Víkurfréttir - 07.04.2004, Page 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
!
"
#$
! "
# $ %&$ " '() *(+ ,
', -"
.
/
"01 1 #"
2
1 %3
4 $
50 " '%&
"&
%
4% 1 66
4 -
"
&-
, -" -
7!08'
-0&"
". 6
49:"
!% 9 -
-"''! -6
! "
#
85:5:;< 8;=<;;<88 F jarnám í háskólum eyk-ur sveigjanleika í námiog skapar mörgum
möguleika til
að stunda nám
sem að ella
gætu það ekki.
Fjarnám er
góður kostur
fyrir einstak-
linga sem vilja
afla sér auk-
innar menntunar án þess að
þurfa að flytja og hætta vinnu
eða vilja vera heima og sinna
börnum meðfram námi.
Fyrir þá sem vilja eiga mögu-
leika á störfum í tæknivæddu
samfélagi nútímans er tölvunar-
fræði góður kostur enda býður
fagið upp á góða undirstöðu-
menntun sem nýtist vel á ýmsum
sviðum. Tölvunarfræðideild Há-
skólans í Reykjavík (HR) býður
upp á nám í kerfisfræði (60 ein-
ingar) í fjarnámi. Kerfisfræðing-
ar eiga kost á fjölbreyttum störf-
um sem henta jafnt konum sem
körlum, s.s. við alla þætti hug-
búnaðargerðar, en einnig við
önnur störf s.s. stjórnun, ráðgjöf,
rannsóknir og kennslu.
Fjarnámið í HR er tekið á hálfum
hraða; tvö námskeið á haustönn
og tvö námskeið á vorönn ásamt
verklegu námskeiði á vorönn
sem krefst þess að nemendur
vinni verkefni í skólanum í þrjár
vikur. Námsefni fjögurra anna er
því tekið á fjórum árum í stað
tveggja í staðbundu námi. Náms-
efni og námskröfur í fjarnámi er
eins og í staðarnámi og fer fjar-
nám deildarinnar fram í sérhönn-
uðu kennsluumhverfi sem skól-
inn hefur þróað á undanförnum
árum og byggir á internettækni.
Fyrirlestrar í kennslustundum í
staðarnámi er teknir upp og eru
þessir hljóðfyrirlestrar settir á
netið fyrir fjarnema sem geta
sótt þá og hlustað á þegar þeir
vilja og eins oft og þeir vilja. Á
hverri önn eru tvær tveggja daga
vinnulotur um helgi í HR þar
sem fjarnemendum gefst tæki-
færi til þess að hitta kennara sína
og aðra fjarnemendur, hlusta á
fyrirlestra og vinna að verkefn-
um. Spjall í beinni er vikulega í
flestum námskeiðum þar sem
kennari og nemendur tengjast
samtímis inn á internetið til að
spjalla þar saman um námsefnið.
Spjall í beinni kemur í stað hefð-
bundinna símatíma kennara. Að
auki eru nýttir umræðuþræðir í
kennslukerfi skólans þar sem
nemendur ræða námsefnið, legg-
ja fram spurningar og taka þátt í
að svara spurningum annarra.
Æskilegur undirbúningur fyrir
háskólanám er stúdentspróf en í
HR skoðum við umsóknir frá
nemendum sem ekki hafa lokið
stúdentsprófi og metum hvort
við teljum viðkomandi hafa næg-
an þroska og undirbúning, s.s.
annað nám eða starfsreynslu,
sem að gerir umsækjanda hæfan
til að stunda háskólanám.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.ru.is og þar er hægt að
sækja um skólavist.
Ásrún Matthíasdóttir
Lektor og verkefnisstjóri fjar-
náms Háskólanum í Reykjavík
➤ M E N N T U N Á H Á S K Ó L A S T I G I
Fjarnám við Há-
skólann í Reykjavík
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 14:37 Page 14