Víkurfréttir - 07.04.2004, Page 15
HEILBRIGÐISSTOFNUN
SUÐURNESJAFRÉTTABRÉF HSS
Brot úr framtíðarsýn
WWW.HSS.IS
Ágætu Suðurnesjamenn,
Unnið hefur verið að stefnumörkun Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til
ársins 2010. Í þeirri stefnumörkun er lögð megináhersla á að HSS verði
fyrsti viðkomustaður Suðurnesjabúa eftir heilbrigðisþjónustu. Gert er ráð
fyrir að auka verulega héraðshlutdeild stofnunarinnar þannig að allri
heilsugæslu verði sinnt á svæðinu og allt að 80% af sjúkrahúsþjónustu.
Heilsugæsla
Gert er ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu heilsugæslunnar og að hún
verði forgangsverkefni. Heilsugæslustöðvar eru í Reykjanesbæ og Grindavík
og stefnt er að því að efla þjónustu í heilsugæsluseljunum í Sandgerði, Garði og Vogum. Áhersla
verður lögð á gott samstarf milli heilsugæslu og sjúkrahúss til að samnýta þekkingu og reynslu
starfsfólks sem best. Forvarnir og heilsuefling munu fá aukið vægi. Meginverkefni verður áfram að
veita öfluga þjónustu í mæðravernd, ung- og smábarnavernd, skólahjúkrun, heimahjúkrun og
almennri móttöku. Einnig er lögð áhersla á að mæta sérhæfðari þörfum skjólstæðinga eins og t.d.
með móttöku fyrir sykursýkissjúklinga, móttöku þeirra sem þurfa á sálfélagslegri aðstoð að halda,
móttöku fyrir unglinga og nú 1. maí er fyrirhugað að opna göngudeild fyrir aldraða. Markmið um
biðtíma og aðgengi hafa verið lögð fram.
Sjúkrahús
Gert er ráð fyrir að uppbyggingu D-álmu verði lokið fyrir árslok 2005. Áfram sem hingað til er það
metnaðarmál að veita verðandi mæðrum góða þjónustu og örugga fæðingahjálp. Nýjar skurðstofur
og legurými fyrir skurðsjúklinga er nauðsyn til að sjúkrahúsið geti sinnt skurðlækningum til framtíðar.
Í lyflækningum er gert ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu í heimabyggð en á því hefur verið
misbrestur. Ekki er lengur gert ráð fyrir að sjúklingar með almenna sjúkdóma verði fluttir til Reykja-
víkur, þeir mun fá þjónustu í heimabyggð. Einnig munu þeir sem þurfa á hátæknimeðferð að halda á
Landsspítala - Háskólasjúkrahúsi koma til baka á HSS um leið og ástand þeirra leyfir, þannig að
sjúklingar og aðstandendur þurfa ekki að ferðast á milli staða meira en nauðsyn krefur. Mikilvægt er
að gera ráð fyrir öflugum dagdeildum því sífellt eru gerðar auknar kröfur um styttri legur og aukna
heimaþjónustu. Nú þegar er búið að opna virka dagdeild fyrir þá sem koma til minniháttar aðgerða,
lyfjameðferða og blóðgjafa, 5 daga deild var opnuð 1. febrúar fyrir þá sem þurfa á endurhæfingu að
halda í víðum skilningi. Afar góð reynsla er af starfsemi þessara deilda. Öll aðstaða til endurhæfingar
á HSS er til fyrirmyndar og er ráðgert að halda áfram að efla þá mikilvægu þjónustu.
Öflug stofnun fyrir alla Suðurnesjamenn
HSS stefnir að því að verða öflug stofnun sem veitir öllum skjólstæðingum skjóta, góða og örugga
þjónustu. Aldraðir munu hafa ákveðinn forgang að nútíma heilbrigðisþjónustu, hvort sem um er að
ræða heimahjúkrun, dagdeildarþjónustu, endurhæfingaþjónustu, hjúkrunar- eða sjúkrahúsþjónustu.
Mikilvægt er að allir Suðurnesjamenn leggist á eitt við að hlúa að stofnuninni svo fagfólkið þar getið
haldið áfram á þeirri braut sem hefur verið mörkuð.
Sigríður Snæbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri HSS
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 13:02 Page 15