Víkurfréttir - 06.05.2004, Side 29
Sjáið okkur á netinu www.es.is
11.100.000,-
Framnesvegur 14,
Keflavík
Hugguleg, 2ja herb. íbúð á
n.h. með sérinngangi.
Mikið endurnýjuð íbúð,
nýlegar flísar á eldhúsi og
holi, nýlegt parket á stofu.
Allt nýmálað.
7.500.000,-
Háaleiti 20, Keflavík
Sérlega glæsilegt ein-
býlishús, ásamt bílskúr.
Búið að endurnýja járn á
þaki, lagnir nýjar.
Eldhús nýlega standsett.
Góður staður.
18.700.000,-
Vatnsnesvegur 13,
Keflavík
Sérlega glæsileg íbúð á 2.h.
í tvíbýlishúsi með sér
inngangi, auk bílskúrs.
Eldhús og bað nýlega
standsett, ný gólfefni og fl.
11.200.000,-
Suðurgata 7, Keflavík
Mjög góð 2ja herbergja íbúð
á n.h. í tvíbýlishúsi. Allt nýtt
á baði, nýlegt parket og
nýlegar flísar á gólfum.
Eign í góðu standi.
7.400.000,-
Kirkjubraut 23, Njarðvík
Sérlega glæsilegt ein-
býlishús ásamt bílskúr í
byggingu. Skilast fullbúið
að utan en fokhelt að innan.
Húsið er 126m2 og
bílskúr 26m2.
10.500.000,-
Hjallavegur 11, Njarðvík
Mjög skemmtileg 2ja her-
bergja íbúð á 3. hæð. Ný
gólfefni, ný innrétting á baði.
Húsið allt nýtekið í gegn að
utan.
6.300.000,- 9.400.000,-
Baugholt 6, Keflavík
Mjög huggulegt ein-
býlishús, auk 28m2 bíl-
skúrs. Húsið skiptist í stofu,
borðstofu, sjónvarpshol
og 3 svefnherb. Talsvert
endurnýjuð eign. Góður
staður.
17.300.000,-
Blikabraut 9, Keflavík
Sérlega skemmtileg 3ja
herb. íbúð á e.h. í
tvíbýlishúsi, auk bílskúrs.
Nýtt parket, allt nýmálað að
innan og utan, nýtt járn á
þaki, nýlegar ofna og
neysluvatnslagnir.
Fífumói 6, Njarðvík
Sérlega hugguleg 3ja her-
bergja íbúð á 1.h. með
sérinngangi.
Nýlegt parketlíki á gólfum,
allt nýtt á baði. Vinsælar
íbúðir.
VÍKURFRÉTTIR I 19. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 6. MAÍ 2004 I 29
Ragnheiður Gunnarsdóttir kennari við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja verður 50 ára
9. maí n.k. af því tilefni tekur hún á móti
gestum í Safnaðarheimili Innri-Njarðvíkur-
kirkju laugardaginn 8. maí kl 19:00
Aðalfundur Björgunar-sveitarinnar Þorbjörns íGrindavík var haldinn
mánudagskvöldið 3. maí. Í
skýrslu Birkis Agnarssonar,
fráfarandi formanns, kom
fram að sveitin fékk 42 útköll á
árinu 2003 og er það nokkur
fækkun frá síðustu árum. Af
þessum 42 útköllum voru 27 á
sjó. Sveitin var í þrígang köll-
uð út á rauðum forgangi, sem
er neyðarútkall. Það var þegar
flutningaskipinu Trinket var
bjargað stjórnvana í innsigling-
unni í febrúar 2003; þegar
Draupnir GK fórst 12 sml.
suður af Grindavík og þegar
dráttarbáturinn Gamli lóðsinn
fórst um 4 sml. norðvestur af
Reykjanesi. Í öllum þessum til-
vikum varð mannbjörg.
Sveitin tók þátt í fjórum leitum
að týndu fólki, þar á meðal köf-
unarleitum á Seyðisfirði og við
Borgarnes. Þá fór sveitin í marg-
ar ferðir til aðstoðar, bæði á landi
og sjó. Má þar nefna að björgun-
arskipið Oddur V. Gíslason dró
fjóra bilaða báta til hafnar og bif-
reiðar sveitarinnar voru sjö sinn-
um kallaðar út til aðstoðar föst-
um bílum.
Á aðalfundinum var Daníel
Gestur Tryggvason kjörinn for-
maður björgunarsveitarinnar og
Birgir Reynisson varaformaður.
Með þeim í stjórn eru Sigurður
Viðarsson ritari, Guðbjörg Eyj-
ólfsdóttir gjaldkeri, Agnar Smári
Agnarsson, Jón Valgeir Guð-
mundsson og Ólafur Ingi Jóns-
son meðstjórnendur.
