Fréttablaðið - 08.01.2018, Síða 8

Fréttablaðið - 08.01.2018, Síða 8
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is VELDU GÆÐI! PREN TU N .IS ................................................ mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS 3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM Á dögunum skipaði forsætisráðherra starfshóp hvers yfirlýsta markmið er að efla traust á stjórnmálum og stjórnsýslu. Verðugt verkefni og þarft enda einungis um 22% Íslendinga sem treysta Alþingi. Hins vegar má setja spurningarmerki við þá nálgun að ætla sér að efla traust á stjórnmálum með því að skipa vinnuhóp utan um innleiðingu á alþjóð- legum tilmælum og stöðlum er varða gagnsæi og góða stjórnsýslu. Það er góðra gjalda vert að lögfesta alþjóðlegar skuldbindingar en það sendir röng skilaboð að klæða það búningi eflingar trausts á stjórnmálum. Innleiðing skuldbindinga er sjálfsagður hluti af starfi framkvæmdar- og löggjafarvalds. En, á meðan ríkisstjórnin og stjórnarþingmenn eru ekki einu sinni reiðubúin að viðurkenna að það grafi undan trausti almennings á stjórnmálum að dómsmála- ráðherra, Sigríður Á. Andersen, sem braut lög við skipan dómara, sitji í þeirra skjóli, er til lítils að breyta og bæta þau lög sem ráðherrar geta brotið án afleiðinga. Á meðan forsætisráðherra gerir engar athugasemdir við að starfa með fjármálaráðherranum Bjarna Benediktssyni, sem geymir eignir í skattaskjóli, felur óþægilegar skýrslur fram yfir kosningar og hefur bein afskipti af rannsókn skattrannsóknarstjóra á skattaskjólabraski fjölskyldu sinnar, er hræsni að ætlast til þess að almenningur finni fyrir trausti í garð stjórnmálamanna. Í öllum ofangreindum tilfellum voru reglur, lög og siðareglur til staðar, sem hefðu átt að standa í vegi fyrir pólitískum skipunum dómsmálaráðherra í dómara- stöður og fjármálapukri fjármálaráðherra. Gleymum ekki upplýsingalögum, sem dómsmálaráðherra braut vegna persónulegra hagsmuna Bjarna Benediktssonar og felldi síðustu ríkisstjórn. Traust er áunnið. Stjórnmálamenn eiga ekki að vænta þess að vinna traust almennings með því að lögfesta almenna og sjálfsagða staðla alþjóðasamfélagsins um gagnsæja og vandaða stjórnsýslu. Því þegar stjórnvöld eru ekki reiðubúin að fylgja boðorðunum tíu er til lítils að setja boðorðin tuttugu. Fleiri lög sem brjóta má án afleiðinga Stjórnmála- menn eiga ekki að vænta þess að vinna traust al- mennings með því að lögfesta almenna og sjálfsagða staðla Mörg þeirra slysa sem hér verða á ferðamönn- um eru á ábyrgð okkar gestgjafanna hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksfor- maður Pírata Það þarf ekki að ferðast víða um Ísland til þess að sjá fegurð landsins. Til þess að sjá og skynja óendanlega frumkrafta nátt-úrunnar gagnvart manns eigin smæð og dauðleika. Þessi tilfinning er engu lík en samt eigum við til að taka þeim forrétt- indum sem sjálfsögðum. En ef við hugsum um alla þá ferðamenn sem hingað streyma til þess að upplifa þetta þó ekki sé nema einu sinni á ævinni þá er það okkur verðmæt áminning um þessi forréttindi. Þetta ágæta fólk sem hingað kemur, vegna þess að við hvetjum það til þess, skilur eftir sig mikil verðmæti sem hafa gríðarlega jákvæð áhrif á þjóðarbúskapinn. En nú er líka orðið löngu tímabært að við sem samfélag förum að skoða hvernig við tökum á móti og búum að þessum ágætu gestum, því gestgjafar bera ábyrgð. Það efast enginn um að fyrirtæki í ferðamannaiðn- aði bera slíka ábyrgð en það gerir hið opinbera einnig. Samgönguöryggi, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, lög- gæsla og fleira