Víkurfréttir - 16.06.2004, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
MUNDI
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttafréttir),
sími 868 7712, sport@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
➤ Volkswagen í Þýskalandi:
Auglýsingasími
Víkurfrétta er
421 0000
Varnarliðið getur ekki
einu sinni passað Rockville.
Hvernig á það þá að verja
Ísland?
Kallinn
á kassanum
UM SÍÐUSTU HELGI var Kallinn
staddur í garðveislu þar sem margt
var um manninn. Þar voru rædd mál
sem Kallinum þótti merkileg. Ein
spurning sem brann á vörum margra
var sú af hverju hafi legið svo á að
koma Byrgisfólkinu út úr Rockville?
Nú hafa húsin staðið auð í heilt ár og
það veit hreinlega enginn hvað eigi
að verða um þetta svæði. Þær tug-
milljónir sem Byrgisfólkið eyddi í að
gera húsnæðið í Rockville upp fóru út
um gluggann. Og nú er búið að legg-
ja svæðið í rúst.
NÚ ER SVO komið að ekki reynist
unnt að gæta öryggis á svæðinu.
Krakkar hafa verið að leggja leið sína
inn á svæðið og er Kallinn ekki hissa
á því. Svæðið er í rúst og það er
margt spennandi sem þar er hægt að
skoða og sumir gera sér það að leik
að eyðileggja hluti við slíkar aðstæð-
ur.
BYRGIÐ OG STARFSEMI þess setti
mikinn svip á Suðurnesin. Langflestir
þeirra sem Kallinn þekkir vildu hafa
starfsemi Byrgisins áfram í Rockville.
Byrgisbúum leið vel þar og þar vildu
þeir áfram vera - um ókomna framtíð.
Kallinn vonar að það muni koma í ljós
af hverju Byrgisfólkinu var úthýst úr
Rockville í svo miklum flýti fyrir ári
síðan. Fáránlegt mál frá upphafi til
enda og til skammar fyrir alla aðila á
Suðurnesjum. Eiga aðilar sem hafa
áhuga á að vera með starfsemi hér á
svæðinu á hættu að vera hraktir burtu
líkt og gerðist með Byrgisfólkið?
ERU EINHVERJIR SUÐURNESJA-
MENN að fylgjast með Evrópumótinu
í knattspyrnu? Kallinn heldur með
frökkunum, bara svo það sé á hreinu.
KALLINUM BARST BRÉF frá konu í
Garðinum sem ætlar að fara af stað
með undirskriftasöfnun varðandi
sameiningarmál. Konan segir í bréf-
inu að hún vilji að skoðaðir verði
kostir sameiningar. Kallinn hvetur
íbúa í Garði, Sandgerði, Vogum og
Grindavík til að fara af stað með und-
irskriftasafnanir til að hvetja stjórn-
endur sveitarfélaganna til að skoða
kosti sameiningar. Það þýðir ekki
endalaust að stinga höfðinu niður í
sandinn og hundsa vilja fólksins. Það
er bara liðin tíð!
KALLINN HEFUR FENGIÐ nóg af
Ástþóri Magnússyni atvinnuforseta-
frambjóðanda og tómatsósugúrú.
Hvað er maðurinn að eyða tíma fólks
með því sem hann er að gera? Frétta-
menn hafa um eitthvað þarfara að
skrifa eða segja frá heldur en bjána-
legum upphlaupum mannsins. Því
miður er það einn af göllum lýðræð-
isins að menn eins og Ástþór geti
boðið sig fram.
KALLINN ÓSKAR Suðurnesjamönn-
um öllum gleðilegs þjóðhátíðardags.
Sameiningarkveðja,
kallinn@vf.is
H eill og sæll kall (semgamall íslenskukennariætti ég vitanlega að
skrifa KARL).
Þakka þér hvatn-
inguna í síðasta
pistli. Vissulega
hljómar spenn-
andi hugmyndin
um akstursbraut-
ina hér á Suðurnesjum. Var bú-
inn að afla mér upplýsinga um
málið. Það virðist standa þannig
að fjárfestarnir eru að hugsa sinn
gang en virðast hrifnir af aðstæð-
um. Kostir okkar eru þeir að hér
er allra veðra von en hægt að
nýta jarðhitann úr Svartsengi til
upphitunar á brautunum. Sem
sagt- kjörinn tilraunavettvangur
fyrir dekk og akstur. Enn eitt
dæmið um hvað Ísland hentar vel
til tilrauna. Á þeim forsendum
höfum við einmitt náð hingað
vetnisverkefninu í samstarfi við
stór og öflug alþjóðafyrirtæki.
