Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
„Það voru Íslendingar alls staðar
fyrir leikinn í gær. Maður sá nán-
ast enga nema Íslendinga,“ segir
Kjartan Már Hallkelsson, hjá
Áfram Ísland.
Kjartan var staddur í Tilburg
og seldi varning til íslensku stuðn-
ingsmannana fyrir leikinn gegn
Frökkum. Hann segir að stemn-
ingin fyrir leik hafi verið afar
góð. „Fólk var mætt alveg sex
klukkutímum fyrir leik til þess að
drekka í sig stemninguna og hita
upp fyrir leikinn. Þetta fór því
mjög vel af stað og hélst þannig
út daginn.“
Hann segir söluna hafa hafist af
miklum krafti í gær og greinilegt
sé að mikil stemning sé fyrir
mótinu meðal íslensku stuðnings-
mannanna. „Við mættum og byrj-
uðum að selja varning þegar aðdá-
endasvæðið var opnað klukkan
eitt. Ásóknin í að kaupa vörur
varð strax mjög mikil og jókst síð-
an bara eftir því sem leið á dag-
inn,“ segir Kjartan sem vonast til
þess að þessi frábæra stemning
haldist út mótið.
aronthordur@mbl.is
Frábær
stemning
fyrir leik
Fjör Íslendingar voru áberandi.
Íslendingar í
miklum meirihluta
Ekki er hægt að segja að veðrið hafi dregið fólk að EM-torginu á Ingólfstorgi
til þess að fylgjast með fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í knattspyrnu,
sem fram fer í Hollandi. Þrátt fyrir óspennandi veður voru þó nokkrir dyggir
stuðningsmenn mættir á Ingólfstorg til þess að hvetja kvennalandsliðið
áfram. Þá var fjöldi erlendra ferðamanna staddur á EM-torginu. Tóku ferða-
mennirnir virkan þátt í stuðningnum, m.a. víkingaklappinu. Einnig var þétt-
setið innandyra á nærliggjandi stöðum, sem sýndu leikinn. Blaðamaður og
ljósmyndari Morgunblaðsins gerðu sér ferð á EM-torgið til þess að taka
stöðuna á því fólki, sem fylgdist með leik íslenska liðsins gegn því franska.
Mikill hugur var í fólki fyrir möguleikum Íslands á Evrópumótinu í Hollandi.
Gráleitt veður á EM-torginu
„Íslendingar voru í miklum meiri-
hluta fyrir leikinn í gær og stemn-
ingin var alveg frábær,“ segir Þór
Bæring Ólafsson, hjá Gaman Ferð-
um, sem staddur var á Frakka-
leiknum ásamt 20 manna hópi.
Hann segir að stemningin fyrir
leik hafi verið afar góð. „Við lögð-
um snemma af stað í rútu og vor-
um mætt vel fyrir leik á aðdáenda-
svæðið til þess að skoða okkur um
og hita upp fyrir leikinn. Það var
fjöldinn allur af Íslendingum hérna
og stemningin hrikalega góð, þetta
var því allt til fyrirmyndar,“ segir
Þór Bæring og bætir við að veðrið
hafa leikið við íslensku stuðnings-
mennina fyrir leik.
„Það var alveg frábært veður, ég
held að það hafi verið um 25 stiga
hiti og glampandi sól sem hélst al-
veg fram að leik.“
Hann segir mikla spennu ríkja
fyrir næstu leikjum landsliðsins í
keppninni. „Við erum 20 manns
sem ætlum okkur á alla leikina en
þess utan erum við hjá Gaman
Ferðum með tæplega 100 manns
sem ætla sér á annan af næstu
tveimur leikjum. Það verður gam-
an að sjá hvernig mótið þróast í
næstu leikjum liðsins en það er al-
veg ljóst að það er nóg eftir af
þessu,“ sagði Þór Bæring að lok-
um.
aronthordur@mbl.is
Ljósmynd/Gaman Ferðir
Hópurinn Þór var staddur ásamt 20 manns á leiknum í gær. Hann segir
stemninguna sem myndaðist fyrir leik Íslands í gær hafa verið frábæra.
Íslendingar máluðu
bæinn bláan
EM KVENNA Í FÓTBOLTA 2017
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000
„Ég hef fulla trú á íslenska liðinu, eins og
alltaf,“ segir Kristinn Jónsson, gjaldkeri
Tólfunnar, en hann var mættur á EM-
torgið ásamt nokkrum kollegum sínum er
Morgunblaðið bar þar að garði. Nokkrir
meðlimir stuðningssveitar Tólfunnar eru
staddir í Hollandi, en að sögn Kristins
mun sveitin einnig halda uppi stemningu
á EM-torginu. Aðspurður segir Kristinn
að íslenska kvennalandsliðið muni a.m.k.
ná í 8-liða úrslit á Evrópumótinu í Hol-
landi.
Þá segist hann vera viss um að mun
fleira fólk mæti á laugardaginn þegar Ís-
land mætir Sviss, en töluvert betra veðri
er spáð í Reykjavík um helgina. „Við
stefnum á að koma með trommur og læti
á laugardaginn, og halda uppi mjög góðri
stemningu,“ segir Kristinn. axel@mbl.is
Morgunblaðið/Hanna
Stuð Kristinn Jónsson, gjaldkeri Tólfunnar, segir sveitina ætla að halda uppi góðri stemningu.
Tólfan heldur uppi stemn-
ingunni á Ingólfstorgi
Ari Viðar Hróbjartsson var mjög
ánægður með leik íslenska liðsins
þegar hann gaf sig á tal við Morg-
unblaðið við upphaf seinni hálf-
leiks. „Við vinnum mótið,“ segir Ari
um hve langt liðið nær. Hann
hyggst halda áfram að mæta á leiki
Íslands á EM-torginu, en Ari var
einnig tíður gestur á torginu þegar
EM í Frakklandi fór fram í fyrra.
Sáttur Ari Viðar Hróbjartsson var ánægður með spilamennsku landsliðsins.
Segir að íslenska landsliðið muni vinna EM
Hrafnhildur Arnórsdóttir segist
vera ánægð með hve mikill áhugi
og umfjöllun sé í kringum íslenska
kvennalandsliðið fyrir Evrópu-
mótið í ár. „Ég vona að það haldi
áfram eftir þetta mót,“ segir hún.
Spurð um möguleika Íslands á EM,
segir hún erfitt að spá fyrir um það,
en segist hins vegar hafa mikla trú
á liðinu og að það geti náð langt.
Bros Hrafnhildur Arnórsdóttir var mætt á EM-torgið til þess að fylgjast með.
Ánægð með áhugann sem hefur myndast