Víkurfréttir - 11.03.2004, Blaðsíða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
f r é t t i r
Það var enginn smáþorskur sem skipverjar á Happasæli KEfengu í netin á dögunum - 29 kíló vó hann þegar búið var aðslægja hann. Hallgrímur Guðmundsson skipstjóri á
Happasæl segir að þorskurinn hafi verið alveg steingeldur. „Mað-
ur ímyndar sér að þetta hafi verið fiskur sem hafi verið búinn að
þjóna sínu og hafi bara beðið eftir því að deyja. Þetta var eldgam-
all jálkur,“ sagði Hallgrímur í samtali við Víkurfréttir.
Að sögn Hallgríms fengu þeir fiskinn í Faxaflóa á fimmtudag í síðustu
viku. „Það er alltaf fiskirí í flóanum - bara mismikið,“ segir Hallgrím-
ur og bætir því við að fiskurinn sem þeir eru að fá núna sé betri en síð-
ustu 2-3 ár. „Hérna einu sinni vorum við að fá Golla af þessari stærð
og það í miklu magni. En mér sýnist fiskurinn vera bæði betri og
stærri sem við erum að fá núna.“
Golþorskurinn fór til vinnslu í Happa ehf. og á myndinni handleikur
Ívar Guðmundsson verkstjóri Happa ehf. gripinn.
Nýr formaður
í Heimi, FUS í
Reykjanesbæ
Jóhann Friðrik Frið-riksson var kjörinnformaður Heimis, fé-
lags ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjanesbæ, á
aðalfundi félagsins 5. mars.
Jóhann er ekki öllu ókunnug-
ur í starfi félagsins enda var
hann formaður félagsins
2001 - 2002, einnig voru
Árni Árnason, Andri Örn
Víðisson, Guðmundur J.
Árnason, Rúnar M. Sigur-
vinsson, Hildur Björg Bær-
ingsdóttir og Björgvin Árna-
son kjörin í stjórn félagsins. Í
varastjórn voru kjörnir Pétur
Örn Helgason, Kristján Pétur
Kristjánsson, Kristján Ástþór
Baldursson, Haukur Skúlason
og Sigurjón Geirsson Arnar-
son.
Fulltrúi HeilbrigðiseftirlitsSuðurnesja kynnti sam-skipti Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja við Olíuverzlun Ís-
lands hf. vegna stöðvar fyrir-
tækisins í Grindavík á síðasta
fundi Heilbrigðisnefndar, sem
haldinn var í síðustu viku.
Heilbrigðisnefnd áminnir Olíu-
verzlun Íslands hf. fyrir margvís-
leg brot á reglugerð nr. 35/1994
um varnir gegn olíumengun frá
starfsemi í landi. Á fundinum var
heilbrigðisfulltrúa falið að koma
áminningunni á framfæri við fyr-
irtækið.
S jómaður fór útbyrðis afnetabátnum Fylki KE102 og drukknaði þar
sem báturinn var að leggja net
um eina sjómílu norðaustur af
Keilisnesi.
Slysið átti sér stað kl. 11:50 á
fimmtudagsmorgun. Sjómenn af
nærstöddum báti aðstoðuðu við
að ná manninum úr sjónum.
Hann var fluttur til Keflavíkur.
Lífgunartilraunir voru reyndar á
leiðinni í land. Þær báru ekki ár-
angur. Læknir fór um borð í bát-
inn í Keflavíkurhöfn og úrskurð-
aði manninn látinn. Maðurinn
var 67 ára gamall og var búsettur
í Hafnarfirði.
Þrjár líkamsárás-
ir um helgina
Þrjár líkamsárásirvoru tilkynntar tillögreglunnar í Kefla-
vík um helgina. Aðfarar-
nótt laugardags var tilkynnt
um líkamsárás fyrir utan
kaffi DUUS þar sem spark-
að var í mann í götunni og
voru vitni að árásinni.
Aðfaranótt sunnudagsins var
maður skallaður fyrir utan
Casino í Keflavík. Var maður-
inn með áverka á vinstra auga
og var hann fluttur til að-
hlynningar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Síðar um
nóttina tilkynnti maður að
hann hefði verið skallaður í
andlitið fyrir utan Kaff i
DUUS og var hann með
áverka á nefi.
Stal bensíni hjá
Olís í Grindavík
Á föstudag stal öku-maður blárrar fólks-bifreiðar bensíni fyr-
ir um 2000 krónur úr bens-
íntönkum Olís stöðvarinnar
að Hafnargötu 7 í Grinda-
vík. Fyllti ökumaðurinn bif-
reiðina og ók á brott án þess
að greiða fyrir. Lögreglan í
Keflavík leitar nú bifreiðar-
innar.
FYLKIR KE 102 Í SMÁBÁTAHÖFNINNI Í GRÓF.
Lögreglan tók á móti bátnum þegar hann kom í land eftir hádegið
á fimmtudaginn. Íslenskur fáni var dreginn til hálfs.
Sjómaður féll útbyrðis og drukknaði
Fulltrúi HeilbrigðiseftirlitsSuðurnesja kynnti mats-skýrslu fyrir áformaða
jarðhitanýtingu á Reykjanesi á
síðasta fundi heilbrigðisnefnd-
ar Suðurnesja, sem haldinn
var á miðvikudag. Starfsleyfis-
umsókn Hitaveitu Suðurnesja
var lögð fyrir nefndina.
Nefndin gerir fyrir sitt leyti ekki
athugasemdir við áform Hita-
veitu Suðurnesja um virkjun á
Reykjanesi. Starfsleyfi nefndar-
innar verður unnið í samræmi
við efni skýrslunnar um mat á
umhverfisáhrifum og úrskurðar
Skipulagsstofnunar dags. 27.
september 2002.
Reykjanesvirkjun án athugasemdar
Heilbrigðiseftirlit áminnir Olís í
Grindavík fyrir margvísleg brot
Golþorskur í netin
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
VF-MYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
11. tbl. 2004 umbrot 10.3.2004 15:59 Page 2