Fréttablaðið - 08.01.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.01.2018, Blaðsíða 12
Brottrekstrarhrina í ensku úrvalsdeildinni Þegar tímabilið er rétt rúmlega hálfnað hafa sjö knattspyrnustjórar í ensku úrvalsdeildinni verið látnir taka pokann sinn. Sá fyrsti, Frank de Boer, var rekinn eftir aðeins fjóra deildarleiki við stjórnvölinn hjá Crystal Palace og í fyrradag bættist Mark Hughes í hóp brottrekinna stjóra. Banabiti hans var tap Stoke fyrir D-deildarliði Coventry. fótbolti Mark Hughes var rekinn sem knattspyrnustjóri Stoke City á laugardagskvöldið. Kornið sem fyllti mælinn hjá annars þolin- móðum stjórnarmönnum Stoke var neyðarlegt 2-1 tap fyrir D-deildar- liði Coventry City í 3. umferð ensku bikarkeppninnar. Það var 200. og síðasti leikur Hughes við stjórn- völinn hjá Stoke. Hann er sjöundi stjórinn í ensku úrvalsdeildinni sem missir starfið sitt í vetur. Þeir ágætu menn sem starfa þar búa ekki við mikið starfsöryggi. Eftir að hafa stýrt Stoke til 9. sætis ensku úrvalsdeildarinnar á fyrstu þremur tímabilum sínum við stjórnvölinn hjá liðinu féll það niður í 13. sæti í fyrra. Í vetur hefur svo sigið enn frekar á ógæfuhliðina. Stoke skorar lítið og ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni hefur fengið á sig fleiri mörk, eða 47 talsins. Hughes var gagnrýndur fyrir að tefla fram veiku liði í 5-0 tapi fyrir Englandsmeisturum Chelsea 30. desember. Walesverjinn réttlætti þá ákvörðun með því að Stoke ætlaði að einbeita sér að leiknum gegn Newcastle United á nýársdag. En hann tapaðist og það þrengdi enn frekar að Hughes sem skilur við Stoke í 18. sæti ensku úrvals- deildarinnar. Martin O’Neill, landsliðsþjálfari Írlands, er efstur á lista veðbanka yfir líklegustu eftirmenn Hughes hjá Stoke. Eins og áður sagði hafa hæstráð- endur liðanna í ensku úrvalsdeild- inni ekki sýnt neina miskunn þegar kemur að því að skipta um stjóra í vetur. Sjö stjórar hafa fengið að taka pokann sinn þegar tímabilið er rétt rúmlega hálfnað. Leikmaður helgarinnar Eric Lichaj skoraði tvívegis þegar Nottingham Forest gerði sér lítið fyrir og sló ríkjandi bikarmeistara Arsenal úr leik, 4-2, í 3. umferð ensku bikarkeppn- innar í gær. Bæði mörk Lichajs komu í fyrri hálf- leik. Í þeim seinni fékk Forest tvær vítaspyrnur en Bandaríkjamaðurinn fékk ekki tækifæri til að ná þrennunni. „Þetta var gott. Konan mín var búin að lofa mér að fá hund ef ég skoraði þrennu á þessu ári, svo ég reyndi að fá að taka vítin,“ sagði Lichaj léttur í lund eftir sigurinn frækna í gær. Stuðningsmenn Forest gátu loksins glaðst í gær en liðinu hefur gengið illa í vetur og knattspyrnustjórinn Mark War- burton var rekinn á gamlárs- dag. Gary Brazil tók tíma- bundið við og stýrði liðinu í leiknum gegn Arsenal. - iþs Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Manchester City lenti undir gegn Burnley en tvö mörk frá Sergio Agüero á þremur mínútum komu liðinu í bílstjórasætið. City vann á endanum 4-1 sigur og hefur ekki enn tapað fyrir enskum and- stæðingi á tímabilinu. Liðið á enn möguleika á að vinna alla þá titla sem í boði eru á þessu tímabili. Hvað kom á óvart? Coventry leikur í D- deildinni í dag og má svo sannarlega muna fífil sinn fegurri. Þrátt fyrir það vann liðið frábæran 2-1 sigur á úrvalsdeildarliði Stoke City á heimavelli á laugardaginn. Coventry varð bikarmeistari árið 1987 og það er spurning hvort annað bikarævintýri sé í upp- siglingu hjá hinum himinbláu. Mestu vonbrigðin Arsenal varð bikar- meistari í þriðja sinn á fjórum árum í fyrra. Það er hins vegar ljóst að Skytturnar verja ekki titilinn í ár því þær töpuðu óvænt, 4-2, fyrir Notting- ham Forest í gær. Þetta er í fyrsta sinn síðan Arsene Wenger tók við Arsenal (1996) sem liðið fellur úr leik í 3. umferð ensku bikar- keppninnar. Það voru bara fjórar umferðir búnar þegar Steve Parish, stjórnar- formaður Crystal Palace, gafst upp á Hollendingnum Frank de Boer. Palace tapaði öllum fjórum deild- arleikjunum undir