Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.02.2003, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 27.02.2003, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Undanfarin tvö ár hafasvokölluð SOS námskeiðverið haldin í Reykjanes- bæ og hafa þau notið tals- verðra vinsælda. Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur hjá Skólaskrifstofu Reykjanesbæj- ar hefur kennt námskeiðið og hafa m.a. allir starfsmenn leik- og grunnskóla Sandgerðis og Voga setið námskeiðið. Skömmu eftir að Gylfi Jón hóf störf hjá Reykjanesbæ fór hann að svipast um eftir hentugu námsefni handa foreldrum barna með hegðunarörðugleika. Ágústína Ingvarsdóttir hafði þá nýverið þýtt SOS námskeiðið yfir á íslensku fyrir Félagsvís- indastofnun Háskóla Íslands, en það er samið af Dr. Lynn Clark bandarískum sálfræðingi, sem hefur mikla reynslu af starfi með börnum með hegðunarörðug- leika og foreldrum þeirra. „Ég valdi þetta námskeið vegna þess að efni námskeiðsins er sett fram á einfaldan og auðskilinn hátt. Innihaldið er í raun sáraeinfalt. Námskeiðið kennir hvernig halda á óæskilegri hegðun í skefjum og samtímis auka líkur á því að barnið verði jákvætt í viðmóti“. Gylfi Jón segir aðsóknina hafa verið miklu meiri en búist var við. „Í upphafi var ætlunin að halda eitt námskeið að vori og eitt að hausti. Reyndin varð sú að haldin voru 5 námskeið fyrir for- eldra í stað þeirra tveggja sem ráðgerð voru í upphafi“. Í upphafi var einungis ætlunin að bjóða námskeiðið foreldrum of- virkra barna og barna með hegð- unarörðugleika. Sum námskeiðin sátu leikskólakennarar og kenn- arar sem foreldrar. Þeir töldu efni námskeiðanna nýtast sér vel í starfi og samtímis spurðist á upp- eldisstofnunum bæjarins að for- eldrar fyrirferðarmikilla barna hefðu náð mjög góðum árangri með börn sín eftir að hafa setið námskeiðið. Reynsla foreldra af námskeiðinu var svo góð að ákveðið var að halda námskeið fyrir starfsfólk í leikskólum Reykjanesbæjar. Í dag er þeirri uppeldistækni sem kennd er á námskeiðinu beitt á öllum leik- skólum í Reykjanesbæ og hefur helmingur starfmanna þar setið námskeiðið. Víkurfréttir höfðu samband við nokkra aðila sem tekið hafa þátt í þessum námskeiðum og spurðu þá aðeins út í námskeiðin. Allir voru þeir á eitt sáttir um að þessi námskeið hefðu hjálpað mikið og ættu eftir að efla starfsmennina og nemendurna. Guðjón Kristjánsson skólastjóri í grunnskólanum í Sandgerði sagði í samtali við Víkurfréttir að námskeiðin hefðu verið tekin í tveimur hópum og að allir starfs- menn skólans hefðu setið þau, samtals 52 starfsmenn. „Ég held að ég tali fyrir munn okkar allra þegar ég segi að námskeiðið hafi verið fróðlegt, áhugavert og skemmtilegt. Á grunni námsefn- isins fóru fram miklar og gagn- legar umræður um agamál og hvernig taka skal á þeim. Sú samræming sem fékkst í þeim umræðum og grundvallast á námsefninu hefur komið okkur mjög til góða og birtist á eftirfar- andi hátt: Samræmdari hug- myndir starfsmanna um hvar þol- mörk skuli vera, skýrari skilaboð til nemenda, aukinn skilningur á nauðsyn þess að allir taki þátt í samskiptamótun og aukið sjálfs- traust starfsmanna til að taka á málum“. Guðjón segir að námsefnið sé að vísu fyrst og fremst sniðið að ald- urshópnum 2 til 12 ára og tekur nokkuð mið af amerísku samfé- lag. „Kjarni þess er alþjóðlegur og með þeim miklu umræðum sem fylgdu nýtist það vel við að- stæður okkar og einnig í eldri aldurshópum“. Guðjón sagði að skólinn hefði nú þegar notað reynsluna af nám- skeiðinu til að móta og gefa út samræmdar reglur fyrir 8. til 10. bekk með nemendum þar um umgengni og hegðun í setustofu. Samkvæmt þeim er hver og einn gerður ábyrgari fyrir eigin fram- göngu í frímínútum og tekið er strax á málum. Það hefur breytt umgengni og hegðun stórlega til batnaðar. Þá hefur verið kosinn starfshópur til að endurskoða skólareglur með svipuðum hætti. Sá hópur er nú að taka til starfa. Guðjón segir þó mestu breyting- una vera eins og kemur fram að framan í framgöngu starfsfólks; auknu sjálfstrausti, skýrari skila- boðum og yfirvegaðri úrlausn vandamála sem upp koma í sam- skiptum. Á síðasta hausti tóku nánast allir starfsmenn Stóru-Vogaskóla þátt í SOS-námskeiði Félagsvísinda- stofnunar HÍ. Snæbjörn Reynis- son skólastjóri í Stóru-Vogaskóla segir að allir starfsmenn skólans hafi verið mjög áhugasamir um þær aðferðir sem þarna voru tí- undaðar og það væri ekki spurn- ing að sú sameiginlega sýn sem starfsmenn skólans hafa nú á agamál og viðbrögð við agabrot- um skilar sér í skólastarfinu. „Við leggjum nú meira upp úr umbunum en refsingum og það virkar. Einveru-aðferðin