Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ViðskiptaráðÍslandshefur upp- fært reiknivél sína um hvar best sé að búa, en hún var fyrst kynnt árið 2015 og vakti athygli á ólíkri skatt- heimtu á milli sveitarfélaga. Umræða um skattheimtu sveitarfélaga og hvers kyns gjaldtöku þeirra er mikilvæg, enda vill oft gleymast að stór og stækkandi hluti af þeim sköttum og gjöldum sem al- menningur greiðir rennur til sveitarfélaganna. Þó að ríkið setji sveitarfélögunum skorð- ur þegar kemur að útsvari, bæði efri og neðri mörk, en síðarnefndu mörkin styðjast við vafasöm rök, þá hafa sveitarfélögin töluvert svig- rúm þegar kemur að því að ákveða álögur á íbúana. Eitt af því sem miklu hefur ráðið um þróun skattheimtu sveitarfélaganna er þróun fasteignaverðs í landinu. Um það segir í umfjöllun Við- skiptaráðs sem fylgir reikni- vélinni: „Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað hratt undanfarin ár að nafnvirði. Sé horft til þró- unarinnar frá árinu 2011, þegar húsnæðisverð byrjaði að taka við sér eftir lækkanir árin áður, nemur hækkunin yfir 88%. Nafnverðshækk- anir segja þó einungis hálfa söguna. Að jafnaði er leiðrétt fyrir verðlagsbreytingum hér á landi til þess að skoða raun- verðshækkanir. Sé leiðrétt fyrir vísitölu neysluverðs sést að raunhækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 54% á tímabilinu. Ef tekið er mið af launahækkunum á tíma- bilinu og leiðrétt fyrir aukn- um kaupmætti sökum þessa nemur hækkunin tæpum 17%. Ef litið er á landið allt má sjá svipaða þróun á fasteigna- markaðnum yfir sama tíma- bil. Á síðustu 6 árum, eða frá ársbyrjun 2011 til mars 2017 hækkaði nafnverð fjölbýlis um tæp 79% og nafnverð sér- býlis um 43%.“ Þetta eru miklar hækkanir og að hluta til er ástæðu þeirra að leita í skorti á hús- næði, aðallega í Reykjavík. Sá skortur er heimtilbúinn hjá meirihluta borgarinnar, sem hefur fylgt afar þröng- sýnni stefnu þegar kemur að uppbyggingu borgarinnar í stað þess að leyfa henni að vaxa og blómstra eins og að- stæður hafa boðið upp á. Vegna vægis Reykjavíkur smitast þessi skortstefna yfir í nágrannasveitarfélögin og jafnvel lengra, enda eru dæmi um að fólk hafi hrak- ist frá höfuðborg- arsvæðinu vegna húsnæðisskorts og tekið þann kost að kaupa ódýrara húsnæði annars staðar og aka á milli. Í enn fjarlægari sveitarfélögum hækkar húsnæðisverð einnig og stafar það af almennum uppgangi í atvinnulífi, ekki síst ferðaþjónustu. Í skrifum Viðskiptaráðs er bent á að hækkandi fast- eignaverð hafi ekki aðeins haft áhrif á kaupendur á fast- eignamarkaði, því að fast- eignamat húsnæðis um allt land hafi hækkað í takt við markaðshækkanir. „Sam- kvæmt tölum frá Þjóðskrá Ís- lands er mismunur á meðal- fasteignamati húsnæðis á Íslandi árið 2015 og því mati sem tekur gildi um næstu áramót 34%. Fasteignamat húsnæðis í Reykjavík hefur hækkað um 42% og 37% í Kópavogi svo dæmi séu tekin. Mest hefur hækkunin verið á Borgarfirði eystri og Vopna- firði, eða 45%. Fasteignagjöld heimila skiptast í fasteignaskatta, lóðaleigu, sorphirðugjöld, vatnsveitugjöld og frárennsl- isgjöld. Hjá langflestum sveitarfélögum leggjast þessi gjöld á sem föst prósenta af fasteignamati. Þessar álagn- ingarprósentur hafa að mestu leyti staðið í stað að undan- förnu og hafa fasteignagjöld því fylgt hækkandi fast- eignamati að miklu leyti.