Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 13
sín fyrstu smáskilaboð árið 2005
þegar hún sendi barnabarni sínu,
Harry prins, hamingjuóskir með 21
árs afmæli hans. Drottningin sjón-
varpar einnig jólakveðju sinni ár-
lega. Þá hefur hún sent um það bil
45 þúsund jólakort og fengið send
yfir 3,5 milljónir bréfa frá fólki alls
staðar að úr heiminum sem henni
þykir gaman að lesa þegar hennar
bíða engar opinberar skyldur.
Les glæpasögur
í frítíma sínum
Þvert á glamúrímyndina sem
margir hafa af drottningunni er hún
lærður bifvélavirki en hún þjónaði
sem slíkur í breska hernum á sínum
yngri árum og er sögð hafa elskað
að klæða sig í galla og skíta sig alla
út af olíu, hálf ofan í vélarhúddi bíls.
Þá er hún hvorki skyldug til þess að
eiga ökuskírteini né vera með bíl-
belti, en þrátt fyrir skort á skírtein-
inu lætur hún það ekki stoppa sig í
að keyra. Elísabet þarf heldur ekki
á vegabréfi að halda þegar hún
ferðast erlendis, þar sem öll bresk
vegabréf eru gefin út í hennar
nafni.
Drottningin nýtur þess að fá
sér stöku sinnum í glas og er ást
hennar á gini vel þekkt. Hún er hins
vegar lítt hrifin af kampavíni og
tekur aðeins örlítinn sopa þegar
henni er boðið slíkt. Hún talar reip-
rennandi frönsku og hefur oft haldið
heilu ræðurnar á því tungumáli án
nokkurra vandkvæða, en frönskuna
lærði hún sjálf með því að hlusta á
og tala við franska sendiherra og
aðra opinbera starfsmenn Frakk-
lands. Barnabarn hennar, Vil-
hjálmur prins, hefur sagt að amma
sín skemmti sér oft yfir eftirherm-
um grínistans Ali G og hlæi mikið
að honum. Þá var lögregluþátturinn
Kojak í miklu uppáhaldi hjá drottn-
ingunni á sínum tíma, auk þess sem
hún les glæpasögur þegar henni
gefst tími til. Elísabet hefur setið
fyrir á 129 málverkum, fyrst árið
1933 þegar hún var sjö ára gömul.
Einnig hefur hið fræga vaxmynda-
safn, Madame Tussauds, gert 22
vaxstyttur af drottningunni, sú
fyrsta leit dagsins ljós þegar El-
ísabet var aðeins tveggja ára.
Hún á fjögur börn, átta barna-
börn og fimm barnabarnabörn sem
hún nýtur þess að eyða tíma með og
taka ljósmyndir af, en þar að auki er
hún guðmóðir þrjátíu barna í kon-
ungsfjölskyldum víðs vegar um
heiminn.
AFP
Brosmild Elísabet II. er heilsuhraust þrátt fyrir háan aldur og sinnir enn opinberum skyldum á 92. aldursári.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
Hið fallega blóm rósin hefur glatt
fólk í gegnum aldirnar og hefur áhugi
almennings á þessu fallega blómi
vaxið jafnt og þétt. Talið er að nokkur
hundruð tegundir og yrki rósa geti
þrifist hérlendis. Fimmtudaginn 20.
júlí næstkomandi verður gróður-
ganga um trjásafnið í Meltungu þar
sem fjöldi rósa verður skoðaður.
Lagt verður af stað frá Lystihúsinu
í Yndisgarðinum klukkan 17:30 og
verður leiðsögn í höndum Samsonar
B. Harðarsonar, verkefnastjóra Ynd-
isgróðurs, og Friðriks Baldurssonar,
garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar.
Á Facebook-síðu viðburðarins kem-
ur fram að gönguleiðin henti vel
frísku fólki en áætlað er að göngunni
ljúki við Kjarrhólma um klukkan
19:00 og eru áhugasamir hvattir til
þess að láta þennan einstaka viðburð
ekki framhjá sér fara.
Rósaganga í Kópavogi
Morgunblaðið/RAX
Rósir Þetta fallega blóm hefur yljað mörgum um hjartarætur í gegnum tíðina.