Ekki er nokkur vafi að við eigum
að taka hugmyndinni um aksturs-
brautina opnum örmum og hygg
ég að svo haf i verið gert.
Ákvörðun er hins vegar í hönd-
um fjárfestanna enda um veru-
legar upphæðir að ræða. Ljóst er
að ef af yrði kæmu mörg störf og
velta inn í okkar samfélag. Og
sannarlega þurfum við á því að
halda. Ég hygg reyndar að mjög
margt sé í gerjun varðandi at-
vinnulíf okkar á Suðurnesjum og
trúi að á næstu misserum munum
við sjá margt athyglisvert gerast
hér. Meginatriðið er að við séum
bjartsýn og snúum bökum sam-
an. Sundurlyndi og úrtölur drepa
allt í dróma.
Með kveðju,
Hjálmar Árnason.
P.s. Ósköp þætti mörgum nú
skemmtilegra að KALLINN skrif-
aði góða pistla sína undir nafni.
Yrði umræðan ekki enn opnari
og málefnalegri ef allir settu stafi
sína undir?
H ér á landi er staddurhópur Þjóðverja sem erhingað kominn til þess
að reynsluaka VW Touareg
jeppanum við sem fjöl-
breyttastar aðstæður. Hópur-
inn kom til landsins á laugar-
dag og hafði Kjartan Steinars-
son hjá Heklu í Reykjanesbæ
umsjón með móttöku á hópn-
um og þjónustaði bílana áður
en hópurinn tók við þeim. Bíl-
arnir komu hingað til lands frá
Marokkó.Volkswagenmenn
voru mjög ánægðir með undir-
búning Kjartans og þá þjón-
ustulipurð sem hann sýndi.
Hér á landi munu Þjóðverjarnir
aka bílunum við aðstæður sem
eru torfundnar í Þýskalandi. Ekið
verður á hefðbundnum íslensk-
um malarvegum, um fjallvegi og
jeppaslóða þar sem meðal annars
er ekið er yfir óbrúaðar ár, auk
þess sem þýsku ökumennirnir fá
að aka jeppunum um íslenska
jökla. Vegna þessa verkefnis
fluttu Volkswagen verksmiðjurn-
ar fimm Touareg jeppa hingað til
lands.
Volkswagen verksmiðjurnar
buðu áhugasömum eigendum
Touareg lúxusjeppana og vænt-
anlegum kaupendum þeirra að
reynsluaka bílunum við framandi
aðstæður þar sem allir kostir bíls-
ins fá að njóta sín. Unnt var að
velja milli reynsluaksturs í Kína,
S-Afríku, Marokkó, Bandaríkj-
unum og á Íslandi. Flestir völdu
að reynsluaka bílnum á Íslandi
og í Marokkó. Alls koma 16
áhugamenn um VW Touareg
hingað til lands í tveimur hópum
til að reyna bílinn og læra á hann.
Hvor hópur um sig keyrir um Ís-
lands í vikutíma. Þaulvanir farar-
stjórar og fjallamenn fylgja
þýsku ökumönnunum og aðstoða
þá við aksturinn og sjá til þess að
farið verði eftir lögum og ekki
ekið utan vega.
Touareg er fyrsti jeppinn sem
Volkswagen verksmiðjurnar
framleiða en jeppinn var frum-
sýndur í París haustið 2002. Tou-
areg jeppinn er vinsælasti bíllinn
í flokki lúxusjeppa í Evrópu. Til
þess að mæta eftirspurn hafa
Volkswagen verksmiðjurnar
ákveðið að auka framleiðslu á
Touareg jeppanum úr 60 þúsund
bílum á ári upp í 100 þúsund
bíla.
Forráðamenn Volkswagen verk-
smiðjanna eru afar hrifnir af Ís-
landi sem sést best á því að
Hekla var fyrsta Volkswagen um-
boðið í heiminum til þess að
sýna Touareg jeppan. Hjá
Volkswagen verksmiðjunum eru
uppi áform um að nýta Ísland og
fjölbreyttar aðstæður hér á landi
til frekari kynningar á
Volkswagen bílum í framtíðinni.
Hjálmar svarar Kallinum
Ánægt með þjónustu
Heklu í Reykjanesbæ
FYLGIST
MEÐ Á
www.vf.is
25. tbl. 2004 32 sidur 15.6.2004 14:41 Page 10