Víkurfréttir - 11.03.2004, Side 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ A Ð A L F U N D U R S P A R I S J Ó Ð S I N S Í K E F L A V Í K V E R Ð U R Á M O R G U N
Aðalfundur Sparisjóðsinsí Keflavík verður ámorgun. Stofnunin kyn-
nti afkomutölur nýlega og þar
kom fram að um er að ræða
besta afkomuár í sögu Spari-
sjóðsins í Keflavík. Við tókum
Geirmund Kristinsson, spari-
sjóðsstjóra tali fyrir fundinn á
morgun.
Nú liggur fyrir besta afkoma í
sögu sparisjóðsins. Hverju
þakkar þú þann árangur?
Á síðasta ári var innleystur mikill
gengishagnaður þegar tekin var
ákvörðun um að selja öll hluta-
bréf okkar í Kaupþingi við sam-
einingu Kaupþings og Búnaðar-
banka. Gengishagnaður þessi
hafði safnast upp á allmörgum
árum eða nánar tiltekið frá 1986
þegar sparisjóðirnir keyptu
Kaupþing. Þetta skýrir að mestu
frábæra afkomu síðasta árs þó
ekki megi gleyma því að mark-
aðsstaða SPKEF er afar góð á
Suðurnesjum. Sparisjóðurinn er
nær 100 ára og hefur hann á
þeim tíma byggt upp langvarandi
samband við viðskiptavini sína á
starfssvæðinu sem við metum
mikils. Starfsfólk sparisjóðsins
hefur mikla reynslu og einstaka
þjónustulund sem hefur skilað
sér í því að í Íslensku ánægjuvog-
inni hafa viðskiptavinir spari-
sjóðanna verið hvað ánægðastir
ef þjónusta fjármálafyrirtækja er
mæld. Það segir sitt um hve mik-
ið býr í okkar starfsfólki að með-
alstarfsaldur er mældur í áratug-
um og er leitun að annarri eins
tryggð hjá íslenskum fyrirtækj-
um.
Hafa verið einhverjar breytingar
í rekstrinum eða eru einhverjar
væntanlegar?
Síðasta ár urðu breytingar helst á
eignarhaldi á dótturfyrirtækjum
eins og ég gat um hér á undan.
Framundan stendur fyrir dyrum
að fara gagngert í gegnum allar
okkar rekstrareiningar með hag-
ræðingu í huga og einnig munum
við þróa þá þjónustu sem í boði
er og einbeita okkar að því að
styrkja samband okkar við nú-
verandi viðskiptavini.
Hvað með samstarf sparisjóð-
anna. Nú hefur það verið tals-
vert, en munu þessar hræringar
eitthvað hafa að segja hvað það
varðar?
Það er nokkuð ljóst að upp úr
þessu ölduróti kemur upp ný
staða sem verður að taka afstöðu
til. SPRON hefur það enn á
stefnuskrá að leita leiða til að
breyta eignaformi sínu og hafa
því skapað sér nokkra sérstöðu
meðal sparisjóða. Það kemur þá í
hlut annarra sparisjóða að taka
ákvörðun um hvort efla eigi sam-
starfið eða leita sameiningar-
leiða. Hitt er ljóst að stjórnvöld
og löggjafinn hafa lýst því yfir
fullur áhugi er á að sparisjóðir
starfi áfram með einum eða öðr-
um hætti.
Hvað með frekari sameiningu?
Það er undir þeim sparisjóðum
sem starfandi eru víðsvegar um
landið hvort áhugi er fyrir að
sameinast og þá þarf að taka tillit
24 ólíkra sjónarmiða. En frá okk-
ar bæjardyrum séð er fullur vilji
til að starfa með þeim sem vilja
veg sparisjóða sem mestan og ef
það fæst með sameiningu við
aðra sparisjóða þá ætlum við
ekki að útiloka þá leið.
Hver er framtíðarsýn Spari-
sjóðsins í Keflavik?
Framtíðarsýn SPKEF mun áfram
vera sú að bjóða Suðurnesja-
mönnun alhliða fjármálaþjónustu
sem hentar hverjum og einum.
Þátttaka okkar í íþrótta- menn-
ingar og líknarstarfi á svæðinu
mun einnig skipa stóran sess í
okkar aðgerðum. Undanfarin ár
höfum við lagt í stefnumótunar-
vinnu sem fylgt verður eftir á
næstu misserum. T.a.m. stendur
yfir endurskoðun á útibúaneti
okkar og er verið að kanna
möguleika á því að bjóða þeim
viðskiptavinum okkar sem brott-
fluttir eru af Suðurnesjum að-
gang að okkur með útvíkkaðri
starfsemi. En starfssvæði SPKEF
verður áfram svæðið sunnan
Hafnarfjarðar“, sagði Geirmund-
ur.
Útvíkkun Sparisjóðsins fyrirhuguð
-segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri.
Annar listi þriggjamanna verður boðinnfram á Aðalfundi
Sparisjóðsins í Keflavík á
morgun gegn sitjandi stjórn.
Samkvæmt heimildum Vík-
urfrétta hafa aðilar sem hafa
yfir að ráða nokkrum hluta
stofnfjár Sparisjóðsins í
Keflavík ákveðið að bjóða
fram listann og fóru jafn-
framt fram á hlutfallskosn-
ingu á fundinum.
Benedikt Sigurðsson, fráfar-
andi formaður stjórnar hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér
til áframhaldandi stjórnarsetu
en Þorsteinn Erlingsson hefur
tekið hans sæti en hann var
fulltrúi Reykjanesbæjar í
stjórninni. Auk Þorsteins eru í
framboði hjá sitjandi stjórn
Karl Njálsson úr Garði og Eð-
varð Júlíussson úr Grindavík.
Hinn listinn er skipaður Ey-
steini Jónssyni, Reyni Ólafs-
syni og Sigurði Garðarssyni.
LISTI GEGN SITJANDI
STJÓRN BOÐINN FRAM
11. tbl. 2004 umbrot 10.3.2004 15:06 Page 6