Formannsskipti hjá Björg-
unarsveitinni Þorbirni
➤ Félagslíf:
R eykjanesbær auglýsir tilumsóknar lóðir íTjarnahverfi sem rísa
mun í Innri Njarðvík í Reykja-
nesbæ.Tjarnahverfi mun full-
byggt bjóða 552 íbúðir, þar af
357 í fjölbýli, 130 í raðhúsum
og parhúsum og 65 í einbýlis-
húsum. Hverfið ber nafn af
tjörnunum í Innri Njarðvík
sem eru neðan við hverfið og
götur bera heiti fulga og tjarna
s.s. Álftatjörn, Lómatjörn o. fl..
Íbúafjöldi í Reykjanesbæ er 11
þúsund og er bæjarfélagið það
fimmta stærsta á íslandi.
Vefsetur Reykjanesbæjar
kynnir nýja hverfið með eftir-
farandi orðum:
Stærð samfélagsins gefur tæki-
færi til að bjóða alla þjónustu
sem íbúar sækjast eftir á höfuð-
borgarsvæðinu en um leið kosti
minni bæjar. Hér er fjölskrúðugt
íþrótta-, tómstunda-, og menn-
ingarlíf, s.s. tvö íþróttafélög með
fjölþætta starfsemi, kvikmynda-
hús, listsýningasalir, góður tón-
listarskóli, og aðstaða til golf-,
siglinga og hestaíþrótta, svo fáein
dæmi séu nefnd.
Engir biðlistar eru eftir leikskól-
um. Allir grunnskólar bjóða heit-
an mat í hádegi og yngri grunn-
skólabörnum býðst að nýta sér
Frístundaskóla að grunnskóla
loknum. Reykjanesbær er eina
sveitarfélagið á Íslandi sem veitir
ókeypis almenningsvagnaþjón-
ustu!
Megin atvinnustoðir til framtíðar
tengjast styrkleikum Reykjaness;
þjónustu við alþjóðaflugvöll sem
fer ört stækkandi, nýju iðnaðar-
og þjónustusvæði í Helguvík,
höfuðstöðvum Hitaveitu Suður-
nesja og tengingu hennar við
virkjanir, þjónustu og rannsóknir
á svæðinu. Fiskvinnslufyrirtæki
hafa séð kosti við að búa hér svo
nærri flutningaleiðum. Í bænum
fjölgar ört tækifærum í ferða-
þjónustu vegna nálægðar við
flugvöllinn og útivistarperlur á
Reykjanesinu. Höfuðstöðvar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
eru í Reykjanesbæ. Af stærð
samfélagsins skapast einnig
fjöldi almennra atvinnutækifæra.
Líflegt og fjölbreytt hverfi
Áhersla er lögð á líflegt og fall-
egt umhverfi með margbreyti-
legu göturými og notkun trjá-
gróðurs. Þá er gert ráð fyrir
skemmtilegum göngu- og skóla-
leiðum og hóflegum hraða bíla-
umferðar eftir lífæðinni. Í næsta
nágrenni er verið að byggja upp
svonefndan Víkingaheim, þar
sem víkingaskipið Íslendingur
verður í forgrunni víkingasögu-
sýningar. Þetta mun tryggja enn
meiri áherslu á vandaða og sér-
staka umgjörð Tjarnahverfis.
Vandaðir skólar í Tjarnahverfi
Nýr grunnskóli, Akurskóli, er í
byggingu í Tjarnahverfi sem hef-
ur starfsemi haustið 2005. Akur-
skóli verður opinn skóli að nýj-
ustu fyrirmynd er leggur áherslu
á einstaklingsmiðað nám. Þar
verður miðrýmið með sérstakri
upplýsinga- og bókastofu svo-
nefndri Thorkillístofu.
Leikskólinn Holt er í hverfinu en
hann hefur nýlega verið stækkað-
ur og endurnýjaður til að taka við
fjölda barna á leikskólaaldri sem
flytja í Tjarnahverfi.
Örugg og skjót aðkoma
að Tjarnahverfi
Unnið er að tvöföldun Reykja-
nesbrautar sem skapar örugga og
greiða leið á milli höfuðborgar-
svæðis og Tjarnahverfis en mis-
læg gatnamót af Reykjanesbraut
munu liggja beint inn að Tjarna-
hverfi. Almenningsvagnar aka á
milli hverfa í Reykjanesbæ og
frítt er í strætó!
Reykjanesbær býður lóðir í Tjarnahverfi
➤ Nýtt hverfi í Innri Njarðvík til úthlutunar:
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 15:34 Page 29