
að sjóða kartöflur á réttan hátt.
„Það hljómar einkennilega að
leiðbeina fólki um það hvernig
eigi að sjóða kartöflur. En það
er gríðarlega mikilvægt að vita
að þegar nýjar kartöflur eru
soðnar þá þurfa þær ekki nema
15 til 20 mínútna suðu. Það er
gott að salta vel og um leið og
kartöflurnar eru tilbúnar á að
taka af þeim vatnið – strax,“
segir Gunnlaugur og ítrekar að
vatninu þurfi að hella af um leið
og kartöflurnar eru nægjanlega
soðnar, og passa sig á heitri
gufunni. „Tvistið er að láta kart-
öflurnar ekki liggja of lengi í
soðinu.“
Suðan skiptir
höfuðmáli
RÉTTA AÐFERÐIN
Uppskera Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkju-
manna, og Kristján Gestsson kartöflubóndi með nýuppteknar kartöflur.
Björgunarsveitir af Suðurlandi
fundu í gær göngumann sem var
orðinn þrekaður og kaldur eftir
útiveru á Fimmvörðuhálsi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg er um
að ræða 34 ára karlmann frá
Bandaríkjunum og er hann sagður
vanur göngumaður. Þegar björg-
unarmenn á sexhjólum komu að
honum var maðurinn blautur og
með skjálfta.
Björgunarsveitir voru kallaðar
út um klukkan hálffjögur og var
búið að finna manninn innan við
tveimur tímum síðar. Mjög vont
veður var á svæðinu, mikil rigning
og hávaðarok. Gönguhópar voru
sendir til leitar frá Skógum og úr
Básum, en sem fyrr segir voru það
leitarmenn á sexhjólum sem fundu
göngumanninn. Honum var í kjöl-
farið komið til móts við björgunar-
sveitarbíl rétt sunnan við Fimm-
vörðuháls sem svo ók honum til
byggða.
Manni bjargað á
Fimmvörðuhálsi
Leit Stuttan tíma tók að finna manninn.
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30