hefur ekki verið mikið notuð nema í yngstu bekkjunum en ömmuað- ferðin virkar vel á öllum aldurs- stigum“, segir Snæbjörn. Í fram- haldi af námskeiðinu og til að halda þessari hugsun vakandi hefur verið settur á fót 6 - 7 manna starfshópur um sam- skipti og skólareglur í skólanum og segir Snæbjörn að hann hittist vikulega og hefur m.a. það hlut- verk að endurskoða og endur- móta skólareglur m.a. með tilliti til SOS-hugsunarinnar. „Við í Stóru-Vogaskóla mælum með þessu námskeiði sem heppnaðist mjög vel en það var ekki síst að þakka þeim frábæra leiðbeinanda sem Gylfi Jón Gylfason er“. Heiða Björg Scheving aðstoðar- leikskólastjóri á Sólborg í Sand- gerði tekur í sama streng. „Okkur fannst það bæði fræðandi og skemmtilegt. Gylfi Jón gerði námsefninu skil á líflegan hátt og síðan myndaðist góð umræða um málefnið“. SOS aðferðin byggist á því að laða fram jákvæða hegð- un hjá börnum með hrósi og já- kvæðri styrkingu og stoppa nei- kvæða hegðun. „Þetta er eitthvað sem við vitum, en höfum kannski ekki tamið okkur að nota á markvissan og samræmdan hátt. Við erum ekki byrjaðar að vinna eftir aðferð- inni, en það stendur til að setjast niður í næstu viku og leggja lín- urnar um það hvernig við ætlum að nota SOS hér á Sólborg og hefur verið rætt um að vera í samráði við grunnskólann á svæðinu, en þar hafa kennarar og starfsfólk einnig farið á nám- skeiðið. Ég held að þetta sé gott tæki til þess að byggja upp já- kvæðan aga, sem leiðir til þess að starfið verði markvissara og skemmtilegra hjá börnum og starfsfólki á leikskólanum. Ragnhildur Sigmundsdóttir, leik- skólastjóri á Suðurvöllum í Vog- um segir að allt starfsfólk leik- skólans, að undanskildu starfs- fólki eldhúss, hafi sótt SOS nám- skeiðið. „Hér er almenn ánægja með þetta námskeið. Við lærðum þarna mjög skipulagðar aðferðir, sem við getum sameinast um og beitum öll eins“. Ragnhildur segir að nú sé starfs- fólkið á leikskólanum að byrja markvisst að nota mikilvægasta hluta námskeiðsins, en það er að hrósa og umbuna börnunum fyr- ir góða hegðun. Í mars er á áætlun að halda for- eldrafund en meðal efnis verður að Gylfi Jón Gylfason sálfræð- ingur mun skýra „SOS-ið“ og svara spurningum. „Að þeirri kynningu lokinni verða allar að- ferðir SOS teknar upp hér í leik- skólanum. Varðandi það að beita markvissu hrósi fyrir æskilega hegðun erum við strax farin að sjá árangur, hegðun barnanna hefur breyst til batnaðar í leik- skólanum. Aðspurður af hverju vinsældir námskeiðsins stafi segir Gylfi Jón að þeir sem starfi að uppeld- ismálum séu sammála um að tíðni hegðunarörðugleika hafi aukist verulega í skólum og á heimilum. Það er því kannski mikilvægara en áður fyrir for- eldra og uppeldisstéttir að kunna skil á uppeldistækni sem eykur líkur á því að barnið verði já- kvætt í allri framgöngu og dregur einnig úr neikvæðri hegðun. Einnig má telja til að efni nám- skeiðsins er bæði einfalt og og auðskilið og auðvelt að laga það að þörfum hvers og eins. Ekki spillir fyrir að hver þátttakandi fær í hendurnar bók með inni- haldi námskeiðsins og farið er í gegnum algengustu mistök í upp- eldi og hvernig vel er gert á myndbandi. Forvarnargildi námskeiðsins Í mörgum tilvikum er hægt að kenna foreldrum og uppeldis- stéttum þá uppeldistækni sem kemur í veg fyrir að börn nái að þróa með sér alvarlega hegð- unarörðugleika og neikvætt við- horf til náms. Reykjanesbær og Sandgerði hafa nú þegar ákveðið að bjóða upp á SOS námskeiðið sem almenna forvörn fyrir foreldra allra tveggja ára barna í bæjarfélögun- um. Ekki liggur fyrir endanleg ákvörðun í Vogum, en að sögn Jóhönnu Reynisdóttur sveitar- stjóra er stefnt að því að nýta sér námskeiðið þar með svipuðum hætti og gert er í hinum sveitarfé- lögunum. Reykjanesbær, Sandgerði og Vogar eru sennilega fyrstu bæjar- félögin á Íslandi þar sem um er að ræða samræmdar aðgerðir í uppeldi þar sem starfsfólk á því sem næst öllum uppeldisstofnun- um bæjanna beitir sömu hug- myndafræði og foreldrar barn- anna. Það auðveldar samstarf milli foreldra og fagfólks. Fyrir skólana, börnin og fjölskyldur þeirra er æskilegast að leysa vandamálin með samræmdum viðbrögðum áður en þau ná að verða stór og illviðráðanleg. Það er besta forvörnin. SOS-námskeiðin í Reykjanesbæ, Sandgerði og Vogum: FORVÖRN GEGN ALVARLEGUM HEGÐUNARVANDA „Í mörgum tilvikum er hægt að kenna foreldr- um og uppeldisstéttum þá uppeldistækni sem kemur í veg fyrir að börn nái að þróa með sér al- varlega hegðunarörðug- leika og neikvætt viðhorf til náms“. 9. tbl. 2003 - 24 hbb 2/26/03 16:43 Page 10

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.