hans stjórn og skoraði ekki mark. De Boer var aðeins 77 daga við stjórnvölinn hjá Palace. Við starfi De Boers tók Roy Hodg- son og sá gamli hefur heldur betur gert góða hluti hjá uppeldisfélaginu. Palace hefur safnað 22 stigum síðan Hodgson tók við og er komið upp í 14. sæti deildarinnar. Þann 17. október var punkturinn settur aftan við veru Craigs Shake- speare hjá Leicester City. Maðurinn með skáldlega nafnið tók við Ref- unum af Claudio Ranieri í febrúar 2017 og þeir byrjuðu frábærlega undir hans stjórn. Leicester fékk hins vegar afar erfiða leiki í byrjun þessa tímabils og fá stig komu í hús. Shakespeare var því rekinn og Frakkinn Claude Puel tók við. Leicester hefur klifið töfluna undir hans stjórn og er búið að koma sér þægilega fyrir í 8. sætinu. Aðeins sex dögum eftir að Shake- speare var rekinn fór Ronald Koem- an sömu leið. Hollendingurinn stýrði Everton í síðasta sinn í 2-5 tapi fyrir Arsenal. Koeman keypti leikmenn fyrir rúmar 150 milljónir punda í sumar en mistókst að fylla skarðið sem Romelu Lukaku skildi eftir sig. Enska bikarkeppnin Úrslit 3. umferðar 2017-18 Man. City - Burnley 4-1 0-1 Ashley Barnes (25.), 1-1 Sergio Agüero (56.), 2-1 Agüero (58.), 3-1 Leroy Sané (71.), 4-1 Bernardo Silva (82.). Coventry - Stoke 2-1 1-0 Jordan Willis (24.), 1-1 Charlie Adam, víti (54.), 2-1 Jack Grimmer (68.). Fulham - Southampton 0-1 0-1 James Ward-Prowse (29.). Newcastle - Luton 3-1 1-0 Ayoze Pérez (30.), 2-0 Pérez (36.), 3-0 Jonjo Shelvey (39.), 3-1 Danny Hylton (49.). Norwich - Chelsea 0-0 Watford - Bristol City 3-0 1-0 André Carrillo (37.), 2-0 Troy Deeney (57.), 3-0 Étienne Capoue (85.). B’mouth - Wigan 2-2 0-1 Will Grigg (4.), 0-2 Emerson Hyndman, sjálfsmark (29.), 1-2 Lys Mousset (55.), 2-2 Steve Cook (90+2.). Exeter - West Brom 0-2 0-1 Salomón Rondón (2.), 0-2 Jay Rodriguez (25.). Bolton - Huddersfield 1-2 0-1 Rajiv van La Parra (51.), 0-2 Danny Williams (52.), 1-2 Derik Osede (64.). Tottenham - Wimbledon 3-0 1-0 Harry Kane (63.), 2-0 Kane (65.), 3-0 Jan Vertonghen (71.). N. Forest - Arsenal 4-2 1-0 Eric Lichaj (20.), 1-1 Per Mertesacker (23.), 2-1 Lichaj (44.), 3-1 Ben Brereton, víti (64.), 3-2 Danny Welbeck (79.), 4-2 Kieran Dowell, víti (85.). Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum í Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Skoraði mark Everton í 2-1 tapi fyrir Liverpool í grannaslag á föstudagskvöldið. Lék allan leikinn. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Er meiddur og lék ekki með Cardiff sem gerði markalaust jafntefli við Mansfield. Reading Jón Daði Böðvarsson Lék ekki með Reading sem gerði markalaust jafntefli við Stevenage. Aston Villa Birkir Bjarnason Byrjaði inn á og lék fyrstu 80 mínúturnar í 1-3 tapi fyrir Peterborough. Bristol City Hörður B. Magnússon Lék allan leikinn fyrir Brist ol City sem tapaði 3-0 fyrir Watford á útivelli. Burnley Jóhann Berg Guðm. Var í byrjunarliði Burnley sem tapaði 4-1 fyrir Manc- hester City. Jóhanni Berg var skipt af velli á 75. mínútu. Önnur helstu úrslit Boro 2 – 0 Sunderland Aston Villa 1 – 3 Peterborough Birmingham 1 – 0 Burton Blackburn 0 – 1 Hull Fleetwood 0 – 0 Leicester Wolves 0 – 0 Swansea Brentford 0 – 1 Notts County Cardiff 0 – 0 Mansfield Carlisle 0 – 0 Sheff. Wed. Doncaster 0 – 1 Rochdale Ipswich 0 – 1 Sheff. Utd. Millwall 4 – 1 Barnsley QPR 0 – 1 MK Dons Stevenage 0 – 0 Reading Wycombe 1 – 5 Preston Shrewsbury 0 – 0 West Ham Yeovil 2 – 0 Bradford Newport 2 – 1 Leeds Crystal Palace frank de boer 11. september 2017 Leicester Craig ShakeSpeare 17. október 2017 Everton ronald koeman 23. október 2017 West Ham Slaven biliC 6. nóvember 2017 West Brom tony puliS 20. nóvember 2017 8 . j a n ú a r 2 0 1 8 m Á n u d a g u r12 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 0 8 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A D -7 E 7 4 1 E A D -7 D 3 8 1 E A D -7 B F C 1 E A D -7 A C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.