Víkurfréttir - 13.02.2003, Qupperneq 8
bikarmeistaratitill KeflavíkurFjórði
Keflavík varð um helginabikarmeistari karla íkörfuknattleik eftir að
hafa borið sigurorð af Snæfelli,
95:71, í úrslitaleik sem fram
fór í Laugardalshöllinni. Stað-
an í hálfleik var 46:33. Þetta er
fjórði bikarmeistaratitill liðsins
og með þessum sigri færist liðið
nær markmiði vetrarins, að
vinna alla titla sem í boði eru.
Leikurinn var mjög fjörugur til
að byrja með. Í lok 1. leikhluta
má segja að kaflaskil hafi orðið í
leiknum en þá átti sér stað um-
deilt atvik þegar Hynur Bærings-
son og Damon Johnson lentu í
slagsmálum og allt ætlaði uppúr
að sjóða. Mörgum fannst að
dómararnir hefðu átt að henda
báðum leikmönnum út úr húsi en
þeir gerðu hins vegar það eina
rétta í stöðunni, gáfu báðum leik-
mönnum tæknivillu og þar með
var málið afgreitt, enda hefði ver-
ið sorglegt að fá hvorki að sjá
Damon Johnson né Hlyn Bær-
ingsson ljúka leiknum.
Eftir þetta atvik fór Damon í
gang og fylgdi allt Keflavíkurlið-
ið í kjölfarið. Magnús Gunnars-
son átti góða rispu í lok hálfleiks-
ins með tveimur þristum og fóru
Keflvíkingar með 13 stiga for-
skot inn í klefa í hálfleik. Síðari
hálfleikurinn var ekki næstum
eins skemmtilegur og sá fyrri
enda gerðu Keflvíkingar út um
leikinn strax í byrjun 3. leikhluta
og eftir að hafa náð á tímabili um
30 stiga forskoti var aldrei spurn-
ing hvorum megin sigurinn
myndi enda, til þess voru Kefl-
víkingar of sterkir. Allir komust á
blað hjá Keflavík. Damon John-
son var bestur með 27, 13 fráköst
og 8 stoðsendingar stig en hann
fór í gang eftir hin umdeildu
slagsmál. Edmund Saunders
skoraði 19 stig og tók 12 fráköst
og Magnús Þór Gunnarsson sko-
raði 11 stig.
Guðjón Skúlason sem vann
sinn fimmta bikarmeistaratitil í
átta tilraunum sl. laugardag og
Ólöf Einarsdóttir, kona hans,
eignuðust litla körfuboltastelpu
á þriðjudag. Stelpan var 3680
gr og 53 sm. Guðjón er því
greinilega að standa sig í
stykkinu á fleiri stöðum en á
körfuboltavellinum.
Jóhann B. Guðmundsson
leikmaður Lyn í Noregi skor-
aði tvö mörk úr vítaspyrnum
fyrir liðið í sigurleik gegn
Lilleström um helgina en um
var að ræða æfingaleik. Jó-
hann var í framlínunni ásamt
Helga Sigurðssyni.
Haukur Ingi Guðnason mun
að öllum líkindum skrifa undir
samning við Fylki á allra
næstu dögum. Haukur sem
hefur verið í landsliði Íslands í
undanförnum leikjum telur
mikilvægt að leika í úrvals-
deild ætli hann sér að halda
sætinu og því varð hann að yf-
irgefa herbúðir Keflvíkinga.
Krystal Scott skoraði 29 stig
fyrir Njarðvíkurstúlkur þegar
þær töpuðu fyrir KR, 68:58, sl.
mánudag. Njarðvík er í 4. sæti
sem stendur með 14 stig og eru
því enn í úrslitasæti. Lítið má
þá útaf bera því liðin fyrir
neðan sækja fast á hæla þeirra.
::Fyrst og fremst
:: Í leikslok
Keflavíkurstúlkur töpuðufyrir ÍS í bikarúrslita-leiknum í Laugardalshöll
á laugardag. Lokastaðan var
53:51. Eftir æsispennandi
lokamínútur skildu liðin jöfn,
48:48 og því þurfti að fram-
lengja þar sem ÍS hafði betur
og sigraði. Keflavík var 16 stig-
um yfir þegar fjórði og síðasti
leikhluti hófst. Þær hins vegar
skoruðu ekki stig utan af velli í
16 mínútur og því fór sem fór.