“ Sú þróun sem þarna er lýst er auðvitað stórkostlega ámælisverð. Sveitarfélögin hafa látið undir höfuð leggj- ast að lækka fasteignagjöldin í takti við hækkun fasteigna- matsins og þannig laumað inn skattahækkunum á íbúana. Í tilviki Reykjavíkur, sem hef- ur beinlínis stuðlað að hækk- andi fasteignaverði með and- stöðu sinni við nýbyggingar í útjaðri borgarinnar, er málið enn alvarlegra en hjá þeim sveitarfélögum sem ekki bera ábyrgð á verðþróuninni. Full ástæða er til að skatt- heimta og gjaldtaka sveitar- félaganna verði ofarlega á blaði í umræðum vegna sveit- arstjórnarkosninganna sem fram fara á næsta ári. Íbú- arnir eiga ekki að þurfa að þola það að búa við hæsta leyfilega útsvar, hækkandi fasteignaskatta og fjölda ann- arra gjalda án þess að rætt sé hvort og þá hvers vegna allar þessar álögur séu nauðsyn- legar. Sveitarfélögin laumast æ dýpra í vasa íbúanna} Miklar álögur Í greinasafninu The Ghost of Birds velt- ir Eliot Weinberger meðal annars fyr- ir sér sköpunarsögunni, eða réttara sagt sköpunarsögunum, því þær eru tvær í Biblíunni, og margar fleiri til ef rýnt er í biblíuhandrit jafngömul eða eldri en þau viðurkenndu. Weinberger ræðir um mis- munandi sögur af eplinu sem þau Eva og Adam skiptu með sér, en var víst ekkert epli. (Ég lærði sem barn að það hefði verið epli sem skýrist væntanlega af því að menn fóru löngum frjálslega með orðið epli og notuðu yfir ávexti almennt, sennilega líka ávöxt skilnings- trésins.) Því er þetta nefnt hér að þegar ég las ritgerð Weinbergers fannst mér augnablik sem þetta ólánsepli hlyti af hafa verið einhver ógeðs- blendingur, sennilega amerískur og þá Red Delicious. Fyrir rúmum hundrað árum voru ræktuð um 7.000 eplaafbrigði í Bandaríkjunum, en þeim fækkaði ört þegar komið var fram á miðja öldina og eru sennilega um 2.500 í dag, þar með talin þau hundrað afbrigði sem ræktuð eru í stórum stíl: Gala, Fuji, Cripps Pink / Pink Lady, Braeb- urn, Jazz, Jonagold, Junami, Kanzi, Kiku, McIntosh og Honeycrisp, svo nefnd séu nokkur sem ég hef rekist á í búðum hér á landi. Glöggir hafa eflaust tekið eftir því að ég nefni ekki þau epli sem algengust eru hér á landi, það afbrigði sem ég minnist úr æsku minni, „jólaeplið“ Red Delicious, enda er það varla epli lengur þó vinsælt sé. Sagan af Red Delicious , sem ber með sér einkenni þjóðsögu, segir að undir lok nítjándu aldar hafi bóndi í Idaho rekist á sjálfsáð epli og klippt það. Árið eftir kom það upp aftur og enn var klippt. Þegar það birtist í þriðja sinn leyfði hann því að vaxa og áratug síðar launaði það lífgjöfina með ávexti sem varð að Red Delicious. Á fimmta áratugnum var Red Delicious orðið vinsælasta epli Bandaríkjanna, aðallega fyrir það að fyrirtækið sem keypti rækt- unarréttinn að því lagði mikið fé í auglýsingar og kynningu. Og ekki bara það, heldur hófust menn handa um „endurbæta“ eplið. Næstu áratugina urðu Red Delicious-epli sífellt rauðari og stinnari, enda var fólk vanið á það að því rauðara sem eplið væri því betra væri það. Eftir því sem hýðið roðnaði þykkn- aði það líka, sem var líka ætlunin, því epli með þykkt og þétt hýði mátti geyma lengur, jafnvel mánuðum saman, meira að segja heilt ár, án þess að það glataði lit og áferð (skítt með bragðið). Kaupmenn, eða réttara sagt versl- unarrisar, tóku þessu nýja epli vel því að þoldi hnjask og hnoð betur en epli með þynnra hýði. Af þessari þvælulegu eplasögu (fyrirgefðu, kæri les- andi) má læra sitthvað og ekki bara það hve illt er að treysta á kapítalismann. Helsti lærdómurinn er nefnilega það hvernig fer þegar útlit er í öndvegi, hvernig Red Deli- cious var ræktað til að verða meira aðlaðandi með hverju árinu þar til það var orðið óætt. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Epli aldanna STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Afkoma sveitarfélaga varóvenju góð á árinu 2016og mun betri en fjárhags-áætlanir gerðu ráð fyrir. Niðurstöður liggja fyrir um árs- reikninga 63 af 74 sveitarfélögum landsins fyrir árið 2016. Í þessum sveitarfélögum búa vel yfir 99% landsmanna. Afgangur af rekstri A-hluta nam 8,5 ma.kr., 3% af tekjum, á árinu 2016, en 2015 nam rekstrar- halli 15,5 milljörðum króna. Um- skipti nema tæpum 24 milljörðum króna. Þetta kemur fram í fréttabréfi hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar kemur einnig fram að