Víkurfréttir - 13.02.2003, Page 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
-Ömmureglan er einföld og
áhrifarík leið til að fá börn og
unglinga til að sinna þeim verk-
um sem þú
ætlar þeim.
Þegar þú not-
ar ömmuregl-
una tengir þú
saman það
sem þú vilt
að barnið
geri og það
sem barnið
vill gera, þannig að barninu er
umbunað fyrir æskilega hegðun
með því að það fær að gera það
sem það langar til. Ef ömmuregl-
an er notuð rétt, eykur þú líkurn-
ar á því að barnið hlýði þér.
-Almennt gildir um hegðun, að
tíðni hegðunar sem hefur já-
kvæðar eða eftirsóknarverðar af-
leiðingar fyrir barnið eykst. Með
því að umbuna barninu fyrir þau
verk sem þú ætlar því, með af-
leiðingum sem eru eftirsóknar-
verðar fyrir barnið, aukast líkurn-
ar á því að barnið gegni.
-Ömmureglan virkar sérstaklega
vel til að fá barnið til að sinna
húsverkum. Til að skerpa á því
hvernig þú getur notað ömmu-
regluna ætla ég að gefa þér nokk-
ur dæmi. „Þú mátt fara í tölvuna
þegar þú ert búinn að vaska
upp“. „Þú mátt fá ís eftir matinn
þegar þú ert búinn að borða
grænmetið“. „Þegar þú ert búin
að æfa þig á flautuna geturðu far-
ið og spurt eftir Halldóru“. „Þeg-
ar þú ert búinn að fara út með
ruslið geturðu farið á æfingu“.
„Þegar þú ert búinn að gera þig
tilbúinn í háttinn máttu horfa á
Spaugstofuna“. „Þú mátt fara út
að leika þér þegar þú ert búin/n
að læra heima“.
-Það er auðvelt að nota ömmu-
regluna. Það eina sem þú þarft að
varast er að gæta þess að snúa
henni ekki við. Dæmi um við-
snúning gæti verið. „Allt í lagi,
þú mátt fara til Halldóru, en þú
verður að lofa að taka til í her-
berginu þegar þú kemur heim“.
Ef þú snýrð ömmureglunni við
og leyfir barninu að fá það sem
því finnst eftirsóknarvert áður en
það hefur framkvæmt það sem
þú vilt að það geri, minnka lík-
urnar á því að barnið hlýði þér.
Ef þú lætur undan og leyfir barn-
inu að snúa ömmureglunni við,
ertu í raun að umbuna barninu
fyrir að mótmæla þér með því að
sleppa barninu við að vinna verk-
ið sem þú vilt að það vinni. Með
öðrum orðum: Ef barnið veit að
það getur komist hjá því vinna
verk með því að taka æðiskast,
tuða eða mótmæla þér, mun tíðni
þeirrar hegðunar aukast, vegna
þess að barninu er umbunað fyrir
þessa óæskilegu hegðun með því
að sleppa við að vinna verkið.
-Hafðu hugfast að öll börn reyna
á þau mörk sem þeim eru sett.
Það er eðlilegt að barnið athugi
hversu staðfastur/föst þú ert og
reyni að koma sér undan kvöðum
eða fresta þeim. Flest börn reyna
því stundum að snúa ömmuregl-
unni sér í hag. Það er jafneðlilegt
að þú ætlir barninu tiltekin verk í
samræmi við þroskastig barnsins
og gangir eftir því að þau séu
unnin með því að nota ömmu-
regluna rétt.
Gangi þér vel að nota
ömmuregluna.
Gylfi Jón Gylfason
yfirsálfræðingur á
Skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar
Er ömmureglan
notuð á þínu
heimili?
