Fréttablaðið - 08.01.2018, Blaðsíða 29
Brottrekstrarhrina í ensku úrvalsdeildinni
Þegar tímabilið er rétt rúmlega hálfnað hafa sjö knattspyrnustjórar í ensku úrvalsdeildinni verið látnir taka pokann sinn. Sá fyrsti, Frank de Boer, var rekinn eftir aðeins
fjóra deildarleiki við stjórnvölinn hjá Crystal Palace og í fyrradag bættist Mark Hughes í hóp brottrekinna stjóra. Banabiti hans var tap Stoke fyrir D-deildarliði Coventry.
Eftir mikla rekistefnu var Sam
Allardyce ráðinn til Everton, rúmum
mánuði eftir að Koeman var rekinn.
Stóri Sam hefur stoppað í götin í
varnarleik Everton sem er komið
upp í 9. sæti deildarinnar.
Slaven Bilic var rekinn frá West
Ham 6. nóvember og daginn eftir
var David Moyes ráðinn í hans stað.
Bilic gerði fína hluti á sínu fyrsta
tímabili hjá West Ham en var senni-
lega heppinn að fá að halda starfinu
jafn lengi og raun bar vitni eftir slakt
gengi í fyrra
Moyes hefur rétt West Ham-skút-
una af þótt sigrarnir séu aðeins þrír í
12 leikjum undir hans stjórn. Hamr-
arnir eru þó komnir upp úr fallsæti.
Tony Pulis fékk sparkið hjá West
Brom 20. nóvember eftir 10 leiki í
röð án sigurs. Alan Pardew tók við
starfi Pulis. West Brom bíður enn
eftir fyrsta deildarsigrinum undir
hans stjórn. Þrátt fyrir að West Brom
hafi ekki unnið leik síðan 19. ágúst, í
2. umferð, er liðið bara fjórum stig-
um frá öruggu sæti í ensku úrvals-
deildinni.
Fjórum dögum fyrir jól var Paul
Clement látinn fara frá Swansea
City, eftir innan við ár í starfi. Undir
stjórn Clements björguðu Svanirnir
sér frá falli á síðasta tímabili. Í sumar
leituðu Gylfi Þór Sigurðsson og
Fernando Llorente á önnur mið og
þar fór sóknarleikur Swansea á einu
bretti. Liðið hefur aðeins skorað 13
mörk í 22 deildarleikjum í vetur.
Portúgalinn Carlos Carvalhal var
rekinn frá B-deildarliði Sheffield
Wednesday á aðfangadag en fjór-
um dögum seinna var hann ráðinn
stjóri Swansea. Carvalhal er fjórði
stjóri Swansea á síðustu tveimur
árum.
Ekki er loku fyrir það skotið að
áttundi stjórinn verði látinn taka
pokann á næstunni. Mauricio Pel-
legrino, stjóri Southampton, situr í
heitu sæti. Lítil ánægja er með störf
hans en stuðningsmenn Southamp-
ton bauluðu á liðið í 0-1 sigri á Ful-
ham á laugardaginn. Dýrlingarnir
eru í 17. sæti ensku úrvalsdeildar-
innar og í fallbaráttu eins og staðan
er núna. ingvithor@frettabladid.is
Deildin hefur verið
í forgangi hjá okkur
og það gæti verið blessun í
dulargervi að við höfum
dottið út.
Mark Hughes
Mark Hughes var fjórði
langlífasti knattspyrnustjór-
inn í ensku úrvalsdeildinni.
Hann tók við Stoke sumarið
2013 og stýrði liðinu í alls
200 leikjum.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Í dag
Domino’s deild karla
19.15 Njarðvík - Þór Þ.
Ármúla 4-6, Reykjavík
511 2777 | sala@betribilakaup.is
Gerðu betri kaup hjá okkur! Hringdu í 511 2777
2017 Kia Optima Phev
2017 Mitsubishi Outlander Arctic Phev
2017 Nissan Leaf Tekna+
Fullkominn fyrir íslenskar aðstæður - 4X4
Apple Carplay/Android Auto
Eini tengitvinn bíllinn sem er með hraðhleðslu
360° myndavélakerfi
Verð 4.430.000 kr.
Er á staðnum
Vertu velkominn í reynsluakstur!
30 Kwh rafhlaða
250 km á hleðslunni
Verð 3.565.000 kr.
