Víkurfréttir - 07.04.2004, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKURFRÉTTIR//grindvíska fréttasíðan stuttar
f r é t t i r
Tvö einbýlishús eru í bygg-ingu í nýju Lautarhverfi íGrindavík og eru það
fyrstu húsinu sem rísa í nýja
hverfinu. Fyrirtækið HH smíði
ehf. sér um byggingu húsanna,
en þau eru einingahús frá fyr-
irtækinu Smell-inn á Akranesi.
Hvert hús er sett saman úr sjö
einingum og tók um 6 klukku-
stundir að reisa bæði húsin. Hver
eining er tilbúin undir málningu
og er gólfplata húsanna steypt
þegar húsið hefur verið reist.
Ragnar Eðvarðsson og Valur
Hansson vinna við smíði hús-
anna og segja þeir að þau séu
einföld í uppsetningu. „Það er
bara mjög þægilegt að vinna við
uppsetningu þessara húsa og
þægileg í alla staði. Þetta er orðin
allt önnur vinna heldur en þegar
verið var að stilla upp fyrir hús-
um,” segir Ragnar.
Hafþór Helgason einn eigenda
HH smíði í Grindavík sagði í
samtali við Víkurfréttir að búið
væri að selja annað húsið sem
fyrirtækið er að reisa. Húsin
verða fullbúin frá fyrirtækinu án
gólfefna og eldhústækja. Að
sögn Hafþórs er áætlað að fyrir-
tækið reisi þriðja húsið í hverfinu
innan skamms.
Sundlaug Grindavíkurfékk hjartastuðtæki aðgerðinni Zoll að gjöf frá
Kvenfélagi Grindavíkur og
Slysavarnadeildinni Þórkötlu í
Grindavík á dögunum. Sund-
laugin verður 10 ára þann 9.
apríl næstkomandi og var gjöf-
in gefin af því tilefni. Fé-
lögunum hefur í gegnum tíðina
verið annt um öryggi sund-
laugargesta en þegar sundlaug-
in var vígð fyrir 10 árum síðan
gáfu félögin myndavélakerfi.
Á undanförnum mánuðum hafa
hjartastuðtæki verið gefin af
kvenfélögum og slysavarnafélög-
um á Suðurnesjum og eru slík
tæki komin í allar sundlaugar á
svæðinu.
Á dögunum fóru tveir kórar að Skógum á vegum Tónlistarskólans í Grindavík í
æfingabúðir að Skógum, Barnakór og Stúlknakór skólans, alls 42 krakkar undir
stjórn Rósalindar Gísladóttur og Gunnars Kristmannssonar. Barnakór Grunn-
skólans á Hvolsvelli ásamt stjórnanda sínum, Ingibjörgu Erlingsdóttur, tók á
móti kórunum. Öll aðstaða var til fyrirmyndar og ferðin mjög vel heppnuð í
alla staði. Helgin endaði með Tónleikum í Hvolnum á Hvolsvelli þar sem 65
krakkar sungu saman.
Heilsíðu auglýsing í Víkurfréttum
þann 1. apríl. Allt í plati!
Tvö hús rísa í Lautar-
hverfi í Grindavík
Ragnar Eðvarðsson og Valur Hansson smiðir hjá HH smíði.
Sundlaug Grindavíkur
fær hjartastuðtæki
Við afhendingu tækisins í Sundlaug Grindavíkur. F.v. Guðrún frá slysavarnafé-
laginu, Birna frá Kvenfélaginu og Hermann forstöðumaður íþróttamann-
virkja. VF-ljósmynd/Kjartan Kristjánsson.
Tveir Grindavíkurkórar
æfðu að Skógum
hilmar@vf.is eða 898 2222
➤ Ö R Y G G I S M Á L
Margir hlupu
1. apríl á
Suðurnesjum
Fjölmargir Suðurnesjamenn
létu plata sig 1. apríl, og tóku
verslunartilboð í verslunum
Varnarliðsins alvarlega. Upp-
úr kl. 09 sl. fimmtudagsmorg-
un fór síminn að hringja á
skrifstofu Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og
nágrennis, þar sem fólk var að
spyrjast fyrir um þetta ákvæði
í kjarasamningum sem heim-
ilaði fólki að versla í verslun-
um varnarliðsins tvo daga á
ári, en annar dagurinn átti að
vera 1. apríl. Kristján Gunn-
arsson, formaður VSFK, stað-
festi að tugir hafi hringt og
um tíma hafi lítið annað verið
gert en að útskýra gabbið fyrir
fólki.
Óskar Þórmundsson, yfirlög-
regluþjónn á Keflavíkurflug-
velli, staðfesti að þó nokkrir
hefði klippt út tímabundna
aðgangsheimild í Víkurfrétt-
um og framvísað í aðalhliði
Keflavíkurflugvallar, til að
freista þess að fá að versla
ódýrt. Einnig eru dæmi þess
að fólk haf i notað hina
svokölluðu Vallarpassa og
mætt í verslanir Varnarliðsins
í góðri trú. Þá sagði Óskar að
talsvert hafi verið hringt í lög-
regluna á Keflavíkurflugvelli
til að forvitnast um málið.
Einnig bárust Víkurfréttum
hringingar af höfuðborgar-
svæðinu, þar sem fólk vildi
tryggja það að allt væri rétt og
satt. Hrekkurinn mun hins
vegar ekki hafa fallið jafn vel
í bandaríska yf irmenn á
Keflavíkurflugvelli og munu
þau orð hafa verið látin falla
að réttast væri að fara í mál
við okkur á Víkurfréttum
vegna uppákomunnar.
Það er hins vegar hefð fyrir
því að fjölmiðlar láti lesendur
sína hlaupa 1. apríl og því eru
hrekkir sem þessir fullkom-
lega löglegir.
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 12:56 Page 6