H ljómsveitin Kiss the jazzspilar á Zetunni aðHafnargötu laugardag-
inn 15. febrúar. Hljómsveitin er
skipuð fimm Keflvíkingum,
þeim Gunnari Inga Guð-
mundssyni á bassa, Gylfa
Gunnari Gylfasyni á gítar,
Helga Má Hannessyni á hljóm-
borð, Jóni Marínó Sigurðssyni
söng og Þorvaldi Halldórssyni
á trommur. Búast má við mik-
illi stemningu á Zetunni enda
eru allir þessir kappar frábær-
ir tónlistarmenn og ættu aðdá-
endur góðrar djazztónlistar
ekki að láta þetta framhjá sér
fara.
Kiss the jazz fá til liðs við sig tvo
gestaleikara á laugardagskvöldið
en það eru Margeir Hafsteinsson
trompetleikari og Valdimar Guð-
mundsson básúnuleikari.
Það var rífandi stemning í NFS-partýi sem haldið var áskemmtistaðnum Zetunni sl. fimmtudag. Dj. Sóley sá um aðþeyta skífur af sinni alkunnu snilld en hún var nýlega kjörin
besti dj landsins af tónlistartímaritinu Undirtónar. Um 100 ung-
lingar á aldrinum 16-18 ára mættu á svæðið en miðarnir í Zetuna
seldust upp á tæpum klukkutíma að sögn Runólfar Sanders vara-
formanns NFS. Hann sagði að krakkarnir hefðu skemmt sér kon-
unglega og að kvöldið hefði verið mjög vel heppnað.
Kiss the jazz á Zetunni
Helgin framundan!
Þeir bíógestir sem sáu fjölskyldu-
myndina um Diddu og dauða
köttinn í Keflavík sl. föstudags-
kvöld kl. 18 eða 20 geta tekið
gleði sína á ný, því þeir geta allir
fengið að sjá myndina aftur, gegn
framvísun bíómiðans. Ástæðan er
sú að sýningareintakið sem sýnt
var á þessum tveimur sýningum
var gallað og hljóðið ekki eins og
það átti að vera. Nú hefur hins
vegar verið gert nýtt sýningarein-
tak og bæði hljóð og mynd eins
og best verður á kosið. Kvik-
myndin fær mjög góða dóma og í
Morgunblaðinu fær kvikmyndin
tvær og hálfa stjörnu, sem er
mjög góður dómur um myndina.
Kvikmyndin um Diddu og dauða
köttinn er bæði fyndin og spenn-
andi og þarna fer mynd sem hvor-
ki börn, unglingar, né fullorðnir
mega láta fram hjá sér fara.
Sást þú Diddu?
Sýslumaðurinn í Keflavík
Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík,
s: 420 2400
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Vatnsnesvegi 33,
Keflavík fimmtudaginn 20. febrúar
2003 kl. 10:00 á eftirfarandi
eignum:
Akurgerði 3, Vogar 225-3318,
þingl. eig. Gunnar Júlíus Helgason,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í
Keflavík.
Akurgerði 5, Vogar 225-6509,
þingl. eig. Gunnar Júlíus Helgason,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í
Keflavík.
Brekkustígur 8, Njarðvík 209-
3008, þingl. eig. Ómar Hafsteins-
son, gerðarbeiðandi Íbúðalá-
nasjóður.
Fitjabraut 26a, 0101, Njarðvík,
þingl. eig. Ásmundur Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í
Keflavík.
Fífumói 5b, 0302, Njarðvík, þingl.
eig. Sigurbjörn Ólafsson, gerðar-
beiðandi Sýslumaðurinn í Keflavík.
Hafnargata 19, Hafnir, þingl. eig.
Katrín Sjöfn Sveinbjörnsdóttir og
Jósef Zarioh, gerðarbeiðendur
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn og
Tryggingamiðstöðin hf.
Hátún 8, Keflavík 208-8348, þingl.
eig. Kristinn Sörensen, gerðar-
beiðandi Sýslumaðurinn í Keflavík.
