Víkurfréttir - 07.04.2004, Side 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ Fleiri fréttir á vf.is
stuttar
f r é t t i r
➤ Ú T I V I S TA R S V Æ Ð I Ð A Ð H Á A B J A L L A
Um 80 sprengjur hafafundist á Háabjalla-svæðinu síðustu 12 mán-
uði. Rúmlega 600 sprengjur
hafa fundist á svæðinu frá því
farið var að leita skipulega á
svæðinu sem er um 15 ferkíló-
metrar að stærð. Sett voru upp
viðvörunarskilti á svæðinu í
fyrradag.
Starfsmenn Sprengjudeildar
Landhelgisgæslunnar hafa farið
reglulega um svæðið kringum
Háabjalla í leit að sprengjum en
Sigurður Ásgrímsson hjá
sprengjudeildinni segir að það sé
gert af vilja frekar en getu. „Það
er ekki gert ráð fyrir því í okkar
fjárheimildum að við séum að
leita að sprengjum eins og við
gerum hér.“
Aðspurður um hvort hægt væri
að slá á hve margar sprengjur
væru á svæðinu sagði Sigurður
ómögulegt að segja til um það.
Ekki er vitað hve mörgum
sprengjum hafi verið dreift yfir
svæðið á sínum tíma. Sigurður
segir að hægt væri að reikna út
hve margar sprengjur væru
ósprungnar ef vitað væri hve
mörgum sprengjum hefði verið
dreift um svæðið. Miðað við að
rúmlega 600 sprengjur hafi fund-
ist á svæðinu sé þó hægt að draga
þá ályktun að tugir þúsunda
sprengja hafi verið sprengd á
svæðinu á sínum tíma og að hluti
af þeim haf i ekki sprungið.
Sprengjurnar sem starfsmenn
Sprengjudeildarinnar hafa fundið
á svæðinu eru yfirleitt sprengdar
á staðnum. Sprengjusveitin sem
hefur leitað svæðið hefur meðal
annars tekið þátt í leit að eitur-
vopnum í Írak í samstarfi við
danska herdeild.
Ótal tegundir sprengja er að
finna á svæðinu og segir Sigurð-
ur að það sé vitað mál að
sprengiefni verði hættulegra með
aldrinum. „Það er ómögulegt að
segja af hverju þessar sprengjur
hafi ekki sprungið. Það getur
hafa verið galli í þeim eða að þær
hafi lent á mosa og ekki sprungið
við það.“
Búið er að setja upp skilti með-
fram Grindavíkurveginum og við
veginn að Háabjalla og eru skilt-
in sett upp í þeim tilgangi að vara
fólk við að taka upp hluti sem
það kann að finna á svæðinu.
„Það er ekki verið að fæla fólkið
frá svæðinu, heldur er einungis
verið að biðja fólk um að hafa
varann á sér þegar það fer um
svæðið og láta vita ef það finnur
hlut sem gæti verið sprengja. Það
er mjög mikilvægt að fólk hreyfi
ekki við torkennilegum hlutum
sem það finnur á svæðinu, heldur
tilkynni það til lögreglu eða
Landhelgisgæslunnar,“ sagði
Sigurður í samtali við Víkurfrétt-
ir.
Áttatíu sprengjur hafa fundist
við Háabjalla síðustu 12 mánuði
- heimskunn sprengjuleitarsveit frá Írak leitar á svæðinu
Starfsmenn Sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar með eitt skiltanna sem sett voru upp að Háabjalla.
F.v. Jónas Þorvaldsson, Sigurður Ásgrímsson og Adrian King.
VF
-M
YN
D:
JÓ
H
AN
N
ES
K
R.
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
Ljósker á vinnu-
vélum brotin
Unnin voru skemmd-arverk á vinnuvélumÍslenskra Aðalverk-
taka sem voru við Holts-
götu í Njarðvík, en lögregl-
unni í Keflavík var tilkynnt
um skemmdarverkin í gær-
morgun.
Hundur lenti í
refagildru
Á laugardag tilkynntimaður að hundursinn hefði lent í dýra-
gildru þegar hann var á
göngu með hundinn í Sand-
vík fyrir rúmri viku síðan.
Hundurinn lenti með fótinn
í gildrunni og skrámaðist
en meiddist ekki alvarlega.
Kom maðurinn með dýra-
gildruna á lögreglustöðina í
Keflavík, en gildrur sem
þessar eru ólöglegar og
sennilega hefur hún verið
ætluð til refaveiða.
S jávarútvegsfyrirtæki áSuðurnesjum unnu úrfiskafla að mestum verð-
mætum í fyrra eða fyrir 10,8
milljarða króna. Á Norður-
landi eystra var aflaverðmæti
10,5 milljarðar króna og á höf-
uðborgarsvæðinu var verð-
mæti aflans 10,2 milljarðar.
Íslensk skip fiskuðu fyrir 67,1
milljarð króna á öllum miðum á
síðasta ári að því er kemur fram í
tölum Hagstofunnar sem komu
út í vikunni. Aflaverðmæti ís-
lenskra skipa árið 2002 var 10
milljörðum meira en það var í
fyrra.
➤ S J Á V A R Ú T V E G U R
Aflaverðmæti mest
á Suðurnesjum
Gleðilega
páska!
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 12:53 Page 2