Víkurfréttir - 06.05.2004, Síða 20
L estrarátakið í Reykja-nesbæ gengur vel og sko-rað er á nýtt fyrirtæki í
hverri viku, þar sem lesið er úr
bókmenntum í stutta stund og
síðan áskoruninni komið
áfram. Í þessari viku las
Kjartan Már Kjartansson,
starfsmannastjóri IGS fyrir
starfsfólk Toyota-salsins á
Fitjum. Það kemur síðan í ljós í
næstu viku hverja Toyota-fólk-
ið skorar á.
Hér að neðan er yfirlit yfir öll
þau fyrirtæki sem tekið hafa þátt
í lestraráskoruninni: Fræðslu-
skrifstofan, Víkurfréttir, Spari-
sjóðurinn, Tjarnargata 12, Ís-
landsbanki, Hitaveitan, Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja, Hlé-
vangur, Dagdvöl aldraðra, Kaffi-
tár, Stapafell, Lögfræðistofa Suð-
urnesja, Sýslumannsembættið í
Keflavík, Skipaafgreiðsla Suður-
nesja, Lögreglan, Slökkvilið,
Landsbankinn, Samkaup, Bóka-
búð Keflavíkur, Lyf og heilsa í
Keflavík, Lyfja í Keflavík, Tann-
læknastofa Kristínar og Einars,
Tannlæknastofa Inga og Bene-
dikts, Húsasmiðjan, Bílasprautun
Suðurnesja, Skipasmíðastöð
Njarðvíkur, IGS Flugeldhús, IGS
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og
IGS Mötuneyti starfsmanna. Nú
er bókin hjá Toyota-salnum.
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Reykjanesbæ, 28. 04. 2004.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja,
c/o Hr. Reynir Sveinsson,
formaður,
Bjarmalandi 5,
245 Sandgerði.
Ágæti vinur.
Mér þótti gott að sjá að þú ert formaður stjórnar
nýju Sorpeyðingarstöðvarinnar.
Ég fór þangað í dag og var kominn í þessa glæsi-
legu stöð um kl. 10:00. Deginum áður kom ég með
gólfsóp og musl í stöðina og var mér tekið afskap-
lega vel, menn vildu allt fyrir mig gera enda voru
þar piltar úr Njarðvíkurskóla við vinnu.
Það var annað uppi á teningnum í dag. Ég var kom-
inn inn á stöðina og var að leita mér að gámi til þess
að setja tignarlegt rusl mitt í. Ruslið var svolítill
jarðvegsdúkur og örlítil mold sem vildi endilega
fylgja dúknum er ég reif hann upp úr kartöflubeði.
Ég var að aka um þessa virðulegu eign okkar Suð-
urnesjamanna þegar til mín kom kurteis, ungur
maður. Sá hinn ungi tjáði mér að ég væri þarna á
röngum tíma. Það væri opnað „fyrir svona karla
eins og þig“ klukkan 14:00.
Mér brá, auðvitað, og gerði mér nú ljóst að ég var
orðinn bersyndugur maður. Ég varð strax svolítið
aumur á sálinni, fannst ég vera eins og hver önnur
tötrughypja og auk þess illa upp alinn.
Ég tjáði þessum yngismanni að ég hefði einfaldlega
ekki haft hugmynd um þetta og þætti afskaplega
leiðinlegt hvursu alvarleg brot ég hafði framið!
Spurði hann þó hvort hann vildi gera undantekn-
ingu vegna mín, ég væri góðmenni að eðlisfari og
vildi sjálfur hvers manns vanda leysa þegar ég fengi
tækifæri til, sem stundum kæmi fyrir.
Þá sagði ég honum að svo illa stæði á að ég þyrfti
að skila tækinu góða, kerrunni,
kl. 10:30 og ef ég gerði það ekki þyrfti ég að greiða
sólarhring til viðbótar í leigugjöld til Húsasmiðj-
unnar sem mér þætti illt!
„Því miður, vinur, þetta er bara svona.“ sagði hann.
Ungmennið kvaddi ég í fússi.
Ég ók svo af stað, stansaði við gám sem var fullur
af ómáluðum spýtum. Ég var með eina slíka í far-
angri mínum og setti hana í gáminn.
Er ég hafði lokið því komu til mín tveir ábúðarfullir
menn og sáu þeir strax hvursu mikil ótukt og ill-
menni ég er og skipuðu mér burtu. Ég spurði enn
hvort ekki mætti gera duggunarlitla undanþágu með
þennan tötrugbassa (mig) og leyfa mér að losa enda
voru gámar allt um kring. Það var ekki hægt. Annar
þessara manna var sérlega kurteis við mig, ku hafa
verið þegn hins, enda var yfirmaðurinn ábúðarfyllri.
Undirmaðurinn sagði að þetta ætti ég nú að skilja,
„ég veit að þú heitir Gylfi og þú hefur verið skóla-
stjóri til margra ára. Auðvitað veist þú að reglur
þurfa að gilda og þeim þarf að fylgja!“
Í mínu starfi þarf ég einmitt að vera velviljaður
fólki, hef jafnvel skrifað meðmæli á erlendu tungu-
máli á miðnætti - og var ég þá örugglega að gera ör-
litla undanþágu frá því sem tíðkast í mínu starfi,
svona mætti áfram dæmin telja - svo störfin eru
ekki alveg sambærileg hvað þetta varðar.
Annars er bréf þetta til stjórnar, ágæti Reynir, mest
skrifað mér til yndis. Ég hafði gaman af þessu í aðra
svona eftir á!!
Hins vegar held ég að það væri sniðugt af stjórn
stöðvarinnar að segja þessum mönnum að ætíð
skuli þó vera hægt að meta og skoða hvert einstakt
tilvik.
Ég sendi mynd með af sópdyngjunni sem var í
hinni leigðu kerru. Myndin er sérlega falleg og vel
tekin enda lagði ég mig allan fram við töku hennar!
Loks finnst mér ástæða til að taka það fram, ágæti
Reynir, að ég er alls ekki í rusli út af þessu máli.
Svo var það annað: Þú varst búinn að lofa mér
draugasögu. Þú ætlaðir meira að segja að semja
nýja sögu ef engin væri tiltæk þér á vör. Ég kem
heim til þín einhvern daginn í kaffi og sögustund,
ég á hjá þér heimboð, eins og þú manst!
Sendi þér og stjórninni allri mínar ljúfustu kveðjur.
Mér þykir afskaplega vænt um þessa stjórn!
Með vinsemd og virðingu,
Gylfi Guðmundsson (sign)
Kt.: 010940-3549
Hamragarði 11
230 Keflavík
Opið bréf til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
➤ Gylfi Guðmundsson skrifar:
➤ IGS las fyrir starfsfólk í Toyota-salnum:
Lestrarátakið
í Reykjanesbæ
gengur vel
Víkurfréttamynd: Atli Már Gylfason
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 15:45 Page 20