Víkurfréttir - 06.05.2004, Page 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Suðurnesjamenn í U-16 landsliðum
N íu stúlkur af Suðurnesjum voru valdar í U-16 unglinga-landslið stúlkna í körfubolta. Hópurinn var valinn fyrirNorðurlandamótið sem fram fer í Stokkhólmi síðar í þess-
um mánuði.Tvær stúlknanna koma úr Njarðvík og sjö úr Kefla-
vík en alls eru tólf stúlkur í hópnum.
Þær stúlkur af Suðurnesjum sem fara til Svíþjóðar eru eftirfarandi:
Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík
Guðrún Harpa Guðmundsdóttir Keflavík
Hrönn Þorgrímsdóttir Keflavík
Linda Stefanía Ásgeirsdóttir Keflavík
María Ben Erlingsdóttir Keflavík
Ragnheiður Theodórsdóttir Keflavík
Bára Bragadóttir Keflavík
Ingibjörg Vilbergsdóttir UMFN
Margrét Kara Sturludóttir UMFN
Norðurlandamótið fer fram dagana 19.-23. maí.
Sverrir tekur
við kvenna-
liðinu
K örfuknattleiksdeildKeflavíkur hefur gengiðfrá ráðningu Sverris
Þórs Sverrissonar sem þjálfara
meistaraflokks kvenna.
Sverrir sagði í samtali við Víkur-
fréttir að hann væri mjög spennt-
ur fyrir þessu verkefni. „Þetta er
öflugur hópur. Liðið er góð blan-
da af yngri leikmönnum sem eru
að koma upp reyndari leikmanna
og auðvitað eru miklar kröfur
um árangur.“
Sverrir segist ekki búast við
miklum breytingum frá því sem
var í ár. „Ég mun bara reyna að
gera gott lið betra. Við munum
áfram spila hraðan bolta og pres-
sa mikið og það er alltaf hægt að
bæta sig.“
Sverrir Þór mun jafnframt leika
með karlaliði Keflavíkur á næstu
leiktíð.
Liðstyrkur til
Grindavíkur
A lbert Sævarsson mark-vörður er kominn afturheim til Grindavíkur og
mun leika með þeim í sumar.
Grindvíkingar og B-68, lið Al-
berts í Færeyjum, hafa komist
að samkomulagi um mál leik-
mannsins og niðurstaðan er sú
hann er kominn heim á æsku-
slóðir, en hann lék með
Grindavík allt til ársins 2003.
Þá hefur Óskar Örn Hauksson
einnig gengið til lið við Grind-
víkinga fyrir átökin í Lands-
bankadeildinni í sumar. Óskar
Örn, sem er aðeins 19 ára, lék
með Njarðvík í fyrstu deildinni
síðastliðið sumar og var um tíma
á mála hjá Sogndal í Noregi en
ákvað að snúa aftur heim til Ís-
lands og leika með Grindvíking-
um.
F orsvarsmenn FC Zürich óskuðu eftir því að fá lengritíma til að skoða Harald Guðmundsson, varnarmanninnöfluga frá Keflavík, og verður hann hjá liðinu fram eftir
vikunni. Ljóst er að forsvarsmönnum Zürich hefur litist vel á
frammistöðu Haraldar, en hann mun ekki verða gefins kjósi
þeir að fá hann til sín varanlega. Haraldur er samningsbundinn
Keflavíkurliðinu og er því gríðarlega mikilvægur hlekkur við
að festa sig í sessi á meðal bestu liða landsins á ný.
B úist er við því aðkörfuknattleiksdeildKeflavíkur muni skila 2-
3 milljóna króna hagnaði eftir
yfirstandandi tímabil. Þetta er
ein besta rekstrarafkoma sem
hefur verið, en deildin hefur nú
verið rekin með hagnaði síð-
ustu fjögur ár. Reikningarnir
verða kynntir nánar á aðal-
fundi deildarinnar 11. maí.
Ástæðan fyrir þessum góða ár-
angri er margþætt. Í fyrsta lagi
varð launaþaksreglan til þess að
lækka laun erlendu leikmann-
anna auk þess sem deildin fékk
myndarlegan styrk frá yfirstjórn
félagsins. Þá var áhorfendafjöldi
á leikina í úrslitunum með betra
móti og báðum liðum gekk vel
og fóru alla leið í öllum sínum
keppnum. Stærsta ástæðan var
þó að Evrópuævintýri karlaliðs-
ins kom út á sléttu þökk sé fram-
lagi sjálfboðaliða og styrktarað-
ila. Rekstrarafgangurinn er not-
aður til að greiða niður gamlar
skuldir og búa í haginn fyrir
komandi leiktíð.
Suðurnesjastúlkur í landsliðið
K eflvíkingurinn Björg Ásta Þórðardóttir var valin í 16manna landsliðshóp Helenu Ólafsdóttur fyrir vináttuleikÍslands gegn Englandi 14. maí.
Nína Ósk Kristinsdóttir úr Sandgerði var einnig valin í 25 manna und-
irbúningshóp fyrir Englandsleikinn og leikina við Ungverja og Frakka
í undankeppni Evrópumótsins sem fram fara 29. maí og 2. júní.
Nína hefur ekki leikið fyrir Íslands hönd áður, en Björg Ásta hefur
þegar leikið 3 landsleiki. 18 stúlkur úr þessum hópi verða valdar í EM-
leikina.
Keflvíkingar úr leik í Deildarbikarnum
K eflvíkingar eru úr leik í Deildarbikarkeppni karla í knatt-spyrnu eftir tap gegn Víkingi í 8-liða úrslitum á fimmtudag-inn. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma og
framlengingu og varð því að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem
markmaður Víkinga sýndi góð tilþrif og varði þrjár spyrnur og
tryggði sínum mönnum sigur, 3-4.
Úrslitin komu nokkuð á óvart þar sem Keflvíkingum hafði gengið allt
í haginn til þessa í keppninni og ekki tapað leik.
Haraldur verður áfram hjá Zürich
Hagnaður hjá Keflavík?
sportið
Víkurfréttamynd: Atli Már Gylfason
Það voru sannarlega kátir krakkar í sundlauginni í Garði þegar ljósmyndari
Víkurfrétta átti þar stutta viðkomu í góða veðrinu í síðustu viku. Þessi vika
hefur verið ögn kaldari en sú síðasta og líklegra að ef þessi mynd hefði verið
tekin í vikunni, hefðu krakkarnir verið í kuldagöllum!
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 14:08 Page 22