Rósir bæði bæta og kæta
Hinn dáði listamaður Herbie Hancock
kemur fram ásamt hljómsveit í Hörpu
fimmtudaginn 20. júlí klukkan 20:00
og gefst Íslendingum því tækifæri á
að hlýða á tónlist hans. Auk Han-
cocks verða á sviðinu þeir Vinnie
Colaiuta, James Genus, Lionel Lou-
eke og Terrace Martin. Hancock er
einn þekktasti listamaður nútíma-
tónlistar og á meira en hálfrar aldar
starf að baki.
Hann var meðlimur í hinum fræga
Miles David Quintet sem ruddi braut-
ina fyrir þróun djassins og á face-
booksíðu viðburðarins í Hörpu segir
að Hancock hafi blandað margvís-
legum tónlistarstefnum saman, svo
sem rokki, fönki og rafeindatónlist.
Tónlist hans heldur áfram að
gleðja fólk um heim allan og hafa
margir djasspíanóleikarar sótt í
smiðju hans. Hancock státar af
hvorki meira né minna en fjórtán
Grammy-verðlaunum og má því með
sanni segja að um sannkallaðan risa í
tónlist sé að ræða.
Herbie Hancock kemur fram í Hörpu 20. júlí
Listamaður Herbie Hancock er
heimsfrægur tónlistarmaður.
Margfaldur Grammy-verðlauna-
hafi spilar fyrir landann
Sannfærandi rödd Martin Luther
King ómar um ganga Tate Modern-
gallerísins í London. Sýning sem
haldin er í galleríinu þessa dagana
sýnir í fyrsta skipti að byltingin í
Bandaríkjunum árið 1963 gat af sér
ótal listamenn sem máluðu, mótuðu,
prentuðu og tóku ljósmyndir.
Þetta kemur fram á vef The Gu-
ardian. Sýningarstjórinn Mark God-
frey sagði að sýningin, Sál þjóðar
(e. Soul of a Nation), hefði orðið til
vegna áhuga Tate-safnsins á að
draga meiri list frá samfélagi
svartra frá þessum tíma fram í
dagsljósið. „Spurningin: Er til svört
list? ómar hér um alla ganga. Svarið
við þeirri spurningu er mismunandi
eftir hverjum listamanni,“ sagði
Godfrey.
Og hann heldur áfram: „Sýningin
Sál þjóðar reynir að fanga kjarnann
í því hvað það þýddi að vera svartur
og vera listamaður á tímum bylting-
arinnar, frá árinu 1963 þegar hug-
myndin um byltingu var að fæðast í
Bandaríkjunum, og allt til ársins
1983.
Byltingarkennd list í Tate Modern í London
Sýningin Sál þjóðar fangar
samfélag svartra fyrir hálfri öld
Baráttumaður Martin Luther King barðist ötullega fyrir réttindum svartra.
Elísabet II. Englandsdrottning hefur ríkt lengst
allra þjóðhöfðingja í sögu Bretlands. Röð atvika
olli því að Elísabet varð drottning. Albert prins,
afabróðir Elísabetar, lést áður en hann gat tekið
við krúnunni og var afi Elísabetar, George
fimmti Englandskonungur, krýndur í hans stað.
Elsti sonur George, Edward áttundi, afsalaði sér
krúnunni eftir lát föður síns, til þess að giftast
ástkonu sinni, hinni bandarísku Wallis Simpson,
og við það var faðir Elísabetar, George sjötti,
krýndur konungur. Elísabet tók við þegar hann
lést árið 1953 og hefur ríkt síðan þá.
Enginn ríkt lengur
RÖÐ ATVIKA RÉÐ ÞVÍ AÐ ELÍSABET VAR KRÝND
Drottning Elísabet II er
bæði elskuð og dáð.
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR
OKKUR TIL MIKILLAR ÁNÆGJU GETUM VIÐ NÚ
ENGIN GETUR
BETUR!
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ!
Fáðu nánari upplýsinga hjá sölumönnum okkar
Reykjavík: 414-0000 - Akureyri: 464-8600
- vegna sérstakara samninga við Avanttecno í Finnlandi - boðið Avant 745 vélina
með nýja „OPTIDRIVE“ vökvakerfinu á EINSTAKLEGA HAGSTÆÐU VERÐI.
• 60% færri vökvatengingar í kerfinu
• 20% færri vökvaslöngur
• Betra og skilvirkara vökvakerfi
• OG MARGT FLEIRA