Víkurfréttir - 11.03.2004, Síða 19
VÍKURFRÉTTIR I 11. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 11. MARS 2004 I 19
„Bláa Lónið Húðlækningastöð – Fullfrágengið hús“.
Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 2. apríl 2005.
Útboðsgögn (geisladiskur eingöngu) verða seld á skrifstofu Verk-
fræðistofu Suðurnesja að Víkurbraut 13, Keflavík, á 5.000 kr.
– frá og með þriðjudeginum 9. mars 2004. Tilboð verða opnuð í
fundarsal Bláa Lónsins – heilsulindar 30. mars 2004, kl. 15.00.
Bláa Lónið – Húðlækningastöð
Fullfrágengið hús
Verkið felst í að byggja rúmlega 2000 m2 meðferðarstöð fyrir húð-
sjúklinga á lóð félagsins í Svartsengi, Grindavík. Um er að ræða
uppsteypu, að reisa forsteyptar einingar og setja upp þak ásamt
fullnaðarfrágangi á húsi að utan og innan. Einnig skal ganga frá
aðkomuvegi, bílastæði, lóð og baðlóni.
Mót 4.150 m2
Steypa 1.150 m3
Uppsetning forsteyptra eininga 2.970 m2
Malbik 4.080 m2
Lagnakjallari 500 m2
Gólfflötur 1. hæðar 2.200 m2
Baðlón 900 m2
Helstu magntölur og stærðir eru eftirfarandi:
Fyrir hönd Hraunsetursins ehf. óskar Verkfræðistofa
Suðurnesja ehf. eftir tilboðum í verkið:
VERKSVIÐ: HÖNNUN ÚTLITS, BURÐARVIRKIS OG LAGNAKERFA.
EFTIRLIT MEÐ FRAMKVÆMDUM.
Um fátt er meira rættþessa dagana á meðalíbúa Reykjanesbæjar en
þá stefnubreyt-
ingu sem virðist
hafa átt sér stað
hjá Heilbrigðis-
stofnun Suður-
nesja í málefn-
um D álmunn-
ar. Fyrir meira
en þremur áratugum samein-
uðust bæjarbúar um þá stefnu
að byggð yrði sérstök viðbygg-
ing við sjúkrahúsið sem sér-
staklega væri ætluð sjúkum,
öldruðum íbúum sem þyrftu
mikla umönnun og þjónustu
vegna veikinda og elli. Margir
einstaklingar, félagasamtök og
klúbbar lögðu hönd á plóg með
skipulögðum fjáröflunum og
sérstök samtök velunnarra og
dyggustu stuðningsmanna
hugmyndarinnar, D-álmu sam-
tökin, voru stofnuð. Allir
höfðu sama, skýra markmiðið;
að vinna að því með öllum til-
tækum ráðum að D-álman
yrði að veruleika.
Bygging langlegudeildarinnar
hefur tekið langan tíma. Margir
heilbrigðis- og fjármálaráðherrar
hafa setið á byggingatímanum og
margir þingmenn og sveitar-
stjórnarmenn komið við sögu.
Miklum þrýstingi hefur verið
beitt á mörgum vígstöðvum og
nú er byggingin risin en innrétt-
ingu hennar ekki að fullu lokið.
Þegar menn fóru að sjá fyrir end-
ann á byggingu hússins mátti
finna fyrir miklum létti á meðal
þeirra sem höfðu barist fyrir
þessu brýna og mikilvæga hags-
munamáli bæjarbúa í áratugi.
En þá gerðist hið óvænta. Yfir-
menn stofnunarinnar mótuðu
nýja stefnu og hafa frá því í
haust verið að kynna hana fyrir
hagsmunaðilum þ.m.t. sveitar-
stjórnarmönnum. Þessar nýju
hugmyndir ganga m.a. út á það
að nýta D-álmuna undir aðra
starfsemi sjúkrahússins t.d.
skurðstofuna. Óljósar fréttir og
sögusagnir og nokkrar reynslu-
sögur bæjarbúa hafa gengið
manna á millum. Þessi stefnu-
breyting hefur farið mjög fyrir
brjóstið á bæjarbúum síðustu
daga, vikur og mánuði og má
skynja bæði undrun og reiði á
meðal þeirra. Bæjarbúar skilja
ekki hvað hefur breyst. Því tel ég
nauðsynlegt að stjórnendur Heil-
brigðisstofunnar Suðurnesja
haldi opna kynningarfundi um
þessa nýju stefnu, skýri út fyrir
bæjarbúum hvað þeir ætla sér
með D-álmuna og hversvegna.
Einnig tel ég nauðsynlegt að
stjórnendur stofnunarinnar heyri
sjónarmið íbúanna og reyni
þannig að átta sig hvernig hjartað
í bæjarfélaginu slær í þessum
málaflokki. Það eru jú íbúarnir,
skattgreiðendur, sem eru við-
skiptavinirnir og neytendur þjón-
ustunnar og ef Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja er ætlað að upp-
fylla óskir þeirra og þarfir ættu
slíkir kynningarfundir að geta
orðið gagnlegir fyrir báða aðila.
Með vinsemd og virðingu
Kjartan Már Kjartansson,
bæjarfulltrúi í Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar
Ú tlínur litanna, fyrsta myndlistarsýning Stefans Swales opn-aði í 88-húsinu við Hafnargötu í Keflavík á laugardag. Út-línur litanna er fyrsta myndlistarsýningin sem sett er upp í
húsinu. Íris Jónsdóttir sem situr í menningarmálanefnd Reykja-
nesbæjar flutti ávarp við opnun sýningarinnar.
Í listsköpun sinni notar Stefán tölvutæknina í stað pensla, en allar
myndirnar eru unnar á stafrænan hátt. Stefan Swales fluttist frá Sví-
þjóð fyrir tæpum átta árum og hefur búið í Keflavík síðan, en hann er
lærður prentsmiður. Sýningin er opin alla daga kl. 13-23 til 27. mars.
Hvað verður um
D-álmuna?
➤ K J A R TA N M Á R K J A R TA N S S O N :
Listsýningin Útlínur litanna opin í 88 Húsinu
Miklu meira efni að lesa
á vef Víkurfrétta vf.is
VF
-M
YN
D:
H
IL
M
AR
B
RA
GI
B
ÁR
ÐA
RS
O
N
11. tbl. 2004 umbrot 10.3.2004 15:41 Page 19