Víkurfréttir - 07.04.2004, Side 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
hunda
f r é t t i r
VÍKURFRÉTTIR//atvinnulífið • viðskipti
K -9 Hundaskóli hefurtekið til starfa íReykjanesbæ. Eig-
andi hundaskólans er Atli
Þorsteinsson. Atli hefur ný-
lokið námi frá hundaskóla í
Columbus í Ohio í Banda-
ríkjunum og hefur hlotið
gráðu sem atvinnuhunda-
þjálfari.
Að sögn Atla verður boðið
upp á alla almenna hunda-
þjálfun í skólanum. „Ég verð
einnig með hvolpaþjálfun og
bíð upp á þá þjónustu að
velja góða hvolpa fyrir þá
sem vilja eignast hvolp og
taka hann síðan til þjálfunar,“
segir Atli, en þjálfunin getur
tekið frá 3 dögum til þriggja
vikna.
Í námi sínu í Bandaríkjunum
lærði Atli alla almenna
hundaþjálfun, s.s. að þjálfa
hunda fyrir fatlaða einstak-
linga, þjálfun lögreglu- og
fíkniefnaleitarhunda, þjálfun
hunda sem fást við sporaleit
og þjálfun veiðihunda. Atli
segir að einnig verði boðið
uppá hundaböð og naglaum-
hirðu.
Hundaskóli í
Reykjanesbæ
Á tta einstaklingar af at-vinnuleysisskrá á Suður-nesjum verða ráðnir í
starfsþjálfun hjá Flugþjónust-
unni á Keflavíkurflugvelli ehf.
(IGS) og hefur fyrirtækið gert
samkomulag við Svæðisvinnu-
miðlun Suðurnesja um verk-
efnið. Einstaklingarnir verða í
70% starfi hjá fyrirtækinu og
auk atvinnuleysisbóta greiðir
IGS þeim ákveðna upphæð á
mánuði.
Einstaklingarnir sem ráðnir eru
verða þjálfaðir af starfsmönnum
IGS til að aðstoða fatlaða, börn
og gamalmenni sem þurfa á sér-
stakri aðstoð að halda. Starfsfólk
IGS hefur sinnt þessum verk-
þætti innan flugstöðvarinnar.
Með samstarfsverkefninu á með-
al annars að kanna hvort betra sé
að sérstakir starfsmenn sinni
þessum störfum með það að
markmiði að bæta þjónustu IGS
við þennan hóp farþega. Gert er
ráð fyrir að verkefnið standi í 6
mánuði og að þeim tíma loknum
verði tekin ákvörðun um fram-
haldið. Að sögn Kjartans Más
Kjartanssonar starfsmannastjóra
IGS er hann ánægður með sam-
starfið við Vinnumiðlun Suður-
nesja og segir samstarf sem þetta
tækifæri fyrir öll fyrirtæki á Suð-
urnesjum. „Við lítum á þetta sem
gott tækifæri til að auka þjónustu
IGS við flugfarþega á Keflavík-
urflugvelli og ekki síst lítum við
á það sem samfélagslega skyldu
okkar að bregðast við atvinnu-
leysisvandanum með þessum
hætti.“
Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja
leitar nú að nægilegum fjölda
fólks sem uppfyllir nauðsynlegar
kröfur sem gerðar verða til starfs-
mannanna. Þær eru meðal annars
góð tungumálakunnátta, hæfni í
mannlegum samskiptum og gott
líkamlegt ástand.
Ketill Jósefsson forstöðumaður
Svæðisvinnumiðlunar Suður-
nesja segir að það sé von beggja
aðila að verkefnið takist vel og
vilja báðir aðilar hvetja önnur
fyrirtæki á Suðurnesjum til þess
að nýta sér þá ýmsu möguleika
sem bjóðast í samstarf i við
Svæðisvinnumiðlunina. Að sögn
Ketils eru um 15 fyrirtæki og
stofnanir á Suðurnesjum sem eru
í samstarfi við Svæðisvinnumiðl-
unina varðandi starfsþjálfunar-
verkefni. „Hér á Suðurnesjum
eru slík starfsþjálfunarverkefni
mun minna notuð en annars stað-
ar á landinu og ég vil nota tæki-
færið og hvetja fyrirtæki til að
skoða möguleikana sem felast í
slíkum verkefnum. Við bjóðum
upp á aðstoð við umsóknarferlið
hér á skrifstofunni.“
Kjartan Már Kjartansson starfsmannastjóri IGS og Ketill Jósefsson
forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja kynna samstarfið.
Átta einstaklingar
af atvinnuleysisskrá
í starfsþjálfun
Farþegum um FlugstöðLeifs Eiríkssonar fjölg-aði um tæplega 13% í
marsmánuði miðað við sama
tíma í fyrra, úr rúmlega 87
þúsund farþegum árið 2003 í
tæplega 99 þúsund farþega nú.
Fjölgun farþega til og frá Íslandi
nemur rúmlega 9% milli ára.
Farþegum sem millilenda hér á
landi á leið yfir Norður-Atlants-
hafið fjölgar þó hlutfallslega enn
meira eða um 34%. Alls hefur
farþegum um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar fjölgað um tæplega
21% það sem af er árinu miðað
við sama tíma árið 2003, eða úr
tæplega 209 þúsund farþegum í
rúmlega 252 þúsund farþega.
Farþegum í Leifsstöð
fjölgaði um 13% í mars
Skyldulesning
yfir páskana!
Komið á næsta
blaðsölustað!
johannes@vf.is eða 899 2225
➤ K E F L A V Í K U R F L U G V Ö L L U R
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 12:55 Page 4