Víkurfréttir - 27.02.2003, Page 12
*
*
U
N
G
T
F
Ó
L
K
Á
S
U
Ð
U
R
N
E
S
J
U
M
Í
Um þessar mundir ersöngleikurinn „Made inUSA“ sýndur í Lofkastal-
anum. Þessi sýning hefur hlotið
einróma lof gagnrýnenda sem er
eftirtektarvert þar sem hún er
sett upp af Verzlunarskólanem-
um. Sýningar Verzlunarskólans
hafa yfirleitt vakið mikla athygli
sem skýrist ekki síst af því að
einvala lið nemenda kemur að
þessu verkefni. Einn af aðal-
mönnunum á bak við tjöldin í ár
er Keflvíkingurinn Guðjón Kjart-
ansson sem situr í nemenda-
mótsnefnd sem stýrir þessu öllu
saman. Ég hitti Gaua nemó nið-
ur í nemendakjallara Verzlunar-
skólans og spurði hann út í hitt
og þetta.
Hver er Gaui nemó? „Gaui nemó
er Keflvíkingur í húð og hár,
reyndar fæddur í Reykjavík árið
1983, en foreldrar mínir eru
Kjartan Már Kjartansson starfs-
mannastjóri hjá IGS og Jónína
Guðmundsóttir“. Gaui segir að
viðskiptin hafi heillað og ekki
síst félagslífið þegar komið var
að því að velja framhaldsskóla
„ég hafði mikið verið í félagslíf-
inu í grunnskóla og var búinn að
gera mér grein fyrir því hversu
mikilvægt það er og því kom
ekkert annað til greina en
Verzló“. Þegar ég spyr hann
hvort krakkarnir í Keflavík hafi
verið með einhverja fordóma út í
hann fyrir að hafa farið í snobb-
skóla í bænum frekar en FS þá
svarar hann því játandi „yfirleitt
meira í gríni en alvöru held ég,
auðvitað eru alltaf vissir fordóm-
ar sem hann tekur með fyrirvara,
og ég sé svo sannarlega ekki eftir
þessari ákvörðun minni“.
En hvernig eru svo Verzlingar?
„Þeir eru bara eins og annað
fólk, það ber ekki eins mikið á
þessu snobbi eins og kannski var
hérna áður fyrr, við klæðum okk-
ur eins og annað fólk og því ekk-
ert hægt að skilgreina okkur neitt
öðruvísi“. Guðjón flutti í bæinn
nú í haust og segir það hafa ver-
ið mikla breytingu „ég hef eign-
ast alveg ógrynni af góðum vin-
um hérna í bænum og eftir að ég
ákvað að fara í þessa sýningu af
krafti þá kom ekkert annað til
greina, ég hafði verið svokallaður
pr-maður öll mín ár í Verzló en
hafði ekki getað tekið þátt af
eins miklum krafti og ég hefði
viljað vegna þess að ég bjó auð-
vitað fyrir sunnan, það er allt
annað að búa í bænum heldur
en að aka Reykjanesbrautina á
hverjum degi“. Gaui segir að
unglingar í Keflavík og Reykjavík
séu í sjálfu sér ekkert svo frá-
brugðnir, það sé aðallega vegna
þess að menningin sé öðruvísi og
í Reykjavík þekkja ekki allir alla
og ekki eins mikið um kjaftasög-
ur og leiðindi eins og oft vill vera
í litlum samfélögum.
Hvernig er svona venjuleg vika
hjá Gauanum? „Það er í rauninni
ekkert sem heitir venjulega vika,
í janúar t.d mætti ég í fyrstu tvo-
þrjá tímana ef þeir voru mikil-
vægir og svo var unnið sleitu-
laust langt fram á nótt því það
eru ýmis verk sem þarf að vinna
á nóttunni eins og að hengja upp
plaköt og annað. Svo leyfði mað-
ur sér að sofa út daginn eftir,
skólinn er svona að detta inn
núna en kennararnir hafa mikinn
skilning á því hversu mikill skóli
þetta er í raun og veru sem er
bara gott mál“. Hann segist svo
reyna að skemmta sér um helgar
hvort sem það er í Keflavík eða í
bænum, og reyna að vinna upp
skólann að einhverju leyti.
En hvað gerir þú nákvæmlega í
sambandi við þessa sýningu?