Anna María Sveinsdóttir var að
vonum vonsvikin eftir leikinn
„Þetta var svakalega sárt og mað-
ur er ekki enn búinn að ná sér.
Það er verið að hugsa þetta fram
og til baka, hvað hafi farið úr-
skeiðis, en það er fátt um svör“.
Anna María sagðis varla geta
svarað hvað haf i gerst í 4.
leikhluta. „Ég er ekki búin að
skoða leikinn aftur en það var
eins og við héldum að leikurinn
væri búinn. Við spiluðum glimr-
andi vel í 30 mínútur en svo var
eins og við værum að reyna að
halda fengnum hlut í 4. leikhluta
og bíða eftir að leikurinn væri
búinn. Við missum svo Soniu
útaf með 5 villur og þá var eins
og allt frysi í sókninni. Við ógn-
uðum ekkert fyrir utan og þegar
við fengum boltann inní þá var
pakkað á okkur og við settum
ekki auðveld skot niður“.
Hún segir að nú verði stelpurnar
bara að reyna að gleyma þessum
leik því framundan sé Íslands-
mótið þar sem þær ætli sér sigur.
„Þetta verður sett í
reynslubankann og við munum
koma sterkar til baka“.
Leikurinn okkar frá upphafi
„Ætli að þetta sé ekki síðasta
skiptið sem ég tek við þessum
bikar sem leikmaður en þó er
aldrei að vita”, sagði Guðjón
Skúlason fyrirliði Keflvíkinga í
leikslok eftir að hann hafði tek-
ið við bikarnum í fjórða sinn
fyrir Keflavík. „Leikurinn var
okkar frá upphafi en í byrjun
síðari hálfleiks náðum við að
hrista þá algjörlega af okkur.
Við erum með unga og
reynslumikla leikmenn innan
okkar raða og það er góð blan-
da. Nú eru aðeins tveir titlar eft-
ir sem við ætlum okkur að
vinna og því fer lítill tími í að
fagna. Ég vil fá að þakka áhorf-
endum fyrir stuðninginn en þeir
voru frábærir í dag“.
Ólýsanleg tilfinning
“Þetta var alveg ólýsanleg til-
finning, ég er hreint og beint í
sjöunda himni núna, það frá-
bært að vinna í
fyrsta skipti með
öllum þessum
snillingum hérna”,
sagði Gunnar Stef-
ánsson leikmaður
Keflvíkinga í
leikslok aðspurður
um það hvernig
væri að vinna sinn
fyrsta bikarmeist-
aratitil. „Stemn-
ingin innan liðsins
var mjög góð alla
vikuna og undir-
búningurinn frá-
bær. Okkur hlakkaði mikið til
þessa leiks og lögðum okkur
alla fram og þetta eru svo sann-
arlega laun erfiðisins”. Gunnar
sagði að leikurinn hafi í raun
ekki verið auðveldur þrátt fyrir
öruggan sigur. „Þetta var ekkert
auðveldara en maður bjóst við.
Ég held bara að við gerum okk-
ur grein fyrir því að ef við spil-
um okkar leik og leggjum okk-
ur 100% fram þá getur ekkert
lið stoppað okkur og við sönn-
uðum það hér í dag. Nú er bara
að ná næsta bikar, sem er titill
sem við þurfum að verja en það
er deildarmeistaratitillinn. Við
þurfum að byrja á að vinna í
Grindavík á föstudaginn og svo
tökum við einn leik í einu. Við
ætluðum okkur að vinna alla
bikarana sem í boði eru. Það
stendur enn og ætlum við að
gera það fyrir stuðningsmenn
okkar og alla Keflvíkinga, þeir
eiga það skilið”, sagði Gunnar
Stefánsson kampakátur í leiks-
lok.
Jón Norðdal og Magnús Þór unnu fyrsta
bikarmeistaratitil sinn um sl. helgi á
meðan Guðjón Skúlason vann sinn fimmta.
Þessi mynd af Svövu Ósk lýsir
vonbrigðum Keflavíkurstúlkna.
Fer í reynslubankann
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 17:38 Page 8