tekjur A-hlutans hækkuðu í fyrra um 11,7% og gjöld um 2,5%. Undir A-hluta starfsemi sveitarfélaga falla verkefni sem að mestu eru fjármögnuð af skatt- tekjum. Laun og launatengd gjöld sveitarfélaganna hækkuðu um 6,4% á milli ára. Raunlækkun skulda um 4,7% Fram kemur í fréttabréfinu að langtímaskuldir sveitarfélaga lækk- uðu milli 2015 og 2016 um 4,8 millj- arða króna, eða sem nemur 2,9%. Fyrst og fremst sé um að ræða verðtryggðar skuldir og er bent á að hafa megi í huga að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 1,9% frá janúar 2016 til jafnlengdar 2017. Raunlækkun skulda sé því um 4,7%. Heildarskuldir, bæði til langs og skamms tíma, hafi lækkað um 1,4%. Hafi þær numið 86,5% af tekjum 2015 en 76,1% 2016 og svari lækkunin til rösklega 10% af tekjum. Skuldbindingar hins vegar hafi aukist töluvert eða um 14,3%, en lífeyrisskuldbindingar séu þar langfyrirferðarmestar. „Heild- arskuldir og skuldbindingar námu 299,4 ma.kr. í árslok 2016 sam- anborið við 292,3 ma.kr. í árslok 2015 og nemur hækkunin 2,5%,“ segir í frétt Sambands íslenskra sveitarfélaga um ársreikninga sveitarfélaga 2016. Ekki hægt annað Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, er formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Hann segir það ánægjulegt hversu afkoma sveitarfélaga batnaði á milli áranna 2015 og 2016. „Ég orðaði það þannig, þegar meirihlutinn í borgarstjórn var að hreykja sér af góðri afkomu, að það hefði ekki verið annað hægt en að skila góðu búi í fyrra, þannig hefði árferðið einfaldlega verið,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið í gær. Halldór segir að helsta skýr- ingin á bættri afkomu sveitarfélaga í landinu í fyrra séu mjög auknar útsvarstekjur, en þær jukust yfir 11% á milli ára og það eigi við um öll sveitarfélögin. Greiða niður skuldir „Svo fékk mjög stór hluti sveitarfélaganna einnig töluvert auknar tekjur af fasteignaskött- um,“ sagði Halldór. „Það verður einnig að viður- kennast, að mörg sveitarfélög hafa verið mjög dugleg á kjörtímabilinu að greiða niður skuldir. Ég vil sér- staklega nefna Hafnarfjarðarbæ í þeim efnum. Í mörgum tilvikum hafa aðhaldsaðgerðir sveitarfélag- anna skilað sér, þótt það eigi ekki við um stærsta sveitarfélagið, Reykjavíkurborg,“ sagði Halldór. Hann bendir jafnframt á að þegar tekjuhliðin í heild hjá sveit- arfélögunum á árunum 2015 og 2015 er borin saman við gjaldahliðina sé niður- staðan góð. Tekjur hafi aukist um 11,7% á milli áranna en gjöldin ein- ungis um 2,5%. Óvenju góð afkoma sveitarfélaga í fyrra Rekstrarreikningur A-hluta sveitarfélaga 2015 og 2016, í milljörðum króna 2015 2016 Breyting Skatttekjur án jöfnunarsjóðs 181 201 11,4% Framlag jöfnunarsjóðs 33 37 12,3% Þjónustutekjur og aðrar tekjur 42 47 12,7% Tekjur 255 285 11,7% Laun og launatengd gjöld 137 145 6,4% Breyting lífeyrisskuldbindinga 20 14 -30,8% Annar rekstrarkostnaður 96 99 3,7% Afskriftir 11,2 11,7 5,0% Gjöld 264 270 2,5% Rekstrarniðurstaða -15,5 8,5 Fram kemur í fréttabréfinu um ársreikninga sveitarfélaganna að allt frá hruni hafi það verið forgangsmál í fjármálastjórnun sveitarfélaga að lækka skuldir, m.a. með því að hægja á fram- kvæmdum, enda þótt upp- söfnuð fjárfestingarþörf sé víða mikil. Fjárfestingar A-hluta sveitarfélaga hafi aukist um 10% frá árinu 2015 og þær hafi numið um 7% af tekjum bæði árin 2015 og 2016. Þá kemur fram að útsvars- tekjur hækkuðu mest á Suður- nesjum eða um 16,2% frá 2015 til 2016, en minnst á Austur- landi um 7,4%. Tekjur sveitar- félaga annarra en Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu hins vegar mest og langminnst á Austurlandi. Veltufé frá rekstri var mest á Suður- nesjum, 16,7%, en minnst á Norður- landi vestra, 8,9%. Áherslan á skuldalækkun FJÁRMÁLASTJÓRNUN SVEITARFÉLAGANNA Halldór Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.