„Ég er titlaður auglýsingastjóri
en svo er maður raunar í öllu. Ég
hef hoppað inn sem sviðsmaður
á sýningu og svo er maður að
skipuleggja hinar og þessar upp-
ákomur t.d koma okkur á fram-
færi í blöðum og sjónvarpi, selja
miða í fyrirtæki og allt sem teng-
ist markaðssetningu í raun og
veru“. Guðjón segir sýninguna
núna vera frábrugðna sýningum
undanfarinna ára að því leytinu
til að engin ein tónlistarstefna er
tekinn fyrir. Þetta er söngleikur
með amerísku ívafi sem er fullur
af sprengjum og látum, dansi,
söng og bara brjálað stuð allan
tímann.
Af hverju ætti fólk að fara á
Made in USA? „Fólk sem hefur
ekki séð Verzlósýningar verður að
gera sér grein fyrir því að þetta
eru ekki sömu formlegheit og í
atvinnumannaleikhúsunum,
þarna förum við skrefinu lengra
þó gæðin séu á við alvörusýning-
ar. Það er rosalegur kraftur í
krökkunum og þau eru ekki að
gera þetta fyrir peninga heldur
vegna þess að þeim finnst þetta
svo gaman og það skilar sér til
áhorfenda“.
Eins og flestir vita þá fylgir oft
mikil kvenhylli í kjölfar svona
velgengni, ég tala nú ekki um
menn sem eru með piparsveinaí-
búð á besta stað í bænum en
Guðjón segir að því miður hafi
ekki orðið nein róttæk bylting í
þeim efnunum.
Heldurðu að nálægð þín við kan-
ann hafi eitthvað haft með það
að gera að þið ákváðuð að setja
upp söngleik með amerísku
ívafi? „Já, ég get nú sagt þér að
ég var í ágætri aðstöðu þegar
komið var að því að selja mönn-
um eins og Jóni Gnarr handrits-
höfundi þessa hugmynd þar sem
ég þekkti margar af þessum týp-
um sem verið er að gera grín af,
það koma meira að segja til
greina á tímabili að þetta myndi
hreinlega gerast í Keflavík þar
sem Keflavík er bara Ameríka Ís-
lands. Maður er einn af þeim
sem ákváðu þetta á endanum
þannig að það hefur ábyggilega
haft eitthvað að segja“.
Gaui segist vera í stjórn Félags
ungra Framsóknarmanna en seg-
ir ekki vera mikinn mun á stjórn-
arflokkunum og hann sé ekkert
að fara að skipta um pólitíska
skoðun fram að kosningum.
En eiga framsóknarmenn ekki
undir högg að sækja, og eru til
einhverjir ungir framsóknarmenn
í dag? „Ja ég er ungur og þeir
eru alveg til. Það virðist samt
alltaf vera þannig að þegar það
eru tvær stórar fylkingar þá er
þetta keppni eins og KR-Valur og
fólk gefur sér að það sé aðeins
um tvennt að velja. Það koma
lægðir og það koma góðir tímar
en þetta á allt eftir að koma í
ljós þegar líður að kosningum“.
Guðjón segir að fólk eigi eftir að
átta sig á því að núverandi ríkis-
stjórn sé að gera góða hluti en
auðvitað má alltaf breyta ein-
hverju, annars væri eitthvað að.
Guðjón segist fylgjast vel með
boxi og auðvitað körfuboltanum
og les reglulega um það hvernig
Keflvíkingum sé að ganga. „Ég
hef samt mikla óbeit á fótbolta,
enda er ég ekkert góður, fótbolti
er ekki fyrir mig“. Hann velur
samt frekar að lesa við-
skiptablaðið heldur en íþróttasíð-
urnar ef út í það er farið.
Áður en ég kveð þennan
skelegga pilt sem greinilega er
að hafa gaman að því sem hann
er að gera vill hann
hvetja sem flesta til þess að
skella sér á þessa frábæru sýn-
ingu í Loftkastalanum, Made in
USA og panta sér miða í síma
552-3000. Við þökkum Gaua
nemó fyrir gott spjall og vonum
að honum gangi vel í því sem
hann tekur sér fyrir hendur eftir
að hann útskrifast úr Verzlunar-
skólanum nú í vor.
Texti: Breki Logason
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
17*VF Ungur Keflvíkingur er a
ð
ger
a þ
að
got
t
í le
ikh
úsh
eim
inu
m
Búinn til í BNA?
9. tbl. 2003 - 24 hbb 2/26/03 16:47 Page 12