Víkurfréttir - 06.05.2004, Síða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Íyfirlýsingu frá Íslenskummarkaði hf. er þeirriákvörðun Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar hf. að segja upp
húsaleigusamningi fyrirtækis-
ins í Leifsstöð harðlega mót-
mælt. Í yfirlýsingunni segir að
uppsögnin sé aðför að meira en
þriggja áratuga farsælum rek-
stri Íslensks markaðar og að
með aðgerðunum sé starfsör-
yggi 25 starfsmanna fyrirtæk-
isins ógnað.
Ennfremur kemur fram í yfirlýs-
ingunni að yfirlýsingar forráða-
manna FLE í fjölmiðlum sýni
svo ekki verður um villst að ætl-
un þeirra sé að bola Íslenskum
markaði út úr flugstöðinni.
Forráðamenn Íslensks markaðar
hafa sent samkeppnisyfirvöldum
bréf þar sem farið er fram á að
þau beiti íhlutun og stjórnvalds-
sektum gegn FLE vegna ólög-
legra aðgerða flugstöðvarinnar.
Yfirlýsing frá Íslenskum mark-
aði hf.
4. maí 2004
Lögbrotum FLE harðlega mótmælt
Vegna fréttaflutnings um sam-
skipti Íslensks markaðar hf. og
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf.
(FLE) vilja forráðamenn Íslensks
markaðar koma eftirfarandi á
framfæri.
Forráðamenn Íslensks markaðar
mótmæla harðlega þeirri ákvörð-
un FLE að segja upp samningum
fyrirtækisins um leigu á verslun-
arrými í flugstöðinni, sem til-
kynnt var 30. apríl sl. Uppsögnin
er aðför að meira en þriggja ára-
tuga farsælum rekstri Íslensks
markaðar og ógnar starfsöryggi
25 starfsmanna fyrirtækisins. Að
auki gengur uppsögnin þvert
gegn ákvörðunum samkeppnis-
yfirvalda, sem staðfestar voru
með dómi Hæstaréttar þann 29.
apríl sl. Með því að segja aðeins
Íslenskum markaði upp aðstöðu í
flugstöðinni en ekki öðrum
leigutökum, er FLE enn fremur
að misnota yfirburðastöðu sína
og mismuna rekstraraðilum, sem
er brot á samkeppnislögum.
Samkeppnisráð ákvað í janúar
árið 2003 að FLE skyldi upplýsa
Samkeppnisstofnun um hvernig
staðið yrði að útleigu á verslunar-
rými í flugstöðinni. Framkvæmd
forvals sem FLE efndi til árið
2002 skyldi frestað þar til Sam-
keppnisstofnun hefði fengið um-
ræddar upplýsingar. Ljóst er að
með uppsögn á leigusamningi
við Íslenskan markað hefur verið
brotið gegn áðurnefndri ákvörð-
un samkeppnisráðs, sem síðar
var staðfest með úrskurði áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála.
FLE hefur haldið áfram með for-
valsvinnu og hunsað að láta
Samkeppnisstofnun í té þær upp-
lýsingar sem krafist var.
Yfirlýsingar forráðamanna FLE í
fjölmiðlum að undanförnu sýna
svo ekki verður um villst að ætl-
un þeirra er að bola Íslenskum
markaði út úr flugstöðinni.
Einnig er greinilegt að uppsögnin
þjónar þeim tilgangi að „refsa“
Íslenskum markaði fyrir það eitt
að hafa leitað réttar síns og freist-
að þess að koma í veg fyrir lög-
brot. Uppsögnin var tilkynnt að-
eins sólarhring eftir að Hæstirétt-
ur kvað upp dóm sem staðfestir
niðurstöðu samkeppnisyfirvalda,
en veitir FLE tiltekið svigrúm til
að ráðstafa húsnæði flugstöðvar-
innar.
Forráðamenn Íslensks markaðar
hafa sent samkeppnisyfirvöldum
bréf þar sem farið er fram á að
þau beiti íhlutun og stjórnvalds-
sektum gegn FLE vegna ólög-
legra aðgerða flugstöðvarinnar.
➤ Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli:
➤ Málefni Íslensks markaðar hf. í Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
F jölmennt var á ráðstefnu FlugstöðvarLeifs Eiríkssonar hf. um rekstur flug-stöðva og framtíðarhorfur í ferðaþjónustu
og öryggismálum á Hótel Nordica fyrir helgi.
Ráðstefnuna sóttu 160-170 manns og óhætt er
því að segja að áhugi fyrir samkomunni hafi ver-
ið í samræmi við björtustu vonir. Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra, setti ráðstefnuna
og sagði meðal annars að ferðaþjónustan væri
einn mikilvægasti vaxtarbroddur atvinnulífs á
Íslandi. Þar væri staðið að málum á faglegan og
fjölbreyttan hátt.Atvinnugreinin lagaði sig að
breyttum aðstæðum hverju sinni og væri fljót að
tileinka sér nýjungar. Ráðherra sagði að Flug-
stöðin og Keflavíkurflugvöllur væru ,,gluggi til
annarra þjóða“. Þjónusta þar og aðstaða skiptu
sköpum fyrir framtíð samgangna og ferðamála
á Íslandi.
Tveir erlendir ráðgjafar fluttu erindi, auk margra ís-
lenskra, þeir Duncan Tolson, yfirmaður viðskipta-
þróunar BAA, fyrirtækis sem rekur helstu flugvelli
Bretlands, og Alan Bork, ráðgjafi frá Danmörku.
Þeir segja að hvergi í Evrópu hafi farþegum í einni
flugstöð fjölgað meira undanfarin ár en einmitt hér
á Keflavíkurflugvelli.
Magnús Oddsson, ferðamálastjóri, benti á að ferða-
mönnum í heiminum öllum hefði fjölgað um 4%
undanfarin áratug en um 8% á Íslandi á sama tíma.
Ísland væri í þriðja sæti að þessu leyti í Evrópu.
Hann sagði áhugaverðustu breytinguna í ferðaþjón-
ustu hér á síðari árum vera þá að Ísland væri orðið
heilsársáfangastaður og spáði því að ferðamönnum
myndi fjölga enn meira hérlendis næstu árin en
miðað væri við í áætlununum um uppbyggingu
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þannig myndu er-
lendir ferðamenn á Íslandi 15. janúar 2020 verða
10% fleiri en 15. júlí 2004.
Húsfyllir á ráðstefnu
Starfsöryggi 25 starfsmanna ógnað
Umsóknir um 26 íbúðalóðir frá þremur byggingafyrirtækj-um voru til afgreiðslu skipulags- og bygginganefndar Sveit-arfélagsins Garðs á síðasta fundi. Íbúum í Garði fjölgar
jafnt og þétt og umsóknirnar í samræmi við þá fjölgun.
Á vef Sveitarfélagsins Garðs kemur fram að nefndin ákvað að óska
eftir ákveðnum upplýsingum og gögnum áður en afstaða verður tekin
til umsóknanna. Gert er ráð fyrir afgreiðslu á umsóknunum á næsta
fundi.
➤ Mikil og hröð uppbygging í Garði:
Sótt um 26 íbúðalóðir
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 15:46 Page 10