Víkurfréttir - 07.04.2004, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I 15. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 7. APRÍL 2004 I 19
f
r
m
a
á
ra
kil
á
m
Lyktin er ekki góð þegarkomið er inn í beitninga-skúra. Beitningakarlarn-
ir eru þó alltaf hressir og hafa
margt að tala um. Á litlum
stöðum út á landi eru beitn-
ingaskúrarnir yfirleitt upp-
spretta frétta og tíðinda úr
bæjarfélaginu. Þar koma
gömlu karlarnir við og fiska
eftir fréttum af sjónum.
Við Strandgötuna í Sandgerði er
beitningaskúr og þar inni voru
þrír hressir karlar - og ein kona.
Anna Sigurðardóttir kallar ekki
allt ömmu sína og sjálfsagt er
hún ein fárra kvenna sem vinna
við beitningu á Íslandi. Hún kann
vel við starfið og er ánægð. Hún
hefur beitt í Sandgerði frá því í
byrjun febrúar. Anna er ekki al-
veg óvön starfinu því fyrir 15
árum var hún við beitningu eina
vertíð vestur á Flateyri. „Maður
verður náttúrulega þreyttur í
löppunum af að standa svona. En
kosturinn við beitninguna er að
það er enginn sem stendur með
skeiðklukku yfir þér. Maður fær
bara visst fyrir balann og ef mað-
ur verður þreyttur í miðjum bala
þá getur maður sest niður og
fengið sér kaffisopa,“ segir Anna
og smellir einum króknum í
spunakerlinguna til að rétta hann.
Anna beitir 5 bala á dag og er um
8 til 9 tíma að því. En stingur
hún sig aldrei á krókunum? „Jú,
það kemur fyrir,“ segir Anna og
hlær. „Maður varð svolítið göt-
óttur þegar maður var að byrja.“
Síðasta mánuðinn hefur verið lít-
ið að gera í beitningaskúrum
víða á Suðurnesjum og segir
Anna að ekkert hafi verið að
gera síðasta mánuð, en í skúrn-
um hjá Önnu er beitt fyrir Óla
Gísla GK-112. „Það hefur ekkert
gefið á sjó síðasta mánuð. Von-
andi fer bara að gefa á sjóinn,“
segir Anna og smellir vænni síld
á einn krókinn, en bæði er notuð
síld og smokkfiskur sem beita.
Kona í beitningaskúr í Sandgerði
VÍKURFRÉTTIR//starfið mitt
Anna Sigurðardóttir kallar
ekki allt ömmu sína og sjálf-
sagt er hún ein fárra kvenna
sem vinna við beitningu á
Íslandi. Hún kann vel við
starfið og er ánægð. Hún
hefur beitt í Sandgerði frá
því í byrjun febrúar. Anna er
ekki alveg óvön starfinu því
fyrir 15 árum var hún við
beitningu eina vertíð vestur
á Flateyri.
Anna er stolt af úlfinum sem er
húðflúraður á upphandlegginn.
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 13:42 Page 19