Víkurfréttir - 27.02.2003, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hjálmar segir að það hafi verið gamall draumur
að setjast með trommukjuða og berja húðir: „Ég
hef spilað lengi á trommur í huganum, því þetta
hefur verið draumur í 45 ár eða frá því ég var smá
ormur,“ segir Hjálmar en sonur hans hvatti hann
til kaupa á trommusetti: „Rétt fyrir jólin lét ég
drauminn rætast fyrir hvatningu frá syni mínum
sem er að leika sér í bílskúrsbandi. Trommuleikar-
inn þar ákvað fyrir jólin að skipta um trommusett
og ég ákvað að fjárfesta í hans gamla setti og þar
með láta drauminn rætast.“
Annir þingmanna eru miklar og eftir annasaman
dag er nauðsynlegt að tæma hugann og einbeita
sér að áhugamáli: „Þetta er eins og að ganga ofan í
tæra laug eftir strangan vinnudag og koma þaðan
tandurhreinn af settinu. Ég fæ góða útrás með
trommuleiknum.“
Hjálmar segir að það hafi ekki verið leikur einn að
hefja trommuleikinn því samhæfa þurfi margar
aðgerðir í einu: „Þetta hefur gengið skrykkjótt og
reynist mun erfiðara en ég hélt. Ég fékk góðar
gjafir og hvatningu frá börnum mínum, meðal
annars bókina „The absolute beginners book for
drum players“ og trommukjuða. Ég keypti mér
síðan spólu fyrir algjöra byrjendur, en stóri vand-
inn er að hafa stjórn á öllum útlimunum í ólíkum
takti. Á tímabili var ég að brotna,“ segir Hjálmar
og kímir.
En Hjálmari var rétt hjálparhönd frá samflokks-
manni og vini sem þekktur er fyrir að hafa sungið
lagið Traustur vinur inn í hjörtu þjóðarinnar: „Síð-
an gerðist það á skrifstofu minni þar sem ég var
gráti næst yfir þessum vonbrigðum að kollegi
minn, Magnús Stefánsson, þingmaður Vestlend-
inga og Traustur vinur (söng lagið inn á plötu)
kom á skrifstofuna til mín og tók mig í kennslu-
stund. Magnús er þekktur trommuleikari og spilar
með hljómsveitinni Upplyftingu. Magnús kenndi
mér ákveðin trix inni á minni skrifstofu og ég sett-
ist síðan við trommusettið þegar ég kom heim og
undrið gerðist. Frá þessu andartaki hefur leiðin
legið beint upp á við. Að vísu hef ég mætt smá
niðurbroti því konan mín hefur tvisvar sinnum
kíkt á „kallinn“ inni í skúr og fengið hláturskast í
bæði skiptin,“ segir Hjálmar alvarlegur í bragði.
Töluverður hávaði fylgir trommuleik „kallsins“:
„Dóttir mín hefur forstofuherbergi sem liggur upp
að bílskúrnum og fyrir kemur að hún neyðist að
flýja úr herberginu sínu vegna látanna í föður sín-
um,“ segir Hjálmar en bætir við að dóttirin sé stolt
af pabba sínum.
Sonur Hjálmars og vinur hans hafa gefið honum
fyrirheit um að spila með honum ef hann standi
sig vel: „Hlynur Valsson og Ingvar Hjálmarsson
hafa sett upp þá gulrót fyrir mig að ef ég verði
duglegur að æfa mig þá muni þeir birtast með gít-
arana í bílskúrnum. Það er mikil hvatning fyrir
mig, enda hlakka ég til að spila með þeim.“
Hjálmar segir að hann stefni hátt í spilamennsk-
unni. Ég set markið hátt. Charlie Watts í Rolling
Stones er farinn að eldast og ég sé að hann muni
fljótlega hverfa af vettvangi hljómsveitarinnar. Ég
og Rúnar Júlíusson höfum talað um það að við
munum báðir reyna að fylla skörð hinna rosknu
félaga þegar þeir hverfa úr hljómsveitinni. Júlíus,
sonur Rúnars, er minn andlegi leiðtogi í þessu og
það fer að koma að því að hann fari að leiðbeina
mér frekar í trommuleiknum,“ segir Hjálmar og
þegar blaðamaður gengur út úr bílskúrnum má
heyra að „kallinn“ hefur náð ágætis tökum á
trommuleiknum og meira að segja takturinn er í
lagi.
