Víkurfréttir - 06.05.2004, Síða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Auglýsing um starfsleyfistillögur sbr. mengunarvarnareglugerð
nr. 785/1999.
Tillaga að starfsleyfi til handa Hitaveitu Suðurnesja (680475-
0169) til reksturs á jarðvarmavirkjun við Svartsengi liggur frammi
til kynningar á skrifstofu HES að Fitjum í Njarðvík, heimasíðu
HES www.hes.is og skrifstofum sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Samkvæmt ofangreindri reglugerð hafa eftirtaldir aðilar rétt til
athugasemda:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og
starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum
vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Skriflegar athugasemdir skal senda til heilbrigðisnefndar
Suðurnesja, Fitjum, 260 Njarðvík Reykjanesbæ. Frestur til að
gera athugasemdir er fjórar vikur frá birtingu þessari.
www.hes.is
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja.
Dagskrá
6. maí verður gengið um Vog-
ana í fylgd Þorvaldar Árnasonar
og Höllu. Lagt af stað frá
Íþróttahúsinu í Vogum kl.20
13. maí verður gengið um
gamla bæinn í Keflavík með
Kristjáni Jónssyni,kennara.
Lagt af stað frá minnismerki
Sjómanna við Hafnargötu kl.
20
27. maí verður gengið um
Grindavík með Halldóri Ingv-
arssyni. Lagt af stað frá Sam-
kaupum í Grindavík kl.20.
3. júní verður gengið um Hafn-
ir með Sigurjóni Vilhjálmssyni.
Lagt af stað frá Kirkjuvogs-
kirkju í Höfnum kl.20.
10. júní verður gengið um Innri
Njarðvík með Áka Gränz. Lagt
af stað frá Innri Njarðvíkur-
kirkju kl 20.
24. júní verður gengið um Inn-
Garðinn með Ásgeiri Hjálmars-
syni. Lagt af stað frá Björgunar-
sveitarhúsinu Þorsteinsbúð
kl.20.
1. júlí verður gengið um Sand-
gerði í fylgd Reynis Sveinsson-
ar Lagt af stað frá Fræðasetrinu
í Sandgerði kl.20.
„Hann veit greinilega ekki
hvað hann er búinn að koma
sér,“ sagði ein konan hlæjandi í
beitningaskúr í Grindavík þeg-
ar blaðamaður Víkurfrétta leit
þar við á dögunum. Í skúrnum
eru níu konur að beita og það
er ekki hægt að segja að það sé
leiðinlegt hjá þeim. Brandar-
arnir fljúga fram og til baka og
þær tala jafn hratt og þær
beita.
„Við erum að beita svona fimm
bala á dag, nema þessi ólétta, hún
beitir sex bala,“ segja stelpurnar
með bros á vör.
Aðstaðan hjá stelpunum er eins
og best verður á kosið og segja
þær að aðstaðan sé með því besta
á landinu. Þeim líður vel í vinn-
unni og segja að mórallinn sé
góður. „Við erum góðar vinkon-
ur og höldum stundum beitn-
ingapartý. Þú rétt misstir af einu
sem var um síðustu helgi,“ segja
þær og það er greinilegt að and-
inn er góður í hópnum.
Víkurfréttir fengu ábendingu um
þessar hressu beitningakonur í
kjölfar fréttar um konu sem starf-
➤ Konur fylla beitningaskúrana á Suðurnesjum:
U pplýsingamiðstöðReykjaness mun bjóðaupp á skoðunarferðir
um öll sveitarfélögin á Reykja-
nesi í vor. Ferðirnar verða alls
sjö. Byrjað verður á að fara
um Vogana á fimmtudaginn
6.maí, ferðirnar um Reykja-
nesbæ verða þrjár Keflavík,
Hafnir og Innri-Njarðvík,
Grindavík verður skoðuð, farið
verður í Inn-Garðinn og Sand-
gerði. Fróðir leiðsögumenn
munu lýsa hverjum stað.
Göngurnar verða ekki erfiðar
og reynt verður að miða við
að sem flestir geti tekið þátt.
Farið verður á eigin bílum og
byrjað á ákveðnum stað í hver-
ju sveitarfélagi og endað á
sama stað. Ferðirnar eru öllum
að kostnaðarlausu. Áætlað er
að byrja fimmtudaginn 6. maí.
Dagskrá skoðunarferðanna
verður gefin út og mun liggja
frammi í öllum sveitarfélögun-
um og einnig verður hægt að
nálgast hana á Upplýsingamið-
stöð Reykjaness Hafnargötu
57 Kjarni Sími: 421 6777
reykjanes@reykjanesbaer.is
og veffangið www.reykjanes.is
-beita fimm til sex bala á dag.
Níu hressar stelpur í beitningaskúr í
Grindavík taka blaðamann til bæna
Hressar stelpur í beitningu í Grindavík. F.v. Ásta, Matta, Laufey, Halla María, Stína, Hjördís, Solla, Bogga og Olla.
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
Skoðunarferðir um
sveitarfélögin á Reykjanesi
Upplýsingamiðstöð Reykjaness
H inn árlegi kirkjudagur Kálfatjarnarkirkju verður næst-komandi sunnudag, 9. maí, og hefst með guðsþjónustu íKálfatjarnarkirkju kl. 14.00. Prestur verður séra Kristín
Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur. Ræðumaður dagsins verður
Þráinn Bertelsson. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Frank Her-
lufsen. Sérstakir boðsgestir okkar eru þeir sem eiga 50 ára ferm-
ingarafmæli frá kirkjunni. Að athöfn lokinni í kirkjunni verður
kvenfélagið Fjólan með kaffisölu í samkomuhúsinu Glaðheimum
Vogum en allur ágóði af henni rennur í kirkjusjóð félagins. Við
hvetjum fólk til að koma eiga með okkur ánægjulega stund á
fallegum stað. Sóknarnefnd.
Kirkjudagur Kálfatjarnarkirkju á sunnudaginn
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 13:50 Page 12