Víkurfréttir - 06.05.2004, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
H itaveita Suðurnesja hf.og Norræni fjárfest-ingabankinn (NIB)
undirrituðu á mánudag lána-
samning að jafnvirði 40 millj-
óna evra eða rúmlega 3,5 millj-
arðar íslenskra króna. Lánið,
sem er til 15 ára og afborgun-
arlaust til ársins 2009, verður
greitt út í tveimur hlutum á ár-
unum 2004 og 2005 og vaxta-
kjörin eru 6 mánaða erlendir
millibankavextir með mjög
hóflegu álagi.
Lán þetta tekur Hitaveita Suður-
nesja hf til að fjármagna hluta
100 MW virkjunar sinnar á
Reykjanesi, en gert er ráð fyrir
að þessi lántaka endurspegli um
helming lánsfjárþarfar fyrirtækis-
ins vegna virkjunarinnar. Unnið
er að útvegun frekara lánsfjár og
hefur Íslandsbanki aðstoðað fyr-
irtækið við gerð mjög ítarlegs
kynningarefnis um verkefnið,
fyrirtækið sjálft, jarðhitavinnslu á
Íslandi og annað það er máli
skiptir í viðræðum við erlendar
lánastofnanir um lánveitingu til
slíks verkefnis.
Mjög gott samstarf hefur verið
um árabil milli NIB og Hitaveitu
Suðurnesja hf og er þetta þriðja
lántaka fyrirtækisins hjá NIB, en
á árinu 1989 lánaði bankinn fyr-
irtækinu um 500 milljónir króna
og árið 1998 um 1 milljarð
króna, en á þessu tímabili hefur
Hitaveita Suðurnesja hf ekki tek-
ið önnur langtímalán. Fyrir hönd
NIB undirritar Jón Sigurðsson
bankastjóri lánssamninginn en
fyrir hönd Hitaveitu Suðurnesja
hf þeir Ellert Eiríksson stjórnar-
formaður og Júlíus Jónsson for-
stjóri.
➤ Fyrirhuguð Reykjanesvirkjun:
Hitaveita Suðurnesja tekur
3,5 milljarða kr. að láni
- hjá Norræna fjárfestingabankanum
Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson
Á tján manns á Suðurnesj-um var sagt upp ummánaðarmótin, til við-
bótar þeim 14 sem sagt var
upp störfum hjá Varnarliðinu í
síðustu viku. 12 manns var sagt
upp hjá fiskvinnslufyrirtækinu
Suðurnes. Þeir starfsmenn sem
sagt var upp störfum hjá Suð-
urnes voru ráðnir í tímabundin
verkefni og hafa vel flestir
þeirra sem sagt var upp aðeins
unnið hjá fyrirtækinu í 3 mán-
uði.
Sex manns var sagt upp hjá Kjöt-
seli, kjötvinnslu Samkaupa. Að
sögn Skúla Skúlasonar starfs-
mannastjóra Samkaupa er verið
að vinna að því að endurráða það
starfsfólk sem sagt var upp störf-
um. „Við munum leggja okkur
fram um að þetta fólk gangi fyrir
í störf innan verslana okkar ef
þess er nokkur kostur,“ sagði
Skúli í samtali við Víkurfréttir.
Ástæða uppsagnanna segir Skúli
vera þá að stefnt sé að því að
selja Kjötsel. „Við munum þó
leggja áherslu á að vörur frá
Kjötseli verði áfram á boðstólum
í verslunum okkar.“
Ámilli 30 og 40 starfs-mönnum Varnarliðsins áKeflavíkurflugvelli verð-
ur sagt upp störfum á næstu
tveimur mánuðum. Gert er ráð
fyrir að fólkið hætti störfum í
sumarlok samkvæmt heimild-
um Víkurfrétta.
Utanríkisráðherra sagði við utan-
dagskrárumræður um málefni
Varnarliðsins á Alþingi að Varn-
arliðið hygðist fara í frekari hag-
ræðingaraðgerðir sem geti falið í
sér frekari uppsagnir. Utanríkis-
ráðherra sagði við umræðurnar
að rúmlega 30 af þeim 100
manns sem sagt var upp störfum
í nóvember á síðasta ári væru
enn án atvinnu. Ráðherra sagði
að um 20 af þeim 100 sem sagt
var upp störfum hefðu farið á eft-
irlaun og að 14 manns hefðu ver-
ið endurráðnir hjá Varnarliðinu.
Frá því í nóvember hefur því 114
manns verið sagt upp störfum hjá
Varnarliðinu og er stærstur hluti
þeirra búsettur á Suðurnesjum.
30 til 40 starfsmönnum VL sagt
upp á næstu tveimur mánuðum
Rúmlega 30 manns
sagt upp á Suðurnesj-
um á stuttum tíma
Júlíus og Jón handsala lánasamninginn. Ellert á milli þeirra.
Fundur hjá Víkingafélaginu
föstudaginn 7. maí kl. 19:30 í 88 Húsinu, Hafnargötu 88
Keflavík. Þetta er framhalds-stofnfundur.
Allir velkomnir sem áhuga hafa á fornri sögu okkar,
lifnaðarháttum, handverki og fl.
Böðvar Gunnarsson, Suðurnesjavíkingur.
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 13:49 Page 8