- segir Hjálmar Árnason þingmaður og trommari í viðtali við Víkurfréttir
Trommusláttur heyrist nú með reglulegu millibili á Faxabrautinni í Keflavík, en al-
þingismaðurinn Hjálmar Árnason hefur orðið sér úti um trommusett sem hann ber
reglulega til að fá útrás eftir amstur dagsins í þinginu. Á síðustu mánuðum hefur
Hjálmar æft sig í trommuleik og verður að eigin sögn betri með hverjum degi.
trommur í huganum“
„Hef lengi spilað á
Fé til atvinnuuppbyggingar
fyrir konur á Suðurnesjum
Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 18. febrúar sl. var samþykkt
neðangreind ályktun til stjórnvalda: „Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja fram aukið fé til
vegaframkvæmda á næstu 18 mánuðum. Það er þó ljóst að sá fjöldi
starfa sem við það skapast er einkum hefðbundin karlastörf.
Jafnframt eru lagðar 700 milljónir kr. til Byggðastofnunar til atvinnu-
uppbyggingar. Það er mikilvægt að þær nýtist vel til uppbyggingar á
þeim svæðum þar sem atvinnuleysi er mest. Bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar hvetur því stjórn SSS, Atvinnu- og hafnarráð og aðra þá sem að
atvinnuuppbyggingu koma til að stuðla að því að Suðurnesin verði
ekki afskipt við úthlutun þessa fjár.“
Greinargerð:
Skv. tölum um atvinnuleysi á landinu 17. febr. 2003 eru 6244 atvinnu-
lausir, 3372 karlar og 2872 konur. Séu hins vegar aðeins teknar tölur
yfir atvinnuleysi á landsbyggðinni, þ.e. utan höfuðborgarsvæðisins eru
2295 skráðir atvinnulausir, 1159 karlar og 1136 konur. Af þessum fjöl-
da eru 472 búsettir á Suðurnesjum eða um 21%. Það er því mikilvægt
að þeir aðilar sem að atvinnuuppbyggingu geta komið á þessu svæði
leggi sig eftir því að tryggja Suðurnesjunum a.m.k. sinn hlut af þessari
fjárveitingu sérstaklega með kvennastörf í huga því hlutfallslega er at-
vinnuleysi kvenna mest hér á Suðurnesjum.
Fagna umræðu um verulega lækkun
flugvallaskatta á Keflavíkurflugvelli
Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar nú í vikunni var samþykkt neð-
angreind ályktun til stjórnvalda: „Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fagnar
umræðu um verulega lækkun á flugvallarskatti í millilandaflugi til
samræmis við innanlandsflugið og skorar á stjórnvöld að hrinda hug-
myndinni í framkvæmd sem allra fyrst.“
Greinargerð:
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fagnar þessari hugmynd enda til þess fall-
in að bæta rekstrarskilyrði ferðaþjónustunnar á Íslandi. Ekki getur tal-
ist eðlilegt að farþegaskattur í millilandaflugi standi undir uppbygg-
ingu innanlandsflugvalla eins og gert er í dag. Þá hefur Eftirlitsstofnun
EFTA gert athugasemdir við mismunandi flugvallaskatt hér á landi en
innheimtar eru 1.250 krónur við flug til útlanda en 165 krónur innan-
lands. Að mati stofnunarinnar brýtur þessi munur gegn ákvæðum
samningsins um Evrópska efnahagssvæðið um að engin höft skuli
vera á frelsi borgara EES-ríkja til að veita þjónustu í öðru ríki en sínu
eigin.
Mikilvægt er að auka markaðssetningu Keflavíkurflugvallar og auka
þannig komur erlendra flugfélaga og með því tryggja fjölgun erlendra
ferðamanna og tekjur samfélagsins. Á síðustu árum hafa afgreiðslu-
gjöld þjónustuaðila á Keflavíkurflugvelli lækkað til muna og því mik-
ilvægt að stjórnvöld taki á sínum hluta en lækkun flugvallarskatts
skiptir markaðssetningu flugvallarins miklu máli enda mjög stór hluti
af þeim gjöldum og sköttum sem flugrekendur þurfa að greiða.
Ú R B Æ J A R S T J Ó R N
Ályktanir í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
Suðurgata 32, Sandgerði.
86m2 eh. með 2 svefnh. og
36m2 bílskúr. Hagstæð lán
áhvílandi. 7.500.000.-
Til sölu
Suðurgata 28, Sandgerði.
Einbýli á 2 hæðum 161m2
4 svefnherbergi. Mikið endur-
nýjað að innan og utan. Hag-
stæð lán áhvílandi. 11.200.000.-
Fyrir mistök víxluðust myndir á þessum eignum
í síðustu viku, beðist er velvirðingar á því.
9. tbl. 2003 - 24 hbb 2/26/03 16:42 Page 8