Víkurfréttir - 06.05.2004, Blaðsíða 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
L augardaginn 8. maí kl.16.00 verður opnuð ísýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar í Duushúsum
sýning á verkum Margrétar
Jónsdóttur listmálara. Um er
að ræða málverk úr myndröð-
inni IN MEMOMRIAM sem
eru unnin með eggtemperu á
pappír.
Margrét er fædd og uppalin í
Reykjavík en starfar og hefur að-
setur á Suðurnesjum, kennir m.a.
við Heiðarskóla í Reykjanesbæ
og Myndlistaskóla Kópavogs
jafnhliða því að stunda list sína.
Hún lauk námi frá Myndlista og
handíðaskóla Íslands 1974 og
stundaði framhaldsnám í Evrópu
við hinn þekkta skóla Central
Saint Martin´s Collage of Art í
London, námið var á þeim tíma
metið sem Master of fina Art og
er kallað MA gráða í dag. Hún
bætti síðar við sig námi í graf-
ískri hönnun við Myndlista og
handíðaskóla Íslands og Kenn-
araprófi frá Kennaraháskóla Ís-
lands.
Margrét hefur starfað í París síð-
astliðin sex sumur og hefur
vinnustofur á Íslandi og í Frakk-
landi. Margrét hefur hlotið ýms-
ar viðurkenningar, notið ferða-
styrkja og fengið starfslaun.
Margrét Jónsdóttir hefur frá ár-
inu 1975 haldið fjölda einkasýn-
inga og má nefna þær síðustu hér
á landi í Gallerí Skugga árið
2003, Listasafni A.S.Í. 2001,
Gerðarsafni 1999 og Hafnarborg
1999. Hún hefur einnig tekið
þátt í ótölulegum fjölda samsýn-
inga, sú síðasta var Ferðafurða á
Kjarvalsstöðum 2003. Margrét
hefur einnig verið virk í félagslífi
myndlistarmanna og tók m.a.
þátt í stofnun Hagsmunafélags
myndlistarmanna sem var undan-
fari Sambands íslenskra mynd-
listarmanna. Einnig tók hún þátt
í rekstri sýningarsala og má þar
nefna m.a. Gallerí Suðurgötu 7
sem hún var stofnandi að og
hlaut hlaut Menningarverðlaun
Dagblaðsisns.
Í sýningarskrá sem gefin er út af
tilefni sýningarinnar segir Aðal-
steinn Ingólfsson listfræðingur
m.a. um verk Margrétar: „Óhætt
er að segja að viðhorf Margrétar
Jónsdóttur til myndlistar hafi
sjaldan rúmast innan ráðandi
sjónarmiða í hérlendu myndlist-
arumhverfi; til þess er henni ein-
faldlega of mikið niðri fyrir. Með
tjáningu þessara viðhorfa hefur
hún iðulega staðið berskjölduð
og fullkomlega tillitslaus - og
jafnframt fullkomlega heiðarleg -
gagnvart sjálfri sér og áhorfend-
um.
Pappírsverkin sem hún sýnir hér
í Reykjanesbæ eru einkennandi
fyrir óvenjulegan þankagang
Margrétarar, svo uppfull sem þau
eru með tilvistarlegar og menn-
ingarpólitískar ígrundanir, bæði
augljósar og duldar.“
Sýningin er opin alla daga frá kl.
13.00 - 17.30 og stendur til 20.
júní.
Ertu mikill bókaormur?
Ég les mikið. Ég á afar gott
bókasafn og leita mér mest
fanga þar.
Hvaða bækur ertu með á
náttborðinu?
Ég er enn einu sinni að lesa
Bréf til Láru eftir Þórberg. Ég
les hana fyrst og fremt til að
auka mér orðaforða. Auk þess
er bókin sérlega skemmtileg.
Ég er einnig með á borðinu
mínu The Principalship eftir
Sergiovanni, afar góð bók um
stjórnun menntastofnana. Svo
er ég með Mýrina á borðinu, er
rétt að byrja með hana. Sérlega
spennandi og góð bók eftir
Arnald.
Hvaða bók lastu síðast?
Það var Betty eftir Arnald Ind-
riðason, spennandi og góð bók.
Hver er þín uppáhaldsbók?
Gróður jarðar eftir Hamsun og
Íslandsklukkan
Eru einhverjar bækur sem
þú ætlar að lesa á næstunni?
Ég ætla að lesa Ofvitann eftir
Þórberg, hef oft lesið hana. Hún
er einfaldlega með þeim hætti
bókin sú að það er hægt að lesa
hana aftur og aftur.
Bækur Þórbergs auka þér orða-
forða og það er gott fyrir þann
sem skrifar að lesa þessar bæk-
ur reglulega.
Mark Twain sagði einhvern
tíma: „Góðir vinir, góðar bækur
og syfjuð samviska - þetta er
hið fullkomna líf. Kannski á
þetta við mig!
Hvaða bókaorm skorarðu á
næst?
Reyni Sveinsson góðvin minn í
Sangerði.
Gylfi Guðmundsson, skólastjóri
Njarðvíkurskóla, er bókaormur
vikunnar í Víkurfréttum.
Bókaorm
ur
vikunnar
IN MEMOMRIAM
í Listasafni Reykjanesbæjar
K vennakór Garðabæjarog Kvennakór Suður-nesja halda sameigin-
lega tónleika í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju miðvikudaginn 12. maí
nk. kl. 20.00. Efnisskrá er
mjög fjölbreytt, og geta eflaust
allir fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Kvennakór Garðabæjar er að
ljúka sínu fjórða starfsári.
Stjórnandi hans er Ingibjörg
Guðjónsdóttir sópransöngkona,
og undirleikari á píanó er Helga
Laufey Finnbogadóttir. Stjórn-
andi Kvennakórs Suðurnesja er
Krisztina Kalló Szklenárné og
píanóleikari er Geirþrúður Fann-
ey Bogadóttir. Kvennakór Suð-
urnesja er elsti starfandi kvenna-
kór landsins, en hann hefur starf-
að í rúm 36 ár, eða frá árinu
1968. Kórinn er á leið í söng-
ferðalag til Ungverjalands í
haust.
Miðasala á tónleikana verður við
innganginn og er miðaverð
kr.1500, en kr. 1000 fyrir eldri
borgara. Frítt er fyrir börn 12 ára
og yngri.
Kórarnir lofa góðum tónleikum
sem enginn tónlistarunnandi
verður svikinn af.
Tónleikar Kvennakórs Garða-
bæjar og Kvennakórs Suðurnesja
í Ytri-Njarðvíkurkirkju
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 13:56 Page 28