Víkurfréttir - 07.04.2004, Síða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið
ÞRJÚ
HJÖRTU
HELGA
TÍMARIT
VÍKURFRÉTTA
Komið á næsta
blaðsölustað!
Íeinvígi Keflavíkur og Snæ-fells um Íslandsmeistaratitilkarla í körfuknattleik leiða
saman hesta sína tvö bestu lið
landsins. Snæfellingar hafa
komið liða mest á óvart í vetur
og farið mikinn. Þeir unnu
deildarmeistaratitilinn eftir
frábæran endasprett og höfðu
spilað ákaflega sannfærandi í
úrslitakeppninni. Þar höfðu
þeir lagt Hamar og Njarðvík
að velli án þess að tapa leik og
sannað að þar færi alvöru lið
sem sýndi af sér baráttuanda
og væri til í að leggja allt í söl-
urnar fyrir sigur.
Keflvíkingar höfðu hins vegar
ekki verið mjög stöðugir í leik
sínum og fóru viðureignir þeirra í
8-liða úrslitum og undanúrslitum
í oddaleiki. Fróðlegt yrði því að
sjá hvernig leiðir þessara liða
myndu þróast.
Keflvíkingar vilja eflaust gleyma
fyrsta leik liðanna sem fór fram í
Stykkishólmi sl. fimmtudag. Þar
töpuðu þeir illa gegn frískum
Snæfellingum þar sem nýjasta
stjarna íslensks körfubolta, Hlyn-
ur Bæringsson, fór hamförum.
Hann tók 20 fráköst og var öflug-
ur í vörninni þar sem hann jarð-
aði Fannar Ólafsson gjörsamlega,
en Fannar komst ekki á blað í
leiknum. Corey Dickerson bætti
33 stigum í púkkið og Snæfell
hafði tekið forystuna í fyrsta
titileinvígi sínu frá upphafi.
Annar leikurinn var í Keflavík og
var nú að duga eða drepast fyrir
heimaliðið.
Leikurinn var óhemju jafn og
spennandi þar sem liðin skiptust
á að leiða og baráttan var í fyrir-
rúmi. Sverrir Þór Sverrisson kom
inná í seinni hálfleik og keyrði
varnarleik Keflvíkinga áfram og
smátt og smátt tóku þeir stjórnina
á vellinum. Þegar allt virtist
stefna í öruggan heimasigur
hrukku Snæfellingar í gang á ný
og sóttu fast að Keflvíkingum.
Síðustu mínútur leiksins voru
magnþrungnar og taugar leik-
manna þandar til hins ýtrasta, en
frábær frammistaða Magnúsar
Þórs Gunnarssonar var lykillinn
að mikilvægum sigri.
Á síðustu andartökum leiksins
sauð uppúr þar sem Arnar Freyr
Jónsson og Dickerson tókust á og
var þeim síðarnefnda vísað af
leikvelli fyrir sinn þátt í málinu.
Hann verður væntanlega í leik-
banni í fjórða leiknum, en kærur
á hendur báðum leikmönnum
voru teknar fyrir hjá aganefnd
KKÍ eftir að þetta blað fór í
prentun.
Snæfellingar máttu illa við því að
tapa þriðja leiknum á heimavelli
sínum vegna þess að Keflvíking-
ar eru erfiðir heim að sækja og
hafa ekki tapað leik í „Sláturhús-
inu“ í rúmt ár.
Stemmningin á pöllunum í
Hólminum var frábær eins og
hún hefur verið í öllum leikjun-
um, þar sem stuðningsmenn
beggja liða fylltu húsið.
Snæfell áttu hins vegar fyrir
höndum langt kvöld þar sem lítið
gekk upp hjá þeim og Keflvík-
ingar höfðu frumkvæðið allan
leikinn.
Hlynur Bæringsson, sem hafði
staðið sig svo vel fram að þess-
um leik, fann sig ekki nokkurn
vegin og skoraði einungis 3 stig
og fékk ekki rönd við reist þegar
Fannar og Derrick Allen tóku
völdin í teignum og munar um
minna fyrir deildarmeistarana.
Varnarveggur Keflavíkur var
þéttur í leiknum þar sem Sverrir
Þór fór fremstur í flokki og fundu
Snæfellingar enga leið að körf-
unni. Keflvíkingar voru mjög
sannfærandi í leik sínum og
bættu þeir sífellt við muninn í
seinni hálfleik og tryggðu sér að
lokum góðan sigur og höfðu því
unnið tvo leiki gegn einum leik
Snæfells.
Næsti leikur er á dagskrá á laug-
ardaginn þar sem Keflvíkingar
geta tryggt sér Íslandsmeistaratit-
ilinn annað árið í röð.
Landar Keflavík
titli á laugardag?
Baráttan um Íslandsbikarinn: Keflavík 2 - Snæfell 1
SNÆFELL-KEFLAVÍK 80-76 (1-0)
Snæfell: Corey Dickerson 33, Hlynur
Bæringsson 12/20, Edmund Dotson 12.
Keflavík: Derrick Allen 31/11, Nick
Bradford 20/13, Gunnar Einarsson 13.
KEFLAVÍK-SNÆFELL 104-98 (1-1)
Keflavík: Bradford 26/9/8, Allen 25,
Magnús 18, Fannar 12. Gunnar Einars-
son 9.
Snæfell: Whitmore 25, Hlynur Bærings-
son 23/19, Dickerson 22, Dotson 19.
SNÆFELL-KEFLAVÍK 64-79 (1-2)
Snæfell: Sigurður Þorvaldsson 16, Ed-
mund Dotson 14/14, Corey Dickerson 9.
Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 17,
Derrick Allen 14, Fannar Ólafsson 13,
Sverrir Þór Sverrisson 13.
Fyrstu þrír...
Hljómsveitin Kókoz
•
Eðalkvöld í Sandgerði
•
Glæsikvöld hjá 10.
bekk í Njarðvík
•
Gustav
gervihnattasmiður
•
Árshátíð
Reykjanesbæjar
•
Árshátíð Perlunnar
•
Bergur á hryðju-
verkaslóðum í Madríd
•
Góugleðin
•
Jói Kristjáns á OL
•
Ómar Ólafs og allt
það skrýtna
•
„Sprautuð“ brún
fyrir sumarið og m.fl.
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 13:46 Page 22