Víkurfréttir - 07.04.2004, Page 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKURFRÉTTIR//stjórnmál
Frá því að meirihlutiSjálfstæðisflokksins tókvið stjórn bæjarins í júní
2002 hefur mik-
il uppbygging
átt sér stað.
Meirihlutinn
samanstendur
af samhentum
hópi fólks með
ólíkan bak-
grunn og víðtæka reynslu. Árni
Sigfússon oddviti hópsins hefur
staðið sig frábærlega sem leið-
togi og andlit sveitarfélagsins
útávið.
Þegar Bandaríkjastjórn tók þá
ákvörðun að breyta áherslum sín-
um í varnarmálum og skera niður
starfsemina á Miðnesheiði var
ljóst að grípa þurfti til enn frekari
aðgerða í atvinnumálum. Mikil
varnarbarátta hefur verið háð í
þeim efnum og er staðan sú að í
dag eru um 100 færri á atvinnu-
leysisskrá en á sama tíma í fyrra.
Þrátt fyrir að kjörtímabilið sé að-
eins hálfnað hefur Sjálfstæðis-
flokknum tekist að koma mörg-
um af kosningaloforðum sínum í
efndir. Vil ég nefna örfá dæmi.
Atvinnumál
- Uppbygging iðnaðarsvæðis í
Helguvík með fullkominni hafn-
araðstöðu í nágrenni alþjóðaflug-
vallar
- Bygging nýs raforkuvers á
Reykjanesi á vegum Hitaveitu
Suðurnesja
- Eflingu háskólamenntunar og
uppbygging háskólastarfsemi á
svæðinu
- Ýmis verkefni tengd flugvellin-
um og Flugstöð Leifs Eiríkssonar
- Uppbygging Víkingaheims í
kringum víkingaskipið Íslending
Fjölskyldumál
- Nýr skóli í Innri Njarðvíkur-
hverfi
- Félagsmiðstöð ungs fólks að
Hafnargötu 88
- Frístundarskóli fyrir öll grunn-
skólabörn í 1. til 4. bekk
- Ókeypis almenningssamgöngur
Umhverfismál
- Endurbygging Hafnargötunnar
- Umhverfisbætur að Fitjum
- Víðtækar lagfæringar á gang-
stéttum og vegköntum
- Ægisgata og fyllingar neðan
Hafnargötu
Þannig hefur verið lagður góður
grunnur að seinni hluta kjörtíma-
bilsins og er því full ástæða fyrir
bæjarbúa að líta björtum augum
til framtíðar undir styrkri stjórn
Sjálfstæðisflokksins.
Viktor B. Kjartansson
Formaður Sjálfstæðisfélagsins
í Keflavík
Samfylkingin í
Reykjanesbæ
ályktar um D-
álmu HSS
Áaðalfundi Samfylkingar-innar í Reykjanesbæsem haldinn var 31.
mars var Ey-
steinn Eyjólfs-
son endurkjör-
inn formaður.
Með honum í
stjórn voru
kjörin þau Vil-
hjálmur Skarp-
héðinsson, Stefán Ólafsson,
Sigríður Lára Geirdal og Eð-
varð Þór Eðvarðsson. Að lokn-
um aðalfundarstörfum tóku
við fjörugar umræður um
bæjarmál og heilbrigðismál á
Suðurnesjum. Fundurinn sam-
þykkti eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ haldinn á Víkinni
31. mars 2004 lýsir áhyggjum
yfir því ástandi sem skapast hef-
ur í málefnum aldraðra sjúkra á
Suðurnesjum, en nýleg dæmi eru
um að þeir haf i verið fluttir
nauðungarflutningum í annað
sveitarfélag. Frá upphafi um-
ræðna um D-álmuna var gert ráð
fyrir því að hún vistaði aldraða
sjúka. Samkvæmt síðustu upp-
lýsingum má gera ráð fyrir sjötíu
öldruðum á biðlistum fyrir vistun
á dvalar- eða hjúkrunarstofnun, á
sama tíma er D- álman ekki not-
uð í það sem hún var byggð fyrir.
Eftir að stjórnir heilbrigðisstofn-
ana voru lagðar niður með laga-
breytingu hafa heimamenn enga
aðkomu að ákvarðanatöku um þá
þjónustu sem veitt er. Forstjóri og
þeir sérfræðingar sem með hon-
um vinna hafa sitt umboð beint
frá ráðuneyti heilbrigðismála.
Enn alvarlegra er ástandið eftir
að flestir starfsmenn í stjórnunar-
stöðum sem hér búa hafa látið af
störfum og fólk sem ekki þekkir
til aðstæðna heldur eitt um
stjórnartaumana. Sveitarstjórnar-
menn verða að berjast fyrir því
að íbúar svæðisins njóti þeirrar
grundvallarþjónustu sem gera
verður kröfu um í nútíma samfé-
lagi. Aðalfundur Samfylkingar-
innar í Reykjanesbæ skorar á
ráðherra heilbrigðismála að
stofna til umræðna um framtíðar-
þróun heilbrigðis- og öldrunar-
mála á Suðurnesjum í þeim til-
gangi að skapa sátt um þann
mikilvæga málaflokk.
Styrk stjórn
Reykjanesbæjar
➤ V I K T O R K J A R TA N S S O N S K R I F A R
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
Munið Tímarit Víkurfrétta!
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 16:00 Page 12