Hjallavegur 3e, Njarðvík, þingl.
eig. Sigrún Ellertsdóttir, gerðar-
beiðandi Landsbanki Íslands hf,
Kefvíkflv.
Staðarvör 5, 01-0101, Grindavík
eignarhluti Báru Þ. Einarsdóttur,
þingl. eig. Bára Þuríður Einars-
dóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður
Hornafjarðar/nágr.
Strandgata 22, Sandgerði 209-
5038, þingl. eig. Anna Ragna
Benjamínsdóttir, gerðarbeiðandi
Sýslumaðurinn í Keflavík.
Strandgata 6, Sandgerði, þingl. eig.
Júlíus Stefánsson, gerðarbeiðandi
Sparisjóður Hornafjarðar/nágr.
Strandgata 8, Sandgerði, þingl. eig.
Júlíus Stefánsson, gerðarbeiðandi
Sparisjóður Hornafjarðar/nágr.
Suðurgata 32, neðri hæð,
Sandgerði, þingl. eig. Gunnlaugur
Björgvinsson og Vilborg Rós
Eckard, gerðarbeiðendur
Landsbanki Íslands hf,Keflavík,
Landssími Íslands hf,innheimta og
Olíuverslun Íslands hf.
Túngata 13, 0302, Keflavík, þingl.
eig. H.J. Flutningar ehf, gerðar-
beiðendur Reykjanesbær og
Vátryggingafélag Íslands hf.
Vallargata 12a, Sandgerði, þingl.
eig. Björn Líndal Gíslason og
Jakoba Laurina Jensen, gerðar-
beiðandi Húsasmiðjan hf.
Sýslumaðurinn í Keflavík,
11. febrúar 2003.
Jón Eysteinsson
Sýslumaðurinn í Keflavík
Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s:
420 2400
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálfum,
sem hér segir
Aragerði 10, Vogum, þingl. eig.
Annþór Kristján Karlsson, gerðar-
beiðendur Íbúðalánasjóður og
Íslandsbanki hf, miðvikudaginn 19.
febrúar 2003 kl.
10:30.
Krókur 2, (Stamphólsvegur nr.2)
fnr. 3282, auk rekstrartækja og
búnaðar, Grindavík, þingl. eig. JEG
sf, gerðarbeiðendur Ferða-
málasjóður, Húsasmiðjan hf,
Landsbanki Íslands hf,Grindavík
og Samskip hf, miðvikudaginn 19.
febrúar 2003 kl. 11:00.
Vitabraut 1, Hafnir, þingl. eig.
Íslensk Sjávarsölt ehf, gerðar-
beiðendur Byko hf og Valbjörn
Steingrímsson, miðvikudaginn 19.
febrúar 2003 kl. 11:45.
Víkurbraut 38, 0201, Grindavík,
þingl. eig. Guðrún María Þor-
geirsdóttir, gerðarbeiðendur
Grindavíkurkaupstaður og Íbúða-
lánasjóður, miðvikudaginn 19.
febrúar 2003 kl. 11:15.
Víkurbraut 4, Keflavík, þingl. eig.
Gullbílar ehf, gerðarbeiðendur
Hlíf,lífeyrissjóður, Reykjanesbær
og Tryggingamiðstöðin hf,
miðvikudaginn
19. febrúar 2003 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Keflavík,
11. febrúar 2003.
Jón Eysteinsson
Leiðrétting
Í síðasta tölublaði Víkurfrétta birtist
auglýsing um nauðungarsölu á
fasteigninni Melbraut 23, Garði,
þingl.eig. skv. kaupsamningi
Friðrik Hrannar Ólafsson og Svala
B Róbertsson. Það upplýsist hér
með að nauðungarsölubeiðnin var
á Karl Júlíusson og Aiddy
Einarsdóttur sem eru fyrri eigendur
eignarinnar.
Þetta tilkynnist hér með.
UPPBOÐ
7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 18:29 Page 24