Víkurfréttir - 27.02.2003, Side 20
20
Nafn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir.
Fæðingarár: 1984.
Heimabær: Grindavík.
Foreldrar: Guðmundur Sverrir Ólafsson og Guðmunda Jónsdóttir.
Maki: Kristinn Jón Ólafsson.
Hvað hyggstu leggja fyrir þig í framtíðinni? Ljúka hárgreiðslunám-
inu og jafnvel flytja erlendis til að kynnast nýrri menningu og til að
læra fleiri tungumál.
Fallegasti karlmaður sem þú hefur séð? Nonni minn :).
Hvaða íþróttir stundar þú? Knattspyrnu og líkamsrækt.
Hvaða vefsíðu notarðu mest? Fss.is, vf.is og sportid.is.
Ertu með eða á móti innrás bandaríkjamanna í Írak? Á móti, ég tel
ekkert réttlæta stríð.
Hverjir eru bestir í körfubolta karla? Grindavík.
Draumabíllinn þinn? Svartur Ford Focus með öllu tilheyrandi.
Á hvernig tónlist hlustarðu helst? Öll tónlist höfðar til mín.
Sefurðu í náttfötum? Fer eftir félagsskapnum.
Áttu lítinn bangsa sem þú sefur með? Nei, en ég á einn stóran, sæt-
an og loðinn sem kúrir stundum hjá mér.
Hefurðu búið erlendis? Nei.
Áttu þér einhverja fyrirmynd? Já, foreldrar mínir.
Afhverju tekurðu þátt í þessari keppni? Til að kynnast nýju fólki,
öðlast nýja reynslu og hafa gaman af þessu öllu saman.
Ertu bjartsýn á að vinna? Ég tel mig geta sigrað eins og allar hinar.
Jó
ní
na
G
uð
m
un
ds
dó
tt
ir
Ra
nn
ve
ig
*
9. tbl. 2003 - 24 hbb 2/26/03 16:57 Page 20