er á ábyrgð hins opinbera, okkar allra sem búum í þessu samfélagi, og því miður höfum við dregið lappirnar í þessum efnum allt of lengi. Þó svo hrörlegt ástand áðurnefndra samfélagslegra innviða sé kannski í hugum okkar flestra eitthvað sem kemur öðrum þjóðum ekki við þá er það auðvitað fjarri lagi. Hið opinbera og einkaaðilar fjárfesta í því að kynna landið sem ákjósanlegan áningarstað fyrir ferðamenn vegna þeirrar einstöku náttúru sem hér er að finna, ásamt forvitnilegri menningu og skemmtilegu mann- lífi, en líka á þeirri forsendu að hér sé öruggt og gott að vera. En er það satt og rétt? Nýverið kom fram í frétt á Vísi að þrettán létust af slysförum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi á síðasta ári. Þar af voru átta erlendir ríkis- borgarar. Dauðsföll þessara einstaklinga bar að með ýmsum hætti en þó oftar en ekki í tengslum við ferða- mennsku, þar sem gæsla er oft takmörkuð og fræðslu um aðstæður virðist víða vera ábótavant. Síðasta bana- slysið átti sér stað á veginum í gegnum Eldhraun þann 27. desember þegar rúta og fólksbíll skullu saman með skelfilegum afleiðingum sem hefðu að líkindum orðið enn alvarlegri ef ekki hefði verið fyrir sjálfboðaliða á svæðinu. En þrátt fyrir gríðarlega aukningu á umferð um svæðið hafa litlar sem engar endurbætur átt sér stað á vegakerfinu, fjöldi löggæslumanna staðið í stað rétt eins og fjármögnunin og hið sama má segja um aðstæður heilbrigðiskerfisins og viðbragðsaðila þess. Mörg þeirra slysa sem hér verða á ferðamönnum eru á ábyrgð okkar gestgjafanna hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Þó að hver og einn einstaklingur beri að sjálfsögðu ábyrgð á sinni hegðun, lífi sínu og limum, þá verða að vera hér til staðar innviðir í sam- ræmi við það sem ásættanlegt getur talist í vestrænu velferðarríki. Við sjálf væntum þess á ferðum okkar um t.d. nágrannalöndin að þar sé leitast við að tryggja öryggi okkar og við verðum þar af leiðandi að gera sam- bærilega kröfu til okkar sjálfra ef við viljum teljast góðir gestgjafar. Gestgjafar Óstaðfest frétt Hringbraut birti í gær frétt þess efnis að fyrrverandi forseti Alþingis, Unnur Brá Konráðs- dóttir, hefði bakkað úr borginni eftir að hún sá niðurstöður óformlegrar könnunar um stöðu mála fyrir kosningar. Unnur tók til varna og sagði miðilinn vera að birta hreina og klára lygi. Mörgum er eflaust í fersku minni þegar Hringbraut birti „óstaðfesta frétt“ um að ríkis- stjórnarviðræðum núverandi stjórnarflokka yrði slitið skömmu áður en sættir tókust. Útlit er fyrir að Hringbraut þurfi að velja betri heimildarmenn. Endurkoma ársins Allir aðdáendur pabbabrandara og háfleygra yfirlýsinga fögnuðu ákaft í gær þegar það var kunn- gjört að stofnandi fýlupúka- félags þingmanna Sjálfstæðis- flokksins stefndi á endurkomu á Facebook. Brynjar Níelsson fór í samskiptamiðlabindindi tveim- ur vikum eftir kosningarnar síðasta haust og hafði þá á orði að miðlarnir væru farnir „að hafa alvarleg áhrif á geðheilsu þjóðarinnar“. Fólk skiptist í tvo hópa, ýmsir fögnuðu brotthvarfi Brynjars meðan aðrir sátu sárir eftir. Óháð því hvaða skoðun fólk hefur á skoðunum Brynjars ættu allir að geta sammælst um það að hann hefur fyrir löngu áttað sig á því að fótbolti er ekk- ert skemmtilegur ef það er bara eitt lið á vellinum. joli@365.is 8 . j a n ú a r 2 0 1 8 M Á n U D a G U r8 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð SKOÐUN 0 8 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A D -9 7 2 4 1 E A D -9 5 E 8 1 E A D -9 4 A C 1 E A D -9 3 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.