Víkurfréttir - 11.03.2004, Page 10
Karlmaður slasaðist tals-vert þegar hann féll ofaní stigagang eða gryfju við
Gömlu búðina á DUUS-torf-
unni í Keflavík um helgina.
Hann liggur nú á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja með fjöl-
mörg brotin rifbein.
Maðurinn var á ferð á samt
þremur öðrum við DUUS-húsin
skömmu fyrir kl. 03 aðfaranótt
laugardags þegar hann gekk fram
af steyptum palli og féll niður í
gryfju við kjallaratröppur sem
þarna eru. Kalla þurfti til sjúkra-
bíl sem flutti manninn undir
læknishendur. Eins og áður segir
brotnuðu mörg rifbein, auk þess
sem súrefnisskortur er til lungn-
anna.
Maðurinn sem slasaðist heitir
Ársæll Sigþórsson og segist hann
búast við að verða frá vinnu
vegna slyssins í átta vikur. Hann
segir jafnframt að verr hefði get-
að farið en hann hafi náð að snúa
sér í fallinu og koma þannig í veg
fyrir að lenda á andlitinu í gryfj-
unni.
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Lesið var fyrir starfsfólk áTannlæknastofu Kristín-ar og Einars í lestrar-
átaki Reykjanesbæjar í vik-
unni, en það var starfsmaður
Lyfju sem las upp úr smá-
sagnasafni Svövu Jakobsdótt-
ur,Tólf konur.
Lesið hefur verið fyrir 22 fyrir-
tæki í lestrarátaki Reykjanesbæj-
ar, en fyrsti lestur hófst þriðju-
daginn 14. október sl. Frá því
átakið hófst hafa öll fyrirtæki
tekið því opnum örmum að fá
upplestur úr góðri bók á kaffi-
stofuna í morgunkaffinu.
Fjölbreytt bókaval hefur einkennt
átakið og hafa sumir lesið upp úr
þremur bókum í röð, stutta stund
úr hverri. Lestrarátakið heldur
áfram til 1. júní á þessu ári.
Upplestur á tannlæknabiðstofu
Braut fjöl-
mörg rifbein
við fall í gryfju
FJÖLMÖRG RIFBEIN BROTIN
Ársæll Sigþórsson á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
SLYSAGILDRAN
Ársæll féll ofan í þessa grifju
sem er gamall stigagangur.
VF-MYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
VF-MYND: JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
Daglegar fréttir á Netinu • vf.is
11. tbl. 2004 umbrot 10.3.2004 15:09 Page 10