Glæsilegur og mjög vel útbúinn
Harman/Kardon hljóðkerfi
Plug-In Hybrid
Hraðastillir með aðlögun
Verð 3.790.000 kr.
facebook.com/betribilakaup
KR - Stjarnan 85-70
Stigahæstir: Kristófer Acox 28/12 fráköst,
Brynjar Þór Björnsson 14, Darri Hilmarsson
12 - Collin Pryor 22/10 fráköst, Arnþór Freyr
Guðmundsson 11, Hlynur Bæringsson 10.
Höttur - ÍR 74-90
Stigahæstir: Kelvin Lewis 29, Mirko
Stefán Vrijevic 17/14 fráköst - Matthías Orri
Sigurðarson 19, Ryan Taylor 17/10 fráköst,
Sveinbjörn Claessen 15, Danero Thomas 13.
Tindastóll - Valur 103-67
Stigahæstir: Antonio Hester 25, Sigtryggur
Arnar Björnsson 15, Brandon Garrett 14/8
fráköst, Helgi Margeirsson 12 - Gunnar Ingi
Harðason 26, Oddur Birnir Pétursson 9.
Keflavík - Þór Ak. 98-100
Stigahæstir: Dominique Elliott 29/11 frá-
köst, Hörður Axel Vilhjálmsson 18/10 stoðs.
- Ingvi Rafn Ingvarsson 20, Hilmar Smári
Henningsson 18, Sindri Davíðsson 16.
Haukar - Grindavík 90-78
Stigahæstir: Kári Jónsson 30, Breki Gylfa-
son 16, Finnur Atli Magnússon 10/7 fráköst
- Dagur Kár Jónsson 20/8 stoðs., Sigurður
Þorsteinsson 16/14 fráköst.
Efri
Haukar 20
KR 20
ÍR 20
Tindastóll 18
Keflavík 14
Njarðvík 14
Neðri
Grindavík 14
Stjarnan 12
Þór Þ. 8
Valur 8
Þór Ak. 6
Höttur 0
Domino’s-deild kvenna
Snæfell - Keflavík 53-80
Stigahæstar: Kristen McCarthy 23/12 frá-
köst, Rebekka Rán Karlsdóttir 9 - Brittanny
Dinkins 27/7 fráköst/11 stoðsendingar,
Erna Hákonardóttir 14.
Valur - Breiðablik 85-52
Stigahæstar: Aalyah Whiteside 19, Ásta
Júlía Grímsdóttir 16, Guðbjörg Sverrisdóttir
13/10 fráköst/9 stoðs. - Ivory Crawford
18/10 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 12.
Njarðvík - Skallagrím. 61-76
Stigahæstar: Shalonda Winton 34/15 frá-
köst - Carmen Tyson-Thomas 25/12 fráköst,
Ziomora Esket Morrison 18/11 fráköst,
Jóhanna Björk Sveinsdóttir 9/7 fráköst.
Haukar - Stjarnan 82-76
Stigahæstar: Cherise Daniel 28/12 fráköst,
Rósa Björk Pétursdóttir 16, Ragnheiður
Björk Einarsdóttir 14 -Danielle Rodriguez
32/13 stoðs., Bríet Sif Hinriksdóttir 19.
Efri
Valur 24
Haukar 20
Keflavík 20
Stjarnan 16
Neðri
Breiðablik 16
Skallagrímur 14
Snæfell 10
Njarðvík 0
West Brom
Tony
Pulis
20. nóvember 2017
Swansea
Paul
ClemenT
20. desember 2017
Stoke City
mark
HugHes
6. janúar 2018
KoMinn TiL BArCELonA
Brasilíumaðurinn Philippe
Coutinho er genginn í raðir Barce-
lona frá Liverpool. Greint var frá
félagaskiptunum á laugardaginn
og í dag verður Coutinho kynntur
til leiks hjá Barcelona. Kaupverðið
er 142 milljónir punda sem gerir
Cout inho að næstdýrasta leik-
manni allra tíma á eftir landa hans,
neymar. Coutinho gekk í raðir
Liverpool í árs-
byrjun 2013 og lék
yfir 200 leiki og
skoraði 54 mörk
fyrir liðið. Barce-
lona reyndi
að kaupa
brasilíska
landsliðs-
mann-
inn
síðasta
sumar
en það
tókst ekki
fyrr en
nú.
S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ðs P T T T a l am Á n u D a g u r 8 . j a n ú a r 2 0 1 8
0
8
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
D
-7
E
7
4
1
E
A
D
-7
D
3
8
1
E
A
D
-7
B
F
C
1
E
A
D
-7
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K